""
Tækifæri til sumarnáms í Evrópu

Nemendur HÍ geta sótt fjölbreytt sumarnám og styttri námskeið við háskóla í Evrópu, meðal annars í gegnum Aurora samstarfsnetið og Erasmus+ og Nordplus-áætlanirnar. Fyrirkomulag, umsóknarferli og styrkmöguleikar eru mismunandi eftir námskeiðum og samstarfsáætlunum.

Aurora sumarnám

Háskóli Íslands er hluti af Aurora, samstarfsneti evrópskra háskóla, og því geta nemendur HÍ sótt sumarnám og styttri námskeið við aðra Aurora-háskóla. Reglulega eru auglýst fjölbreytt námskeið og í sumum tilfellum eru styrkir í boði. Aurora-samstarfið skapar þannig tækifæri fyrir nemendur til að öðlast alþjóðlega reynslu sem hluta af námi sínu við HÍ.

Aurora er eitt af evrópsku háskólanetunum (European University Alliances) sem styrkt eru af Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins. Samstarfið miðar meðal annars að því að efla kennslu og nám og skapa fjölbreytt tækifæri fyrir nemendur til náms og samstarfs þvert á háskóla og landamæri.

Nemendur geta sótt um Aurora-styrk til þátttöku í sumarnámskeiðum við samstarfsháskóla innan Aurora. Styrkveiting er háð því að styrkir séu í boði hverju sinni og að styrkumsókn sé samþykkt af Alþjóðasviði. Alþjóðasvið auglýsir reglulega þau sumarnám og styrki sem eru í boði.

Aurora tækifæri

Erasmus+ sumarnám

Nemendur geta sótt um Erasmus+ styrk fyrir stök námskeið og sumarnám við samstarfsháskóla HÍ í Evrópu. Styttri námsdvöl getur staðið yfir í 5–30 daga.

Til að sumarnámskeið geti verið styrkhæft þarf það að fela í sér bæði staðnám erlendis og nám á netinu, til dæmis svokallað blandað hraðnámskeið (BIP). Ekki er hægt að veita Erasmus+ styrk fyrir sumarnámskeið sem eru alfarið kennd í staðnámi eða alfarið á netinu.

Umsóknarfrestir

Umsóknarfrestir um Erasmus+ styrk eru tvisvar á ári:

  • 15. apríl - fyrir námsdvöl í júní-desember
  • 15. nóvember - fyrir námsdvöl í janúar-maí

Hægt er að sækja um eftir umsóknarfrest en þá þarf að senda tölvupóst á shortmobility@hi.is þegar umsókn hefur verið send inn. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki í forgangi við úthlutun styrkja.

  • Dvalarstyrkur er 79 € á dag fyrstu 14 dagana og 56 € á dag eftir það ef dvölin varir lengur.
  • Ferðastyrkur er 275-1.500 €, eftir áfangastað.
  • Nemendur geta einnig átt kost á viðbótarstyrk þegar við á.

Nánari upplýsingar um styrkupphæðir

Sumarnám á Norðurlöndunum

Nemendur HÍ geta sótt um sumarnám og stök námskeið við samstarfsháskóla á Norðurlöndum. Styrkir geta verið í boði í gegnum Erasmus+, Aurora og Nordplus, en styrkmöguleikar fara eftir samstarfsháskóla og fyrirkomulagi námskeiðsins. Mismunandi skilyrði gilda eftir styrkáætlunum og því er hver umsókn metin sérstaklega með tilliti til styrkmöguleika.

Kostnaður við sumarnám er mismunandi eftir skólum og í sumum tilfellum þarf að greiða þátttöku- eða skólagjöld. Ef gestaskóli gerir kröfu um tilnefningu frá HÍ má hafa samband við Alþjóðasvið.

Nordlys er þverfaglegt samstarfsnet innan Nordplus sem Háskóli Íslands tekur þátt í. Í gegnum netið geta nemendur sótt um námsdvöl við fjölmarga samstarfsháskóla á Norðurlöndum, meðal annars styttri námskeið og sumarnám.

Nemendur geta sótt um Nordplus styrk fyrir stök námskeið eða sumarnám sem stendur yfir í 5 virka daga til 60 daga við samstarfsháskóla HÍ innan Nordlys-samstarfsnetsins.

Umsóknarfrestir eru tvisvar á ári:

  • 15. apríl - fyrir námsdvöl í júní-desember
  • 15. nóvember - fyrir námsdvöl í janúar-maí

Hægt er að sækja um eftir umsóknarfrest en þá þarf að senda tölvupóst á outgoing.europe@hi.is og láta vita þegar umsókn hefur verið send inn. Umsóknir sem berast eftir umsóknarfrest eru ekki í forgangi við úthlutun styrkja.

Styrkupphæðir

  • Dvalarstyrkur er 70–250 € á mánuði, eftir lengd dvalar.
  • Ferðastyrkur er 660 €.

Nemendur geta einnig sótt um viðbótarstyrk vegna fötlunar til að mæta viðbótarkostnaði. Sótt er um viðbótarstyrk til EDUFI (Finnish National Agency for Education).

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil