Nemendum í grunnnámi í verkfræði og raunvísindum gefst tækifæri á að vinna rannsóknarverkefni við California Institute of Technology (Caltech). Caltech, sem er í Pasadena, Kaliforníu, er einn fremsti rannsóknaháskóli heims og leggur áherslu á raunvísindi og verkfræði. Verkefnið hefst um miðjan júní og stendur yfir í tíu vikur.
Háskóli Íslands og Caltech hafa átt í samstarfi um SURF (Summer Undergraduate Research Fellowship) sumarrannsóknaverkefni frá árinu 2008. Nemendur vinna tíu vikna rannsóknaverkefni undir handleiðslu reynds leiðbeinanda og býðst að auki að sækja málstofur og taka þátt í fjölbreyttu félagslífi. Nemendur hljóta styrk til dvalarinnar.
Ekki eru veittar einingar fyrir rannsóknaverkefnið, en sækja má um til deildar að það verði skráð í viðauka með prófskírteini (e. Diploma supplement). Þetta er einstakt tækifæri fyrir nemendur sem stefna á framhaldsnám í Bandaríkjunum.
----
Almenn skilyrði
- Umsækjandi skal vera nemandi í grunnnámi við Háskóla Íslands í verkfræði eða raunvísindum(stærðfræði er undanskilin)
- Umsækjandi skal hafa lokið tveimur námsárum hið minnsta þegar rannsóknarverkefnið hefst, en má þó ekki hafa lokið BS-gráðu
- Meðaleinkunn umsækjanda skal að lágmarki vera 7,5
-----
Umsóknarferli
Sótt er um rafrænt og fylgigögn (á ensku) hengd við umsóknina.
Opnað verður fyrir umsóknir í desember
Fylgigögn (öll á ensku):
- Kynningarbréf (e. personal statement) - hámark 600 orð. Kynningarbréfið skal innihalda upplýsingar um rannsóknaráhugasvið nemanda og tilgreina á allt að þrjá vísindamenn við Caltech sem nemandi hefur áhuga á að vinna að rannsóknarverkefni undir leiðsögn hjá.
- Staðfest námsferilsyfirlit ásamt árangursröðun (e. ranking)
- Tvenn meðmæli (e. letter of recommendation) frá kennara við deild umsækjanda. Meðmæli sendist beint til Alþjóðasviðs á ask@hi.is
Á grundvelli umsóknarinnar er hópi umsækjenda boðið í viðtal. Við val á styrkþega er m.a. horft til gæða umsóknar í heild, innihalds kynningarbréfs, námsferils, námsmarkmiða, framtíðaráforma, meðmæla og frammistöðu í viðtali. Háskóli Íslands tilnefnir nemendur til Caltech, sem aðstoðar við að útvega nemandanum leiðbeinanda. Nemandi og leiðbeinandi hans móta í sameiningu rannsóknaráætlun sem skilað er í maí.
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Alþjóðasviði ask@hi.is / 525 4311.