- Getur þú hugsað þér að vinna á vettvangi þýðinga?
- Langar þig að læra að þekkja helstu aðferðir orðræðugreiningar og tengsl þeirra við þýðingar?
- Vilt þú fá öðlast nákvæma þekkingu og skýran skilning á hugtökum, aðferðum og kenningum þýðingafræða?
- Hefur þú áhuga á nytja-, skjala- eða skáldsagnaþýðingum?
Meistaranám í þýðingafræði er fræðilegt framhaldsnám.
Fyrri hluti námsins getur falist í hagnýtu námi í þýðingum. Að jafnaði byggist nám í þýðingafræðum til MA-prófs hins vegar á því að nemandi ljúki hluta námsins á meistarastigi í öðrum greinum Hugvísindasviðs eða við skóla erlendis.
Uppbygging náms
Námið er 120 einingar og er sett upp sem fullt nám til tveggja ára.
Námið skiptist í:
- Þýðingafræði, 30 einingar
- Íslenska, 20 einingar
- Erlend mál, 30 einingar
- Lokaritgerð, 30 einingar
Kjörsvið
Nemendur velja á milli eftirfarandi kjörsviða:
- Þýðingafræði - þýska
- Þýðingafræði - spænska
- Þýðingafræði - danska
- Þýðingafræði - franska
- Þýðingafræði - enska
- Þýðingafræði - önnur tungumál
Fyrirkomulag kennslu
Kennsla fer fram á íslensku og ensku en flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum málum.
Meginmarkmið
Meistaranám í þýðingafræði hefur það helst að markmiði að þjálfa þýðendur til starfa sem fræðimenn og þýðendur bókmennta og fræðitexta.
Annað
- Einnig er boðið upp á þýðingarfræði til viðbótarprófs á meistarastigi, 60e.
MA-próf í Íslensku- og menningardeild veitir rétt til að sækja um doktorsnám.
Stúdent sem útskrifast hefur með BA‒próf með fyrstu einkunn (7,25) eða sambærilega námsgráðu getur sótt um að innritast í nám í þýðingafræði eða nytjaþýðingum. Nemandi skal hafa tekið a.m.k. 10 eininga lokaverkefni. Nemendur þurfa að taka hæfnispróf við upphaf náms.
Til MA-prófs er krafist minnst 120 eininga. Af einingum á MA-stigi skulu 30 einingar felast í lokaritgerð, en í sérstökum tilvikum 60 einingar, hafi nemandinn fengið til þess samþykki. Þriðjungur námskeiða felst í námskeiðum í þýðingafræðum, annar þriðjungur í þýðingatengdu námi í íslensku og sá þriðji í þýðingatengdum námskeiðum í erlendu tungumáli. Ef viðkomandi tungumál er ekki kennt við HÍ er mælt með námsdvöl erlendis. Einnig er unnt að taka einstaklingsmiðuð verkefni. Námskeiðin eru valin í samráði við umsjónarmann þýðingarnáms.
- Greinargerð um markmið með námi
- Prófskírteini/námsyfirlit
Uppsetning náms
Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og önnum.
Þýðingafræði (ÞÝÐ027F)
Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.
Þýðingar og þýðingatækni (ÞÝÐ028F)
Þetta námskeið er helgað þeirri tækni og tólum sem þýðendur og aðrir tungumálasérfræðingar geta nýtt í störfum sínum. Nemendur kynnast tölvustuddum þýðingakerfum, gervigreind, þýðingaminnum og íðorðastjórnun og læra hvernig hægt er að samtvinna texta og búa til og vinna með þýðingaminni, orðasöfn og önnur máltæknigögn. Einnig verður fjallað um notkun orðabóka á netinu, gagnabanka og annarra hjálpargagna.
Sérstök áhersla verður lögð á gagnrýna notkun tækninnar, mat á gæðum úttaks og atriði er varða trúnað, persónuvernd og meðferð gagna.
Fjallað verður um starfsumhverfi þýðandans og áhrif tækniþróunar á þýðingastörf. Einnig verður farið yfir hagnýt atriði sem geta hjálpað sjálfstætt starfandi þýðendum að afla sér verkefna og fóta sig á vinnumarkaði og í gigg-hagkerfinu. Reynsla þeirra nemenda sem þegar hafa starfsreynslu verður nýtt í umræðum og verkefnavinnu.
Námskeiðið er að stórum hluta verklegt. Nemendur vinna verkefni í tímum þar sem þeir fá þjálfun í notkun þeirra tækja og aðferða sem fjallað er um og undirbúa sig jafnframt fyrir heimaverkefni námskeiðsins.
Nýjar raddir í þýðingafræði (ÞÝÐ029F)
ATH.: Þetta námskeið er vanalega kennt á vormisseri en færist yfir á haustmisseri 2025 vegna rannsóknarleyfis kennara, það verður aftur á kennsluskrá á vormisseri 2027.
Á undanförnum áratugum hefur ný orðræða haslað sér völl innan þýðingafræði. Félagsfræðileg og menningarfræðileg viðhorf skipta meira máli en áður. Athyglin beinist þannig að hlutverki þýðinga í hinum hnattvædda heimi, einkum í fjölmála samfélögum og jafnvel á átaka- og hættusvæðum. Starfsemi félaga- og andspyrnuhreyfinga fer oftar en ekki fram á sviði þýðinga. Feminísk þýðingafræði er sterk og blómstrandi grein fagsins.
Rannsóknir beinast einnig að hlutverki þýðenda, starfsumhverfi þeirra og samstarfi við aðra aðila í þýðingarferlinu. Þannig eru t.d. hliðartextar rannsakaðir sem þýðendur semja eða gögn í einkaskjalasöfnum þeirra athuguð. Ekki má gleyma að ný þýðingartækni breytir starfi þýðenda en getur einnig haft mótandi áhrif á textagerð og þróun tungumála.
Í málstofunni kynnast nemendur nýjum rannsóknum í þýðingafræði.
Nemendur flytja erindi í tíma, þeir geta valið að skrifa fræðilega ritgerð, stunda þýðingarýni eða þýða texta að eigin vali. Málstofan er vettvangur akademískrar samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opinská skoðanaskipti eru í fyrirrúmi.
Þýðingasaga (ÞÝÐ030F)
Fjallað um sögu þýðinga, einkum á Vesturlöndum og svo á Íslandi. Farið verður yfir helstu hátinda þýðingasögunnar frá fornöld til nútíma. Litið verður á valda texta sem markað hafa þáttaskil í þýðingasögu eins og reyndar bókmennta- og mannkynssögunni (Cicero, Hóras, Hierónymus, Erasmus, Lúther, Oddur, Dolet o.fl.). Einkum verður litið til röksemda og verka þýðenda á sömu sviðum til samanburðar, t.d. biblíuþýðenda, ljóðaþýðenda o.s.frv. Nemendur taka fyrir einn fræðimann eða stefnu og halda erindi auk þess sem þýddur verður texti á því sviði. Einnig þýða nemendur bókmenntatexta frá því fyrir 1900. Námskeiðinu lýkur síðan með málstofu í þýðingarýni þar sem nemendur rýna í eina þýðingu að eigin vali.
- Annað ár
- Haust
- Meistararitgerð í þýðingafræðum
- Rannsóknarverkefni vegna MA-ritgerðar
- Vor
- Meistararitgerð í þýðingafræðum
Meistararitgerð í þýðingafræðum (ÞÝÐ444L)
Meistararitgerð í þýðingafræðum
Rannsóknarverkefni vegna MA-ritgerðar (ÞÝÐ904F)
Nemendur undirbúa lokaritgerðir sínar undir handleiðslu kennara. Þeir velja sér efni og aðferð, afla sér heimildir og undirbúa ritgerðina þannig að þeir geta klárað hana á innan við misseri.
Námsmat: Nemendur flytja munnlegt erindi. Þeir leggja fram heimildaskrá og beinagrind að ritgerðinni.
Umsjón: Gauti Kristmannsson, Marion Lerner
Meistararitgerð í þýðingafræðum (ÞÝÐ444L)
Meistararitgerð í þýðingafræðum
- Óháð námsári
- Haust
- Bókmenntaþýðingar
- Málnotkun og framsetning: Danska
- Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
- Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
- Tungumál og menning I
- Menningarfræði og þjóðfélagsrýni
- Að segja eða þegja? Hliðartextar í þýðingum.
- Ritstjórn og fræðileg skrif
- Vor
- Danskt stjórnkerfi, saga og menning
- Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
- Einstaklingsverkefni í þýðingafræði
- Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð
- Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi?
- Nytjaþýðingar
- Mál og samfélag
- Íslensk og erlend setningagerð
- Miðlun og menning
- Óháð misseri
Bókmenntaþýðingar (DAN702F)
Fjallað verður um þýðingar bókmennta milli íslensku og dönsku. Nemendur fá yfirlit yfir sögu dansk-íslenskra bókmenntaþýðinga og fá þjálfun í þýðingarýni með því að greina mismunandi þýdd verk frá ólíkum tímum. M.a. þurfa nemendur að geta áttað sig á þeim áskorunum sem þýðandinn stendur frammi fyrir og hvaða leiðir hann hefur til úrlausnar.
Málnotkun og framsetning: Danska (DAN703F)
Námskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ602F)
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ601F)

Tungumál og menning I (MOM301F)
Viðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.
Menningarfræði og þjóðfélagsrýni (MFR701F)
Í námskeiðinu er litið yfir sögu menningarfræðinnar og sjónum beint að gildi hennar sem róttæks forms þjóðfélagsrýni. Lesnir verða textar lykilhöfunda 19. öld og til samtímans. Í forgrunni er sjálft menningarhugtakið og spurningin um gildi þess fyrir gagnrýna umræðu um þjóðfélag, sögu og samtíma. Fjallað er um samspil gagnrýni og fræða og hvernig menningarfræðin setur slíkt samspil í forgrunn. Þetta kemur fram jafnt í textum eldri og yngri höfunda og skapar togstreitu sem hefur á undanförnum áratugum verið frjór jarðvegur allra hugvísinda og einkennt samhengi þeirra við menningarpólitíska hugsun. Til grundvallar eru lögð hugtök á borð við hugmyndafræði, vald, forræði, kyngervi og orðræða.
Að segja eða þegja? Hliðartextar í þýðingum. (ÞÝÐ705F)
Á þýðandi að segja frá þýðingarvinnu sinni? Á hann að vera sýnilegur í marktextanum eða frekar að halda sig til hlés þannig að ekki beri á að um þýðingu sé að ræða?
Í málstofunni verður farið yfir helstu hliðartexta sem geta fylgt þýðingum, svo sem for- og eftirmála, neðanmáls- og aftanmálsgreinar, titla, tileinkanir, viðbætur af ýmsum toga en einnig þýðingadagbækur, viðtöl, greinaskrif o.fl. Rétt eins og hlutverk þýðandans hefur breyst í aldanna rás hafa vægi og hlutverk texta af þessum toga einnig breyst, sem og afstaða til þeirra.
Í málstofunni ætlum við að kynnast orðræðu í kringum notkun hliðartexta við þýðingar, að fræðast um rannsóknir sem hafa verið gerðar á hliðartextum þýðenda en einnig að prófa okkur áfram með eigin þýðingar og notkun hliðartexta eða þýðingarýni.
Nemendur flytja erindi í tíma, þýða texta að eigin vali eða semja ritgerð um fræðilegt efni eða þýðingarýni. Málstofan byggir á akademískri samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opin skoðanaskipti eru í fyrirrúmi. Undir lok misseris er unnið saman í vinnumiðjum.
Ritstjórn og fræðileg skrif (ÍSL101F)
Þjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg, bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).
Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.
Danskt stjórnkerfi, saga og menning (DAN802F)
Markmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist yfirsýn yfir sögulega, pólitíska og menningarlega þróun í dönskum stjórnarháttum á 20. öld og fram til dagsins í dag – með áherslu á tímabilið: Frá einveldi til fulltrúalýðræðis. Í námskeiðinu verður fjallað um danska velferðarmódelið og lýðræðislegt öryggisnet í ljósi þjóðarbúskapar, landafræði, lýðfræði og trúarbragða, aðstæðna á vinnumarkaði, stjórnmálakerfis, heilbrigðis- og menntunarkerfis, tengsla Danmerkur við alþjóðasamfélagið og almennra strauma í dönsku samfélagi. Nemendur munu kynna verkefni og ljúka námskeiðinu með skriflegu heimaverkefni.
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ602F)
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði (ÞÝÐ601F)
Einstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.
Tungumál og menning II: Evrópsk menntahefð (MOM402M)
Evrópsk mennta- og umræðuhefð einkennist af sterkum tengslum háskóla og samfélags. Margir áhrifamestu hugsuða Evrópu á 19. og 20. öld störfuðu utan háskólanna og margir þeirra sem áttu hefðbundinn starfsferil innan háskólanna voru líka virkir samfélagsgagnrýnendur, skiptu sér af stjórnmálaumræðu dagsins og höfðu jafnvel talsverð áhrif. Í námskeiðinu lítum við á verk nokkurra valinna evrópskra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að hafa verið áhrifamiklir jafnt í fræðunum sem á vettvangi samfélagsumræðunnar. Um leið hugleiðum við stöðu hins „evrópska“ – að hvaða leyti verk þessara hugsuða eru í eðli sínu evrópumiðuð og að hvaða marki við sjáum skilning á menningarlegri óvissu koma fram.
Tilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi? (AMV604M)
Dæmi um svokölluð „tilbúin tungumál“ (e. constructed languages) má finna allt aftur til 7. aldar en hugmyndir manna um uppruna tungumála og uppbyggingu þeirra eru líklega jafngamlar mannkyninu sjálfu. Tilbúin tungumál eru samin í ýmsum tilgangi, hvort sem það er eingöngu
til yndisauka, til að skapa umgjörð um tilbúinn veruleika, eins og t.d. álfamál Tolkiens og geimverumál Star Trek-heimsins, eða til að einfalda alþjóðasamskipti, eins og esperantó, solresol og volapük eiga að gera. Hver sem tilgangur tilbúna málsins er, þá er ljóst að að baki liggur gríðarleg þekking málhafa á tungumálinu sjálfu og hvaða eiginleika tungumál geta haft – og geta ekki haft – til þess að þau virki sem alvöru tungumál. Í námskeiðinu verður fjallað um ólíkar gerðir tilbúinna tungumála og hugmyndafræðina sem þau byggja á. Fjallað verður um uppbyggingu og eiginleika tilbúinna tungumála og þau skoðuð í samanburði við raunmál (e. natural languages). Einnig verða tilbúin tungumál borin saman við önnur gervimál, eins og bullmál (e. gibberish) og dulmál. Nemendur læra að aðgreina tilbúin tungumál út frá markmiðum og notkunarsviði þeirra. Fjallað verður um málgerðir tilbúinna tungumála og læra nemendur að brjóta niður og rýna í málfræðiformdeildir ólíkra mála með eftirfarandi spurningar að leiðarljósi: Hvað þurfa málhafar að vita um eigið tungumál til að geta tileinkað sér tilbúið tungumál og hvað geta tilbúin tungumál kennt okkur um raunmál?
Nytjaþýðingar (ÞÝÐ803F)
Nemendur æfa nytjaþýðingar á mismunandi nytjatextum. Nemendur þýða á móðurmál sitt undir leiðsögn kennara. Nemendur æfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu við þýðingar. Farið verður yfir gagnleg hjálpartæki og vinnulag sem nýtist í störfum þýðenda. Áhersla er á hagnýt verkefni og umræður um áskoranir tengdar þýðingarvinnunni.
Mál og samfélag (ÍSL004M)
Í þessu námskeiði verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags með aðferðum og hugtökum félagslegra málvísinda og með hliðsjón af alþjóðlegum og innlendum rannsóknum á því sviði.
Rætt verður m.a. um málviðhorf, málsnertingu, mállýskur, málsnið og málstýringu. Hugað verður að ýmsum birtingarmyndum málnotkunar og breytileika í máli og að því hvernig þættir á borð við umhverfi, samhengi og bakgrunn málnotanda hafa áhrif á málnotkun og val málsniðs.
Yfirlit verður veitt um helstu rannsóknaraðferðir, eigindlegar og megindlegar, nýlega strauma í félagslegum málvísindum og aðferðir metnar með tilliti til rannsóknarefnis.
Kynntar verða rannsóknir á viðhorfum til málnotkunar og máls, eigin máls og annarra, ásamt því að ræða hvað óhefðbundin málnotkun hefur í för með sér. Í því samhengi verður sérstök áhersla lögð á mál þeirra sem tala íslensku sem erlent mál og stöðu innflytjenda.
Fjallað verður um stöðu íslensku í dag, einkum gagnvart ensku og öðrum tungumálum. Hugað verður að lögmálum um málstýringu og að hugmyndum fólks um tungumálið fyrr og síðar. Fjallað verður um íslenska málstefnu, málstýringu, málstöðlun og hreintunguhneigð frá ýmsum hliðum, m.a. í samtímalegu og sögulegu ljósi og með hliðsjón af erlendum málsamfélögum.
Til umræðu verður málnotkun tiltekinna félagshópa (t.d. unglinga) með tilliti til félagslegs hlutverks málnotkunarinnar innan hópsins annars vegar og innan málsamfélagsins í heild sinni hins vegar.
Gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefni, hópverkefni eða einstaklingsverkefni, þar sem leitað er svara við ýmsum spurningum sem bornar verða fram í kennslu og umræðu.
Íslensk og erlend setningagerð (ÍSM703F)
Markmið þessa námskeiðs er að efla skilning þátttakenda á setningafræði með því að bera valin atriði í íslenskri setningagerð saman við hliðstæð fyrirbæri í öðrum málum, bæði skyldum og óskyldum. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur hafi nokkra undirstöðuþekkingu í setningafræði en að öðru leyti verður reynt að koma til móts við mismunandi bakgrunn og væntingar nemenda, jafnvel með því að skipta hópnum í einstökum tímum eftir undirstöðu og áhugasviði nemenda. Námskeiðið á þannig bæði að geta nýst framhaldsnemum í íslenskri málfræði og málvísindum, sem hafa fyrst og fremst fræðilegan áhuga á íslenskri setningagerð, en einnig framhaldsnemendum í öðrum tungumálum, nemendum á menntavísindasviði og nemendum í þýðingafræði, enda hafi þeir allir einhverja undirstöðuþekkingu á setningafræði.
Miðlun og menning (HMM240F)
Í námskeiðinu er menningarhugtakið teknar til gagnrýninnar skoðunar. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis því sem hlutverk, skilyrði og áhrif menningar í samtímanum eru vegin og metin. Markmiðið er að skapa samræðu fræðilegrar umræðu um menningararf, menningarstefnu og menningarlega sjálfbærni við praktísk úrlausnarefni sem tengjast miðlun menningar. Þannig er hugað að samspili menningarlífs við félagslegar, pólitískar og hagrænar aðstæður í sögu og samtíð og kannað hvernig þessir þættir bæði skilyrða og gera mögulega menningarmiðlun í samtímanum. Skoðað er hvernig menningararfur, hefðir, félagslegt minni, hugmyndir um upprunaleika og sjálfsmynd hafa áhrif á mótun og endursköpun menningar og hvernig nota má hugtök eins og „menningarlegt auðmagn“, „menningarlegt forræði“ og „orðræða um menningararf“ til að greina og skilja birtingarmyndir menningar.
Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.
- Haust
- Námskeiðslýsing
Inngangsnámskeið í fræðunum þar sem farið verður yfir helstu kenningar tuttugustu aldar á þessu sviði. Nemendur lesa lykiltexta úr fræðunum (sem sumir eru nú til í íslenskri þýðingu), flytja erindi um einn höfundinn og verk hans, þýða einn slíkan fræðitexta og einn bókmenntatexta að eigin vali.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞetta námskeið er helgað þeirri tækni og tólum sem þýðendur og aðrir tungumálasérfræðingar geta nýtt í störfum sínum. Nemendur kynnast tölvustuddum þýðingakerfum, gervigreind, þýðingaminnum og íðorðastjórnun og læra hvernig hægt er að samtvinna texta og búa til og vinna með þýðingaminni, orðasöfn og önnur máltæknigögn. Einnig verður fjallað um notkun orðabóka á netinu, gagnabanka og annarra hjálpargagna.
Sérstök áhersla verður lögð á gagnrýna notkun tækninnar, mat á gæðum úttaks og atriði er varða trúnað, persónuvernd og meðferð gagna.
Fjallað verður um starfsumhverfi þýðandans og áhrif tækniþróunar á þýðingastörf. Einnig verður farið yfir hagnýt atriði sem geta hjálpað sjálfstætt starfandi þýðendum að afla sér verkefna og fóta sig á vinnumarkaði og í gigg-hagkerfinu. Reynsla þeirra nemenda sem þegar hafa starfsreynslu verður nýtt í umræðum og verkefnavinnu.
Námskeiðið er að stórum hluta verklegt. Nemendur vinna verkefni í tímum þar sem þeir fá þjálfun í notkun þeirra tækja og aðferða sem fjallað er um og undirbúa sig jafnframt fyrir heimaverkefni námskeiðsins.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingATH.: Þetta námskeið er vanalega kennt á vormisseri en færist yfir á haustmisseri 2025 vegna rannsóknarleyfis kennara, það verður aftur á kennsluskrá á vormisseri 2027.
Á undanförnum áratugum hefur ný orðræða haslað sér völl innan þýðingafræði. Félagsfræðileg og menningarfræðileg viðhorf skipta meira máli en áður. Athyglin beinist þannig að hlutverki þýðinga í hinum hnattvædda heimi, einkum í fjölmála samfélögum og jafnvel á átaka- og hættusvæðum. Starfsemi félaga- og andspyrnuhreyfinga fer oftar en ekki fram á sviði þýðinga. Feminísk þýðingafræði er sterk og blómstrandi grein fagsins.
Rannsóknir beinast einnig að hlutverki þýðenda, starfsumhverfi þeirra og samstarfi við aðra aðila í þýðingarferlinu. Þannig eru t.d. hliðartextar rannsakaðir sem þýðendur semja eða gögn í einkaskjalasöfnum þeirra athuguð. Ekki má gleyma að ný þýðingartækni breytir starfi þýðenda en getur einnig haft mótandi áhrif á textagerð og þróun tungumála.
Í málstofunni kynnast nemendur nýjum rannsóknum í þýðingafræði.
Nemendur flytja erindi í tíma, þeir geta valið að skrifa fræðilega ritgerð, stunda þýðingarýni eða þýða texta að eigin vali. Málstofan er vettvangur akademískrar samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opinská skoðanaskipti eru í fyrirrúmi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingFjallað um sögu þýðinga, einkum á Vesturlöndum og svo á Íslandi. Farið verður yfir helstu hátinda þýðingasögunnar frá fornöld til nútíma. Litið verður á valda texta sem markað hafa þáttaskil í þýðingasögu eins og reyndar bókmennta- og mannkynssögunni (Cicero, Hóras, Hierónymus, Erasmus, Lúther, Oddur, Dolet o.fl.). Einkum verður litið til röksemda og verka þýðenda á sömu sviðum til samanburðar, t.d. biblíuþýðenda, ljóðaþýðenda o.s.frv. Nemendur taka fyrir einn fræðimann eða stefnu og halda erindi auk þess sem þýddur verður texti á því sviði. Einnig þýða nemendur bókmenntatexta frá því fyrir 1900. Námskeiðinu lýkur síðan með málstofu í þýðingarýni þar sem nemendur rýna í eina þýðingu að eigin vali.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Haust
- Námskeiðslýsing
Meistararitgerð í þýðingafræðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðarÞÝÐ904FRannsóknarverkefni vegna MA-ritgerðarSkyldunámskeið5Skyldunámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingNemendur undirbúa lokaritgerðir sínar undir handleiðslu kennara. Þeir velja sér efni og aðferð, afla sér heimildir og undirbúa ritgerðina þannig að þeir geta klárað hana á innan við misseri.
Námsmat: Nemendur flytja munnlegt erindi. Þeir leggja fram heimildaskrá og beinagrind að ritgerðinni.
Umsjón: Gauti Kristmannsson, Marion Lerner
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingMeistararitgerð í þýðingafræðum
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðHluti af heildarstærð verkefnis/ritgerðar- Haust
- Námskeiðslýsing
Fjallað verður um þýðingar bókmennta milli íslensku og dönsku. Nemendur fá yfirlit yfir sögu dansk-íslenskra bókmenntaþýðinga og fá þjálfun í þýðingarýni með því að greina mismunandi þýdd verk frá ólíkum tímum. M.a. þurfa nemendur að geta áttað sig á þeim áskorunum sem þýðandinn stendur frammi fyrir og hvaða leiðir hann hefur til úrlausnar.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNámskeiðið er bæði fræðilegt og hagnýtt. Nemendur rifja upp helstu reglur um danskt mál, málnotkun og stílbrögð. Þeir greina hvernig ólíkar textagerðir taka mið af mismunandi tilgangi tjáskipta. Áhersla verður einnig lögð á ritfærni nemenda á dönsku og þeir þjálfaðir í notkun hjálpargagna.
Fjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erNetnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingEinstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingEinstaklingsverkefni í þýðingafræði í samráði við umsjónarkennara.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingViðfangsefni námskeiðsins eru margvísleg tengsl menningar og tungumála út frá hugmyndasögulegum, félags- og málvísindalegum forsendum. Gömul og ný heimsmál verða kynnt, tilurð þeirra, áhrif og afleiðingar. Fjallað verður um talmál og ritmál: Hvað er skrifað, hvers vegna og hvernig? Reglur og ólík viðhorf til tungumála eru rædd og velt verður upp spurningum um tengsl mannsins við hugsun og tungumál.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er litið yfir sögu menningarfræðinnar og sjónum beint að gildi hennar sem róttæks forms þjóðfélagsrýni. Lesnir verða textar lykilhöfunda 19. öld og til samtímans. Í forgrunni er sjálft menningarhugtakið og spurningin um gildi þess fyrir gagnrýna umræðu um þjóðfélag, sögu og samtíma. Fjallað er um samspil gagnrýni og fræða og hvernig menningarfræðin setur slíkt samspil í forgrunn. Þetta kemur fram jafnt í textum eldri og yngri höfunda og skapar togstreitu sem hefur á undanförnum áratugum verið frjór jarðvegur allra hugvísinda og einkennt samhengi þeirra við menningarpólitíska hugsun. Til grundvallar eru lögð hugtök á borð við hugmyndafræði, vald, forræði, kyngervi og orðræða.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðÞÝÐ705FAð segja eða þegja? Hliðartextar í þýðingum.Valnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingÁ þýðandi að segja frá þýðingarvinnu sinni? Á hann að vera sýnilegur í marktextanum eða frekar að halda sig til hlés þannig að ekki beri á að um þýðingu sé að ræða?
Í málstofunni verður farið yfir helstu hliðartexta sem geta fylgt þýðingum, svo sem for- og eftirmála, neðanmáls- og aftanmálsgreinar, titla, tileinkanir, viðbætur af ýmsum toga en einnig þýðingadagbækur, viðtöl, greinaskrif o.fl. Rétt eins og hlutverk þýðandans hefur breyst í aldanna rás hafa vægi og hlutverk texta af þessum toga einnig breyst, sem og afstaða til þeirra.
Í málstofunni ætlum við að kynnast orðræðu í kringum notkun hliðartexta við þýðingar, að fræðast um rannsóknir sem hafa verið gerðar á hliðartextum þýðenda en einnig að prófa okkur áfram með eigin þýðingar og notkun hliðartexta eða þýðingarýni.
Nemendur flytja erindi í tíma, þýða texta að eigin vali eða semja ritgerð um fræðilegt efni eða þýðingarýni. Málstofan byggir á akademískri samvinnu nemenda og kennara þar sem virk þátttaka, gagnrýnin hugsun og opin skoðanaskipti eru í fyrirrúmi. Undir lok misseris er unnið saman í vinnumiðjum.
Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÞjálfun í ýmsum þáttum er varða ritun fræðilegs efnis og ritstjórn. Ólíkar gerðir fræðilegra ritsmíða skoðaðar og metnar. Þjálfun í því að gera athugasemdir við skipulag og framsetningu á fræðilegum texta og í öðrum þáttum ritstjórnar. Áhersla lögð á ritun fræðilegra greina, en einnig hugað að samningu smærri verka (ráðstefnuútdrátta, ritdóma) og stærri (M.A.-ritgerða, doktorsritgerða, bóka). Fjallað um rannsóknaráætlanir, frágang handrita og ritstuld. Tekin dæmi af textum um ýmis efni, einkum málfræðileg, bókmenntaleg og sagnfræðileg. Stuðst við bókina Skrifaðu bæði skýrt og rétt (Höskuldur Þráinsson 2015).
Námskeiðið er opið nemendum á mörgum námsleiðum í MA-námi á Hugvísindasviði skv. reglum viðkomandi greina. Nemendur á MA-stigi í íslenskum bókmenntum, íslenskri málfræði, íslenskum fræðum og íslenskukennslu geta fengið námskeiðið metið sem hluta af þeirri skyldu sem þeir þurfa að uppfylla í meistarastigsnámskeiðum í íslenskum bókmenntum eða íslenskri málfræði. Nemendur í MA-námi í íslenskukennslu geta þó ekki haft þetta námskeið sem eina málfræði- eða bókmenntanámskeiðið á MA-ferlinum.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Vor
NámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að nemendur öðlist yfirsýn yfir sögulega, pólitíska og menningarlega þróun í dönskum stjórnarháttum á 20. öld og fram til dagsins í dag – með áherslu á tímabilið: Frá einveldi til fulltrúalýðræðis. Í námskeiðinu verður fjallað um danska velferðarmódelið og lýðræðislegt öryggisnet í ljósi þjóðarbúskapar, landafræði, lýðfræði og trúarbragða, aðstæðna á vinnumarkaði, stjórnmálakerfis, heilbrigðis- og menntunarkerfis, tengsla Danmerkur við alþjóðasamfélagið og almennra strauma í dönsku samfélagi. Nemendur munu kynna verkefni og ljúka námskeiðinu með skriflegu heimaverkefni.

Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðMOM402MTungumál og menning II: Evrópsk menntahefðValnámskeið5Valnámskeið á námsleiðinni5 einingar, ETCSNámskeiðslýsingEvrópsk mennta- og umræðuhefð einkennist af sterkum tengslum háskóla og samfélags. Margir áhrifamestu hugsuða Evrópu á 19. og 20. öld störfuðu utan háskólanna og margir þeirra sem áttu hefðbundinn starfsferil innan háskólanna voru líka virkir samfélagsgagnrýnendur, skiptu sér af stjórnmálaumræðu dagsins og höfðu jafnvel talsverð áhrif. Í námskeiðinu lítum við á verk nokkurra valinna evrópskra hugsuða sem eiga það sameiginlegt að hafa verið áhrifamiklir jafnt í fræðunum sem á vettvangi samfélagsumræðunnar. Um leið hugleiðum við stöðu hins „evrópska“ – að hvaða leyti verk þessara hugsuða eru í eðli sínu evrópumiðuð og að hvaða marki við sjáum skilning á menningarlegri óvissu koma fram.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuFjarnám: Nemendur geta verið staðsettir hvar sem erForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðAMV604MTilbúin tungumál: Hvað geta álfamál Tolkiens og esperantó kennt okkur um málvísindi?Valnámskeið10Valnámskeið á námsleiðinni10 einingar, ETCSNámskeiðslýsingDæmi um svokölluð „tilbúin tungumál“ (e. constructed languages) má finna allt aftur til 7. aldar en hugmyndir manna um uppruna tungumála og uppbyggingu þeirra eru líklega jafngamlar mannkyninu sjálfu. Tilbúin tungumál eru samin í ýmsum tilgangi, hvort sem það er eingöngu
til yndisauka, til að skapa umgjörð um tilbúinn veruleika, eins og t.d. álfamál Tolkiens og geimverumál Star Trek-heimsins, eða til að einfalda alþjóðasamskipti, eins og esperantó, solresol og volapük eiga að gera. Hver sem tilgangur tilbúna málsins er, þá er ljóst að að baki liggur gríðarleg þekking málhafa á tungumálinu sjálfu og hvaða eiginleika tungumál geta haft – og geta ekki haft – til þess að þau virki sem alvöru tungumál. Í námskeiðinu verður fjallað um ólíkar gerðir tilbúinna tungumála og hugmyndafræðina sem þau byggja á. Fjallað verður um uppbyggingu og eiginleika tilbúinna tungumála og þau skoðuð í samanburði við raunmál (e. natural languages). Einnig verða tilbúin tungumál borin saman við önnur gervimál, eins og bullmál (e. gibberish) og dulmál. Nemendur læra að aðgreina tilbúin tungumál út frá markmiðum og notkunarsviði þeirra. Fjallað verður um málgerðir tilbúinna tungumála og læra nemendur að brjóta niður og rýna í málfræðiformdeildir ólíkra mála með eftirfarandi spurningar að leiðarljósi: Hvað þurfa málhafar að vita um eigið tungumál til að geta tileinkað sér tilbúið tungumál og hvað geta tilbúin tungumál kennt okkur um raunmál?Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingNemendur æfa nytjaþýðingar á mismunandi nytjatextum. Nemendur þýða á móðurmál sitt undir leiðsögn kennara. Nemendur æfa sjálfstæð vinnubrögð og samvinnu við þýðingar. Farið verður yfir gagnleg hjálpartæki og vinnulag sem nýtist í störfum þýðenda. Áhersla er á hagnýt verkefni og umræður um áskoranir tengdar þýðingarvinnunni.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ þessu námskeiði verður fjallað um samspil tungumáls og samfélags með aðferðum og hugtökum félagslegra málvísinda og með hliðsjón af alþjóðlegum og innlendum rannsóknum á því sviði.
Rætt verður m.a. um málviðhorf, málsnertingu, mállýskur, málsnið og málstýringu. Hugað verður að ýmsum birtingarmyndum málnotkunar og breytileika í máli og að því hvernig þættir á borð við umhverfi, samhengi og bakgrunn málnotanda hafa áhrif á málnotkun og val málsniðs.
Yfirlit verður veitt um helstu rannsóknaraðferðir, eigindlegar og megindlegar, nýlega strauma í félagslegum málvísindum og aðferðir metnar með tilliti til rannsóknarefnis.
Kynntar verða rannsóknir á viðhorfum til málnotkunar og máls, eigin máls og annarra, ásamt því að ræða hvað óhefðbundin málnotkun hefur í för með sér. Í því samhengi verður sérstök áhersla lögð á mál þeirra sem tala íslensku sem erlent mál og stöðu innflytjenda.
Fjallað verður um stöðu íslensku í dag, einkum gagnvart ensku og öðrum tungumálum. Hugað verður að lögmálum um málstýringu og að hugmyndum fólks um tungumálið fyrr og síðar. Fjallað verður um íslenska málstefnu, málstýringu, málstöðlun og hreintunguhneigð frá ýmsum hliðum, m.a. í samtímalegu og sögulegu ljósi og með hliðsjón af erlendum málsamfélögum.Til umræðu verður málnotkun tiltekinna félagshópa (t.d. unglinga) með tilliti til félagslegs hlutverks málnotkunarinnar innan hópsins annars vegar og innan málsamfélagsins í heild sinni hins vegar.
Gert er ráð fyrir að nemendur vinni verkefni, hópverkefni eða einstaklingsverkefni, þar sem leitað er svara við ýmsum spurningum sem bornar verða fram í kennslu og umræðu.Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingMarkmið þessa námskeiðs er að efla skilning þátttakenda á setningafræði með því að bera valin atriði í íslenskri setningagerð saman við hliðstæð fyrirbæri í öðrum málum, bæði skyldum og óskyldum. Gert er ráð fyrir því að allir nemendur hafi nokkra undirstöðuþekkingu í setningafræði en að öðru leyti verður reynt að koma til móts við mismunandi bakgrunn og væntingar nemenda, jafnvel með því að skipta hópnum í einstökum tímum eftir undirstöðu og áhugasviði nemenda. Námskeiðið á þannig bæði að geta nýst framhaldsnemum í íslenskri málfræði og málvísindum, sem hafa fyrst og fremst fræðilegan áhuga á íslenskri setningagerð, en einnig framhaldsnemendum í öðrum tungumálum, nemendum á menntavísindasviði og nemendum í þýðingafræði, enda hafi þeir allir einhverja undirstöðuþekkingu á setningafræði.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeiðNámskeiðslýsingÍ námskeiðinu er menningarhugtakið teknar til gagnrýninnar skoðunar. Kenningar og skilgreiningar eru reifaðar samtímis því sem hlutverk, skilyrði og áhrif menningar í samtímanum eru vegin og metin. Markmiðið er að skapa samræðu fræðilegrar umræðu um menningararf, menningarstefnu og menningarlega sjálfbærni við praktísk úrlausnarefni sem tengjast miðlun menningar. Þannig er hugað að samspili menningarlífs við félagslegar, pólitískar og hagrænar aðstæður í sögu og samtíð og kannað hvernig þessir þættir bæði skilyrða og gera mögulega menningarmiðlun í samtímanum. Skoðað er hvernig menningararfur, hefðir, félagslegt minni, hugmyndir um upprunaleika og sjálfsmynd hafa áhrif á mótun og endursköpun menningar og hvernig nota má hugtök eins og „menningarlegt auðmagn“, „menningarlegt forræði“ og „orðræða um menningararf“ til að greina og skilja birtingarmyndir menningar.
Námskeiðið er ekki kennt í fjarnámi.
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónuForkröfur eru settar fyrir þetta námskeið- Óháð misseri
Annað ár- Haust

Óháð námsári- Haust