Nemendur við Háskóla Íslands geta sótt um spennandi sumarnám við samstarfsháskóla í Kína, Singapore, Suður-Kóreu og Taiwan. Námið er í boði á hagstæðum kjörum þar sem skólagjöld eru ýmist mjög lág eða felld niður. Hægt er að sækja um að fá einingar metnar inn í námsferil við HÍ með því að gera námssamning við deild áður en námið hefst. Fyrst er sótt um til Alþjóðasviðs HÍ sem tilnefnir nemendur í sumarskólana.
Háskóli Íslands er í sérstöku samstarfi við Nordic Centre sem býður upp á sumarnámskeið í Kína.
- Nordic Centre, Fudan University, Kína
Norræna setrið við Fudan University í Shanghai býður upp á námskeiðið Business and Innovation in China 2026. Námskeiðið er ætlað nemendum í framhaldsnámi og nemendum á þriðja ári í grunnnámi og veitir 5 ECTS einingar. Aðildarskólar Norræna setursins, þ.á.m. HÍ, geta tilnefnt allt að þrjá nemendur og jafnan komast færri að en vilja. Námskeiðsgjaldið er um 18.000 kr. og innifalið eru m.a. vettvangsferðir í fyrirtæki,https://static1.squarespace.com/static/556563bae4b026b4ede38085/t/6971df1a08ed9809ef155e55/1769070379852/Business+and+Innovation+in+China+2026.pdf gestafyrirlestrar og fleiri viðburðir.
Opnað verður fyrir umsóknir um mánaðarmótin janúar/febrúar.