Setberg
Um Kennslusvið
Hlutverk

Kennslusvið annast sameiginleg málefni sem varða kennslu, nám og próf.

Meðal helstu verkefna sviðsins eru:

  • Kennsluþróun og þjónusta við kennara
    • Á sviðinu starfar fjöldi sérfræðinga á sviði kennsluþróunar og námsmats sem veitir kennurum ráðgjöf og leiðbeiningar um kennslu.
  • Útgáfa og ritstjórn kennsluskrár
  • Þjónusta við nemendur
    • Meðal annars nemendaskráning, námsráðgjöf og aðstoð við fræðileg skrif
  • Umsjón með mati á námi
  • Skipulagning og framkvæmd prófa
  • Útgáfa og endurskoðun á reglum sem háskólaráð hefur sett.

Kennslusvið vinnur náið með Kennslumálanefnd.

Raunfærnimat er leið til að gefa einstaklingum tækifæri til að fá þekkingu sína og færni, sem þeir hafa öðlast utan hefðbundins menntakerfis, metna inn í formlegt nám og hækka þannig formlegt menntunarstig þeirra. Raunfærnimat á háskólastigi getur bæði verið til inngöngu í háskólanám og einnig til styttingar náms á háskólastigi. Samkvæmt tilmælum frá Ráðherraráði Evrópusambandsins er mælt með því að öll lönd Evrópusambandsins innleiði raunfærnimat á öllum skólastigum fyrir lok árs 2018.

Háskóli Íslands stofnaði vinnuhóp í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og Háskólann í Reykjavík til að kanna hvernig staðan á raunfærnimati á háskólastigi væri í nágrannalöndunum og hvernig háskólar á Íslandi gætu hafið vinnu við innleiðingu á raunfærnimati. Niðurstöður vinnuhópsins eru birtar í skýrslunni sem hér er að finna.

Raunfærnimat á háskólastigi - skýrsla vinnuhóps

Starfseiningar

Hlutverk Kennslumiðstöðvar er að veita starfsfólki og stjórnendum HÍ faglega ráðgjöf við þróun kennsluhátta og vera leiðandi í kennsluþróun háskóla.

Einnig annast Kennslumiðstöð stefnumótun og innleiðingu á ýmsum stafrænum lausnum í kennslu, svo sem námsumsjónarkerfinu Canvas.

Nánari upplýsingar um kennsluþróun og þjónustu við kennara HÍ má nálgast á vef Setbergs.

Kennslumiðstöð er á 2. hæð í Setbergi.

Netfang: kennslumidstod@hi.is

Matsskrifstofa annast samhæfingu verkefna sem tengjast umsóknum um nám við HÍ og mati á þeim, einkum erlendum umsóknum í grunnnám og framhaldsnám, auk umsókna um undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum í grunnnám.

Auk þess gegnir skrifstofan hlutverki ENIC/NARIC upplýsingaskrifstofu um mat og viðurkenningu náms, samkvæmt samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið.

Matsskrifstofa er á 1. hæð í Setbergi. Deildarstjóri er Ína Dögg Eyþórsdóttir.

Netfang: enicnaric@hi.is.
Sími: 525-5452 / 525-5256

Miðstöð framhaldsnáms hefur umsjón með og fylgir eftir settum viðmiðum og kröfum um gæði framhaldsnáms við Háskóla Íslands með það að markmiði að stuðla að kröftugu vísindastarfi sem stenst alþjóðlegan samanburð og samkeppni.

Miðstöð framhaldsnáms er á 3. hæð í Setbergi. Skrifstofustjóri er Guðlaug Þóra Kristjánsdóttir.

Netfang: midstodframhaldsnams@hi.is.
Sími: 525-4099 / 525-5184

Nemendaráðgjöf veitir nemendum háskólans m.a. ráðgjöf um námsval og vinnu­brögð og leggur til úrræði vegna fötlunar og sérþarfa.

Nemendaráðgjöf er á 3. hæð Háskólatorgs. Deildarstjóri er Svandís Sturludóttir.

Netfang: radgjof@hi.is
Sími: 525-4315

Sjá nánari upplýsingar á síðu Nemendaráðgjafar.

Nemendaskrá annast skrásetningu allra nemenda Háskólans og varðveitir gögn um náms­framvindu þeirra, skráningu í námskeið, próf og einkunnir.

Nemendaskrá er á 3. hæð Háskólatorgs. Skrifstofustjóri er Kristín Jónasdóttir.

Netfang: nemskra@hi.is
Sími: 525-4309

Sjá nánari upplýsingar á síðu Nemendaskrár.

Prófstjóri semur próftöflu og annast undirbúning og stjórn almennra prófa, í samráði við stjórnsýslu fræðasviða og deilda og með fulltingi annarra starfsmanna prófaskrifstofu. Umsýsla prófgagna og dreifing þeirra í prófstofur er í höndum prófaskrifstofu, svo og afhending skriflegra úrlausna til kennara. Prófaskrifstofa hefur einnig umsjón með fjarprófum og rafrænu prófhaldi.

Prófaskrifstofa er á 3. hæð í Setbergi. Prófstjóri er Sigurður Ingi Árnason.

Netfang: profstjori@hi.is
Sími: 525-5278

Miðstöð fjarprófa er á sama stað. Verkefnisstjóri er Þorgeir Freyr Sveinsson.

Netfang: fjarprof@hi.is
Sími: 525-5910

Ritver Háskóla Íslands býður upp á aðstoð við fræðileg skrif fyrir nemendur og starfsfólk frá öllum deildum og sviðum háskólans, bæði á íslensku og ensku. Ritverið er með starfsstöð á 3. hæð í Þjóðarbókhlöðu (Landsbókasafni - Háskólabókasafni).

Forstöðumaður Ritversins, Emma Björg Eyjólfsdóttir, hefur aðsetur á 1. hæð í Setbergi.

Netfang: ritver@hi.is
Sími: 525-5843

Sjá nánari upplýsingar á vef Ritversins.

Starfsfólk skrifstofu Kennslusviðs annast ýmis málefni er varða kennslumál og stjórnsýslu háskólans og vinnur náið með kennslumálanefnd og skrifstofu rektors. Meðal verkefna starfsfólks er umsjón með útgáfu kennsluskrár háskólans og ábyrgð á hæfi og skipun prófdómara. Í samvinnu við rektorsskrifstofu kemur skrifstofa kennslusviðs einnig að útgáfu og endurskoðun á reglum sem háskólaráð hefur sett.

Skrifstofa kennslusviðs er á 1. hæð í Setbergi. Sviðsstjóri er Kristinn Andersen.

Netfang: kennslusvid@hi.is

Sprettur styður og undirbýr efnilega nemendur með innflytjendabakgrunn til háskólanáms. Markmið Spretts er að stuðla að jöfnum tækifærum til menntunar.

Verkefnisstjóri Spretts, Juan Camilo Roman Estrada, hefur aðsetur á 3. hæð í Setbergi.

Netfang: juancamilo@hi.is
Sími: 525-5405

Sjá nánari upplýsingar á vefsíðu Spretts.

Starfsfólk

Sviðsstjóri

Hafðu samband
Kennslusvið
Opið virka daga 9:00 - 15:00
Sviðsstjóri
Margrét Sigrún Sigurðardóttir
Háskóli Íslands, Setberg

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil