""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum (t.d. dönsku eða öðrum Norðurlandamálum).
Lengd náms
Tvö misseri
Námsform
Staðnámsleið Netnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Hefur þú áhuga á jafnréttismálum?
  • Langar þig að greina viðfangsefni samtímans út frá kynja- og margbreytileikasjónarmiðum?
  • Vilt þú afla þér undirstöðuþekkingar til að efla jafnréttisstarf?
  • Vilt þú rýna stöðu ólíkra hópa á einkasviðinu og á opinberum vettvangi, í íslensku samfélagi og í alþjóðlegum samanburði?
  • Vilt þú fara í stutt og hagnýtt nám?

Örnám í hagnýtri jafnréttisfræði tengir fræðilegan grunn kynja- og margbreytileikafræða við framkvæmd jafnréttisstarfs. Í náminu er fjallað um stöðu ólíkra hópa í íslensku samfélagi, um opinbera jafnréttisstefnu og framkvæmd hennar og um verkfæri á borð við samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða og kynjuð fjármál.

Eitt hlutverka kynja- og margbreytileikafræða er að renna stöðum undir jafnréttisstarf í landinu og mæta þeim kröfum sem hið opinbera regluverk setur okkur.

Námið er skipulagt sem hlutanám til eins árs og hægt er að stunda það alfarið í netnámi án rauntímaþátttöku. Það hentar því vel þeim sem vilja efla þekkingu sína á jafnréttismálum samhliða starfi.

Vilji nemandi halda áfram fæst örnámið metið inn í viðbótarpróf og MA-nám í kynja- og margbreytileikafræði.

Uppbygging náms

Námið er 30 einingar og er skipulagt sem hluta nám til eins árs.

Skyldunámskeið á námsleiðinni:

  • Almenn kynjafræði, 10 einingar
  • Kenningar í kynjafræði, 10 einingar
  • Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags, 10 einingar

Meðal viðfangsefna

  • Hvað merkir jafnrétti, og hvernig hefur skilningur á hugtakinu breyst?
  • Hvernig fléttast kyngervi saman við kynhneigð, uppruna, stétt, aldur, fötlun og aðra félagslega áhrifaþætti?
  • Hvernig móta samtvinnaðir félagslegir áhrifaþættir lífsskilyrði og möguleika fólks?
  • Hvaða kröfur gera jafnréttislög og alþjóðasamþykktir til stofnana samfélagsins?
  • Hvernig eru kynja- og jafnréttissjónarmið samþætt stefnumótun og ákvarðanatöku hjá hinu opinbera?

Fyrirkomulag kennslu

Flest námskeið námsleiðarinnar eru kennd í fjarnámi, netnámi.

Námið er kennt á íslensku en lesefnið er á ensku.

Meginmarkmið

Miðað er að því að nemendur:

  • öðlist almennan grunn í kynja- og margbreytileikafræðum
  • geti beitt hugtökum og kenningum kynja- og margbreytileikafræða á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt
  • þekki sögu og merkingu jafnréttishugtaksins og helstu verkfæri jafnréttisstarfs
  • geti greint stöðu ólíkra hópa út frá kynja- og margbreytileikasjónarmiðum

Annað

Í framhaldi geta nemendur, að uppfylltum skilyrðum, fengið örnámið metið inn í viðbótarpróf á meistarastigi og MA-nám í kynja- og margbreytileikafræði. Þau sem vilja heilt ár á meistarastigi geta kynnt sér viðbótarpróf í kynja- og margbreytileikafræði (60 einingar).

Sjá viðbótarpróf í kynja- og margbreytileikafræði

Sjá MA-nám í kynja- og margbreytileikafræði

BA-, B.Ed.- eða BS-gráða eða sambærilegt nám.

Ljúka þarf 30 ECTS einingum. Örnámið samanstendur af þremur skyldunámskeiðum. Nemendur með kynja- og margbreytileikafræði sem aukagrein í grunnnámi og hafa lokið námskeiðunum Inngangur að kynjafræði og kynjafræðikenningar velja önnur námskeið í staðinn í samráði við umsjónarmann. 

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:
  • Ferilskrá (CV)
  • Prófskírteini/námsyfirlit

Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

Uppsetning náms

Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og misserum.

Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

Óháð námsári | Haust
Almenn kynjafræði (KYN101F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Kenningar í kynjafræði (KYN211F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári | Vor
Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags (KYN202F)
Skyldunámskeið á námsleiðinni
10 einingar, ETCS
Námskeiðslýsing

Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

Kennslutungumál: Íslenska
Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
Óháð námsári
  • Haust
  • KYN101F
    Almenn kynjafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um helstu viðfangsefni kynjafræða í ljósi margbreytileika nútímasamfélaga. Kynjafræðilegu sjónarhorni er beitt til að gefa yfirlit yfir stöðu og aðstæður ólíkra hópa í samfélaginu. Fjallað er um upphaf og þróun kvennabaráttu og kynjafræða. Kynnt verða helstu hugtök kynjafræða svo sem kyn, kyngervi, eðlishyggja og mótunarhyggja. Skoðað er hvernig kyn er ávallt samtvinnað öðrum samfélagslegum áhrifabreytum.

    Kennslufyrirkomulag: Námið byggir á vendikennslu sem þýðir að allir fyrirlestrar verða aðgengilegir á Canvas. Stað- og fjarnemar mæta vikulega í umræðutíma í háskólanum eða á Teams og netnemar taka vikulega þátt í umræðum á Canvas.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • Vor
  • KYN211F
    Kenningar í kynjafræði
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Í námskeiðinu er fjallað um heimspekilegan og kenningalegan grundvöll kynjafræða og gagnrýnið og þverfræðilegt inntak þeirra. Fjallað er um birtingarform og merkingu kyns (e. sex) og kyngervis (e. gender) í tungumáli og menningu, sögu, samfélagi og vísindum. Sjónarmið fræðanna eru kynnt og tengsl þeirra við aðferðafræði. Þá eru nemendur þjálfaðir í að beita á sjálfstæðan og gagnrýninn hátt fræðilegum hugtökum og aðferðum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
  • KYN202F
    Hagnýting jafnréttisfræða: Frá bróðurparti til systkinalags
    Skyldunámskeið
    10
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    10 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Jafnréttismál eru hluti af hinu opinberu regluverki á Íslandi og sífellt meiri kröfur eru gerðar á því sviði. Námskeiðið veitir hagnýtan undirbúning fyrir margvísleg störf í almenna og opinbera geiranum þar sem þekking og þjálfun í jafnréttismálum er nauðsynleg.

    Námskeiðið er hagnýtur undirbúningur fyrir störf í stjórnun, opinberri stjórnsýslu, fræðslu, kennslu, fjölmiðlun og önnur sérhæfð störf. Markmið námskeiðsins er að kynna grundvallaratriði jafnréttisfræða og þjálfa nemendur í hagnýtu jafnréttisstarfi. Fjallað er um sögu og merkingu jafnréttishugtaksins, með sérstakri áherslu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða (e. gender mainstreaming) og kynjaða fjárlagagerð (e. gender budgeting). Fjallað er um birtingarform kyns og mikilvægi kynjavitundar í samfélagslegri umræðu og stefnumótun. Þá eru kynntar hugmyndir um jafnrétti margbreytileikans og samtvinnun ólíkra mismunarbreyta (e. intersectionality). Í nútímasamfélögum eru gerðar síauknar kröfur um þekkingu á jafnréttismálum. Ísland er aðili að alþjóðasamþykktum um jafnrétti og í lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla er kveðið á um kynjasamþættingu í stefnumótun og ákvörðunum á öllum sviðum samfélagsins. Slík samþætting krefst þekkingar á jafnréttismálum og gera jafnréttislög ráð fyrir jafnréttisfræðslu á öllum skólastigum.

    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.




Frekari upplýsingar

Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

Möguleikar

Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

Skilyrði

Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

  • 90 ECTS einingar í grunnnámi
  • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

Sjá frekari skilyrði

Námskeið metin til eininga

Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

Dæmi um starfsvettvang:

  • Kennslu og fræðslustörf
  • Fjölmiðla- og upplýsingastörf
  • Verkefna- og starfsmannastjórnun
  • Hagsmunasamtök og frjáls félagasamtök
  • Jafnréttisráðgjöf

Listinn er ekki tæmandi.

Kynjafræðin hefur mikil og sterk tengsl við samfélagið. Núverandi og fyrrverandi nemendur eru afar virkir í samfélagsumræðunni, frjálsum félagasamstökum og öðrum lýðræðishræringum samfélagsins.

Við Háskóla Íslands er starfrækt Femínistafélag Háskóla Íslands og Q félag hinsegin stúdenta.

Umsagnir nemenda
""
Nám við Háskóla Íslands býr þig undir þátttöku í fjölbreyttu og síbreytilegu atvinnulífi á nær öllum sviðum samfélagsins.
Gagnlegt efni
Aurora Cooperation

Námsvalshjólið

Á hverju hefur þú áhuga?

Aurora Cooperation

Veldu framhaldsnám

Skref fyrir skref

Hafðu samband
Félagsvísindasvið
Virka daga 09:00 - 15:00
Nemenda og kennsluþjónusta

Nemenda- og kennsluþjónusta FVS

Þjónustuborð Háskólatorgi er þjónustuaðgangur fyrir alla þjónustu. 

Fylgdu okkur á Youtube og Facebook

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil