- Ert þú með kennsluréttindi?
- Hefur þú minnst tveggja ára starfsreynslu?
- Vilt þú efla færni þína sem stjórnandi?
Örnám í stjórnun menntastofnana er stutt námsleði sem ætlað er að efla leiðtogafærni í íslensku menntakerfi.
Horft er til skólans sem lærdómssamfélags þar sem fram fer starfsþróun og þróunarstarf. Áhersla er lögð á forystuhlutverk stjórnandans og færni í að leiða farsælt og framsækið starf á tímum hraðfara breytinga sem kalla á sífellda endurskoðun á markmiðum og framkvæmd.
Uppbygging náms
Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hlutanám til eins árs með vinnu.
Námið skiptist í:
- Skyldunámskeið, 25 einingar
- Bundið val, 5 einingar
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla og próf fara fram á íslensku.
Öll námskeið eru kennd í fjarnámi með staðbundnum lotum en þó getur verið mismunur á fyrirkomulagi á milli námskeiða.
Meginmarkmið
Meginmarkmið námsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á einkennum skóla og annarra menntastofnana og efli hæfni sína sem stjórnendur.
Annað
Möguelgt er að fá einingar metnar inn í eftirfarandi námsleiðir:
- Stjórnun menntastofnana, M.Ed. (120 einingar)
- Menntastjórnun og matsfræði, Viðbótarpróf á meistarastigi (60 einingar)
Við inntöku á námsleiðina gildir sú meginregla að umsækjandi hafi lokið bakkalárgráðu með fyrstu einkunn (7,25). Auk þess er gerð krafa um leyfisbréf til kennslu og tveggja ára starfsreynsla að loknu kennsluréttindanámi er ákjósanleg.
Ljúka þarf 30e
- Ferilskrá (CV)
- Prófskírteini/námsyfirlit
- Kynningarbréf/hvers vegna velur þú þetta nám
- Leyfisbréf
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.
- Fyrsta ár
- Haust
- Rekstur skóla
- Kenningar um menntastjórnun, stofnanir og skipulagsheildir
- Menntun og mannauðsstjórnun
- Vor
- Í sporum leiðtoga á vettvangi
- Lögfræði menntunar
Rekstur skóla (STM032F)
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á ytra umhverfi skóla og samspili við ákvarðanatöku um nýtingu fjármuna og stefnur í menntun. Til umfjöllunar eru fjármögnun menntunar, kostnaðaruppbygging skóla og fjárhagsáætlun sem stjórntæki.
Kenningar um menntastjórnun, stofnanir og skipulagsheildir (STM212F)
Markmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á helstu hugtökum og kenningum um stofnanir og atferli einstaklinga innan þeirra.
Til umfjöllunar eru kenningar um stofnanir, helstu hugtök og nýlegar rannsóknir. Fjallað verður um mennta- og þjónustustofnanir sem opið kerfi, regluveldi og vinnustað fagfólks, menningu, vald, áhugahvöt, mannauð, jafnrétti, ákvarðanir, árekstra og ágreining á vinnustöðum.
Í námskeiðinu verða lögð fyrir fjölbreytt einstaklings-, para og hópverkefni. Þátttakendur fá markvissa þjálfun í að rýna í ólíkar kenningar um skipulagsheildir og stofnanir, rannsóknir og aðferðir sem tengjast skólastarfi og stjórnun.
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjarkennslu-verkefni, málstofuverkefni og skrifa fræðilega lokaritgerð. Auk þess ræða nemendur fræðilegt efni í afmörkuðum hópum á Netinu og skila um það skýrslu.
Hvort sem um fjarnám eða staðnám er að ræða, byggist þátttaka á námskeiðinu á lifandi samfélagi og samræðu, í raunheimum sem og á netinu. Allt námsferlið miðar að því að nýtast þátttakendum á beinan hátt í eigin starfi.
Menntun og mannauðsstjórnun (STM033F)
Meginmarkmiðið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og hæfni á sviði mannauðsstjórnunar og verði færir um að beita þekkingu sinni í skólastarfi eða á öðrum vettvangi innan menntakerfisins. Fjallað verður um þróun mannauðsstjórnunar og lögð áhersla á að nemendur tileinki sér nýjustu kenningar um mannauðsstjórnun. Megin viðfangsefni mannauðsstjórnunar verða kynnt með áherslu á að þátttakendur skilji helstu áskoranir og mikilvægi mannauðsstjórnunar, bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi.
Vinnulag
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjölbreytt og hagnýt verkefni sem nýtast þeim í starfi.
Í sporum leiðtoga á vettvangi (STM029F)
Markmið námskeiðs er að nemendur öðlist innsýn í dagleg störf og umhverfi skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans. Það gætu verið skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar i leik- grunn- og framhaldsskólum, stjórnendur frístundamiðstöðva, frístundaheimila og félagsmiðstöðva eða stjórnendur á sviði æskulýðsmála. Markmiðið er að nemendur geti fjallað um dagleg störf og umhverfi í fræðilegu samhengi, að þeir kynni sér áhrif námskráa, laga og reglugerða á störf stjórnenda og skipulag og innihald skóla- og frístundastarfs.
Námskeiðið tekur til þátta er tengjast daglegum störfum skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans, s.s. rekstri, starfsmannasjórnun og faglegri forystu, starfsþróun og mati á skólastarfi. Nemendur fylgja einum stjórnanda í 4-5 daga sem dreifast á 4-6 vikur. Á vettvangi safna nemendur gögnum sem nýtast við vinnslu verkefna námskeiðsins. Nánari leiðbeiningar verða veittar við upphaf námskeiðsins.
Áður en nemendur fara á vettvang hafa þeir samband við umsjónarkennar sem í samráði við nemanda finnur stjórnanda til að fylgja. Í lok námskeiðs kynna nemendu verkefni sín á málstofu.
Lögfræði menntunar (STM218F)
Námskeiðið veitir nemendum innsýn í lagalega umgjörð skólastarfs og hvernig lög, reglur og siðferðileg viðmið móta starfsemi menntastofnana. Áhersla er lögð á tengsl lagalegra, uppeldisfræðilegra og stjórnsýslulegra þátta við faglega forystu og stefnumótun, með það að markmiði að styrkja stjórnendur í hlutverki sínu sem ábyrgir aðilar innan opinbers kerfis.
Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi úr skólastarfi þar sem lagaleg, fagleg og siðferðileg sjónarmið takast á. Með því að tengja fræðileg hugtök við eigin reynslu og greina flókin úrlausnarefni, öðlast þeir verkfæri og öryggi til að taka upplýstar og faglegar ákvarðanir. Námið byggir á virkri þátttöku, umræðum og ígrundunum. Markmiðið er að nemendur verði meðvitaðir um þau atriði sem skipta máli í úrlausn mála í skólastarfi.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist aukinn skilning á ytra umhverfi skóla og samspili við ákvarðanatöku um nýtingu fjármuna og stefnur í menntun. Til umfjöllunar eru fjármögnun menntunar, kostnaðaruppbygging skóla og fjárhagsáætlun sem stjórntæki.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuSTM212FKenningar um menntastjórnun, stofnanir og skipulagsheildirSkyldunámskeið10Skyldunámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að þátttakendur öðlist þekkingu og skilning á helstu hugtökum og kenningum um stofnanir og atferli einstaklinga innan þeirra.
Til umfjöllunar eru kenningar um stofnanir, helstu hugtök og nýlegar rannsóknir. Fjallað verður um mennta- og þjónustustofnanir sem opið kerfi, regluveldi og vinnustað fagfólks, menningu, vald, áhugahvöt, mannauð, jafnrétti, ákvarðanir, árekstra og ágreining á vinnustöðum.
Í námskeiðinu verða lögð fyrir fjölbreytt einstaklings-, para og hópverkefni. Þátttakendur fá markvissa þjálfun í að rýna í ólíkar kenningar um skipulagsheildir og stofnanir, rannsóknir og aðferðir sem tengjast skólastarfi og stjórnun.
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjarkennslu-verkefni, málstofuverkefni og skrifa fræðilega lokaritgerð. Auk þess ræða nemendur fræðilegt efni í afmörkuðum hópum á Netinu og skila um það skýrslu.Hvort sem um fjarnám eða staðnám er að ræða, byggist þátttaka á námskeiðinu á lifandi samfélagi og samræðu, í raunheimum sem og á netinu. Allt námsferlið miðar að því að nýtast þátttakendum á beinan hátt í eigin starfi.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingMeginmarkmiðið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu og hæfni á sviði mannauðsstjórnunar og verði færir um að beita þekkingu sinni í skólastarfi eða á öðrum vettvangi innan menntakerfisins. Fjallað verður um þróun mannauðsstjórnunar og lögð áhersla á að nemendur tileinki sér nýjustu kenningar um mannauðsstjórnun. Megin viðfangsefni mannauðsstjórnunar verða kynnt með áherslu á að þátttakendur skilji helstu áskoranir og mikilvægi mannauðsstjórnunar, bæði í fræðilegum og hagnýtum tilgangi.
Vinnulag
Námið er byggt upp á fyrirlestrum, umræðum, hópvinnu, lestri og verkefnavinnu. Þátttakendur vinna fjölbreytt og hagnýt verkefni sem nýtast þeim í starfi.Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu- Vor
STM029FÍ sporum leiðtoga á vettvangiSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSÞar af 2 vettvangseiningarNámskeiðslýsingMarkmið námskeiðs er að nemendur öðlist innsýn í dagleg störf og umhverfi skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans. Það gætu verið skólastjórar, aðstoðarskólastjórar og deildarstjórar i leik- grunn- og framhaldsskólum, stjórnendur frístundamiðstöðva, frístundaheimila og félagsmiðstöðva eða stjórnendur á sviði æskulýðsmála. Markmiðið er að nemendur geti fjallað um dagleg störf og umhverfi í fræðilegu samhengi, að þeir kynni sér áhrif námskráa, laga og reglugerða á störf stjórnenda og skipulag og innihald skóla- og frístundastarfs.
Námskeiðið tekur til þátta er tengjast daglegum störfum skólastjórnenda og stjórnenda á vettvangi frítímans, s.s. rekstri, starfsmannasjórnun og faglegri forystu, starfsþróun og mati á skólastarfi. Nemendur fylgja einum stjórnanda í 4-5 daga sem dreifast á 4-6 vikur. Á vettvangi safna nemendur gögnum sem nýtast við vinnslu verkefna námskeiðsins. Nánari leiðbeiningar verða veittar við upphaf námskeiðsins.
Áður en nemendur fara á vettvang hafa þeir samband við umsjónarkennar sem í samráði við nemanda finnur stjórnanda til að fylgja. Í lok námskeiðs kynna nemendu verkefni sín á málstofu.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinuNámskeiðslýsingNámskeiðið veitir nemendum innsýn í lagalega umgjörð skólastarfs og hvernig lög, reglur og siðferðileg viðmið móta starfsemi menntastofnana. Áhersla er lögð á tengsl lagalegra, uppeldisfræðilegra og stjórnsýslulegra þátta við faglega forystu og stefnumótun, með það að markmiði að styrkja stjórnendur í hlutverki sínu sem ábyrgir aðilar innan opinbers kerfis.
Þátttakendur vinna með raunveruleg dæmi úr skólastarfi þar sem lagaleg, fagleg og siðferðileg sjónarmið takast á. Með því að tengja fræðileg hugtök við eigin reynslu og greina flókin úrlausnarefni, öðlast þeir verkfæri og öryggi til að taka upplýstar og faglegar ákvarðanir. Námið byggir á virkri þátttöku, umræðum og ígrundunum. Markmiðið er að nemendur verði meðvitaðir um þau atriði sem skipta máli í úrlausn mála í skólastarfi.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMætingaskylda er í námskeiðinu
Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.
Möguleikar
Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.
Skilyrði
Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:
- 90 ECTS einingar í grunnnámi
- 60 ECTS einingar í framhaldsnámi
Námskeið metin til eininga
Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.
Fólk með þessa menntun nýtur alla jafna forgans í störf stjórnenda hjá:
- Leikskólum
- Grunnskólum
- Framhaldsskólum
- Öðrum menntastofnunum
Listinn er ekki tæmandi
Nemendafélagið Kennó er félag kennaranema við Háskóla Íslands. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, svo sem nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum. Félagið hefur einnig staðið fyrir verkefninu Komdu að kenna sem hefur hefur það að markmiði að kynna kennaranám.
- Fylgstu með Komdu að kenna á Facebook og Instagram.
- Meira um félagslíf stúdenta í Hí.
Námsvalshjólið
Á hverju hefur þú áhuga?
Veldu framhaldsnám
Skref fyrir skref
Á Þjónustuborði Háskólatorgs færðu aðstoð og upplýsingar um þjónustu Háskóla Íslands. Þú getur komið við á Háskólatorgi eða notað vefspjallið neðst í hægra horninu á þessari síðu.