nemandi
Námsstig og lengd náms

Háskóli Íslands býður upp á nám á þremur stigum:

  • Grunnnám, í flestum tilvikum í 3 ár, sem lýkur með bakkalárgráðu (BA, BS eða B.Ed.)
  • Framhaldsnám, í eitt og hálft til tvö ár, sem lýkur með meistaragráðu (MA, MS eða M.Ed.)
  • Doktorsnám, í þrjú ár, sem lýkur með doktorsgráðu (Ph.D. eða Ed.D.)

Auk þess eru í boði styttri námsleiðir, örnám, diplómanám og viðbótarpróf, bæði á grunn- og framhaldsstigi.

Fullt nám í eitt ár er metið til 60 eininga, 30 einingar á hvoru misseri.

Einingar við HÍ eru jafngildar ECTS-einingum (European Credit Transfer and Accumulation System).

Umsækjendur verða að sækja um námsleið sem kennd er við HÍ áður en þau skrá sig í námskeið. Ekki er hægt að sækja um einstök námskeið.

Meira um uppbyggingu námsins
University of Iceland, Main building
""

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil