Hvers vegna rannsóknagagnastefna?
- Stuðla að því að HÍ geti mætt nýjum áskorunum, sem fyrirsjáanlegar eru vegna tækniþróunar t.d. með tilkomu gervigreindarlausna.
- Tryggja að HÍ geti uppfyllt ákvæði laga og kröfur vísindasamfélagsins, þar á meðal ýmissa samkeppnissjóða, um gagnastjórnun, gagnahirðingu, gagnaöryggi og opin vísindi og aðrar reglur eins og t.d. persónuverndarreglur.
- Skýra réttindi og skyldur starfsfólks og nemenda HÍ varðandi söfnun og nýtingu gagna til að tryggja gagnkvæman skilning á eignarrétti og nýtingarrétti á gögnum og afdrifum þeirra við starfs-/námslok.
- Formgera og auka gagnaþjónustu með samstarfi UTS (IREI), Vísnýs (GAGNÍS) og fræðasviða. Þjónustan feli m.a. í sér ráðgjöf við gerð gagnastjórnunaráætlana og varðveislu rannsóknagagna og skapi samtímis fyrirsjáanleika og auðveldi stýringu á álagi á gagnainnviði.