Námsform lýsir því hvernig námið er kennt, þ.e. hvort um er að ræða staðnám, fjarnám eða önnur námsform. Í mörgum námsleiðum er hægt að taka stök námskeið eða jafnvel allstóran hluta námsins í fjarnámi. Í sumum kennslugreinum er eðli námsins þó þannig að erfitt er að bjóða það sem fjarnám.
Athugið að hugsanlegt er að námsleið sé merkt sem bæði staðnám og fjarnám í kennsluskrá. Það þýðir að hægt er að ljúka henni annaðhvort í staðnámi eða fjarnámi. Á sama hátt getur námskeið verið flokkað sem bæði fjarnám og netnám.