Til að tryggja farsæla innleiðingu á stefnunni mun Háskólinn fylgja eftirfarandi leiðarljósum:
- Akademískur heiðarleiki: Nemendur og starfsfólk bera ábyrgð á öllu efni sem þau leggja fram í eigin nafni og skulu virða reglur og viðmið um siðferði og vönduð vinnubrögð í vísindum. Brot nemenda á fyrirmælum kennara um notkun gervigreindar við verkefnavinnu, ritgerðasmíðar og í prófum varðar eftir atvikum viðurlögum, samkvæmt 19. gr. laga um opinbera háskóla. Ávallt skal gera grein fyrir notkun gervigreindar í samræmi við fyrirmæli.
- Samræmdar leiðbeiningar: Háskólinn mun þróa skýr og samræmd sniðmát fyrir leiðbeiningar um notkun gervigreindar í námskeiðum og í stjórnsýslu til að koma í veg fyrir misræmi og óvissu meðal nemenda og starfsfólks.
- Gagnaöryggi, mannréttindi og persónuvernd: Öll notkun, þróun og innleiðing á gervigreindarkerfum verður í samræmi við gildandi lög um persónuvernd. Gerðar verða skýrar kröfur um meðferð gagna Háskólans hjá þriðju aðilum og starfsfólki veittar skýrar leiðbeiningar um meðhöndlun gagna.
- Samþætting og samstarf: Innleiðing og notkun gervigreindar verður samþætt starfsemi núverandi kjarnasviða (s.s. Kennslusviðs, Upplýsingatæknisviðs og Vísinda- og nýsköpunarsviðs) til að tryggja faglega ábyrgð og víðtæka samvinnu.