""
Tækifæri til náms fyrir innflytjendur

Sprettur er nýsköpunarverkefni á sviði menntunar sem miðar að inngildingu og gagnkvæmri aðlögun innflytjenda að háskólanámi. Verkefnið er starfrækt innan kennslusviðs Háskóla Íslands.

Sprettur stefnir að því að auka þátttöku innflytjenda í háskólanámi sem ein besta leiðin til að læra að lifa saman sem fjölmenningarlegt samfélag.

Á döfinni hjá Spretti. Viðburðir, námskeið, fyrirlestrar, o.fl.

Mánudagar kl. 15:00-16:00 í Setbergi, stofa 207.

Sophia býður upp á óformlegar íslenskuæfingar fyrir byrjendur. Þar er opið og öruggt rými til að spreyta sig á íslensku. Öll eru velkomin!

Þriðjudagar (3. - 24. nóvember) kl. 15:00-17:00 í Setbergi, stofa 305.

Zuzanna og Rósa halda 4 vikna vinnustofu í heimspeki undir yfirskriftinni: Our Place in The World: Linking Diverse Experiences

Fyrri reynsla eða þekking á heimspeki er ekki nauðsynleg og öll eru velkomin.

Skráðu þig hér

Þriðjudagar kl. 16:00-17:30 í Setbergi, stofu 205.

Mladen býður upp á ráðgjöf í stærðfræði. Öll eru velkomin og skráning ekki nauðsynleg. Mladen hefur áralanga reynslu af einkakennslu í stærðfræði, sérstaklega á framhalds- og háskólastigi.

Þátttakendur Spretts eru hvattir til að taka þátt í lærdómshópum. Þeir eru í hverri viku en skiptast milli miðvikudaga og fimmtudaga kl. 17:00-20:00 í Setbergi, stofu 305.

Lærdómshópar á döfinni eru:

  • 8. október
  • 14. október
  • 22. október
  • 28. október

Lærdómshóparnir eru frábært tækifæri til að mynda tengsl, æfa íslensku, fá aðstoð með heimanám og eiga skemmtilega kvöldstund. Reglulega er boðið upp á fræðslu, leiki og hópefli. Létt kvöldhressing stendur þátttakendum til boða.

Föstudagar kl. 13:00-14:30 í Setbergi, stofu 305.

Föstudagar kl. 13:00-16:00 í Sögu, stofa S-108.


Áhersluhreimur er leiklistarverkefni sem nemendur í íslensku sem öðru máli komu á fót. Þar gefst frábært tækifæri til að mynda tengsl og leika sér með íslenskuna.

Öll eru velkomin!

Fyrir hverja?

Núverandi og verðandi háskólanemendur með erlendan bakgrunn eru hvattir til að taka þátt í Spretti til að fá aukinn stuðning í námi sínu, félagslífi.

Þrír hópar innflytjenda sem geta haft gagn af Spretti:

  • Núverandi háskólanemendur með erlendan bakgrunn sem, og vilja verða hluti af námssamfélagi og byggja upp tengslanet, fá mentora tækifæri og leiðsögn í háskóla lífi.
  • Nemendur á síðasta ári í framhaldsskóla sem eru áhugasamir um að hefja nám í háskóla og vilja fá aukna hjálp við nám og aðlögunarferlið í háskólaumhverfinu.
  • Fullorðnir innflytjendur með mismunandi menntunarbakgrunn sem vilja halda áfram í sínu fagi eða byrja á nýju og ná betri tökum á íslensku.
Hvað gera þátttakendur í Spretti?

Þátttakendur í Spretti mæta á náms- og mentorastundir reglulega, vinnustofur og fjölbreyttar málstofur og fjölmenningarlega viðburði.

Þátttaka er sjálfviljug og ókeypis, en nemendur eru hvattir til að vera stöðugir í sínu eigin lærdómsferli og nýta tækifærið vel.

Hvað er í boði fyrir mig?

  • Náms og félagslegur stuðningur
  • Mentora stuðningur og tengslanet
  • Persónuleg þróun
  • Valdefling og inngilding
Jöfn tækifæri til náms

Aðgangur án stuðnings er ekki tækifæri!

Gildi

Gildi Spretts eru inngilding, jöfn tækifæri til menntunar, gagnkvæm aðlögun, tengslamyndun innan háskólasamfélagsins, virk borgaravitund, félagslegt réttlæti, fjölmenningarleg viska, vistfræðileg hugsun, jarðarborgaravitund og hugarfar fróðleiksfýsnis.

Þjónusta Spretts

Markmið Spretts er að stuðla að aukinni þátttöku innflytjenda í háskólanámi. Sprettur vill rækta styrkleika sem felast í fjölmenningarlegu, fjöltyngdu og þverfaglegu háskólasamfélagi.

Fjöldi innflytjenda eiga skilið tækifæri til að upplifa háskólalíf, en margir þeirra þurfa öflugt stuðningsnet til að takast á við þær kröfur sem fylgja háskólanámi í skapandi og hvetjandi umhverfi sem byggir á fjölmenningarlegu lærdómssamfélagi.

Verkefnisstjóri Spretts er jafnframt fjölmenningarfulltrúi Háskóla Íslands og starfar í nánu samstarfi við jafnréttisfulltrúa að eflingu jafnréttis og inngildingar innan háskólasamfélagsins. Fjölmenningarfulltrúinn býður upp á fyrirlestra og ráðgjöf, auk þess að styðja við menningarlega viðburði innan háskólans.

Sprettur veitir upplýsingar, leiðbeiningar og ráðgjöf sem hjálpa einstaklingum að íhuga möguleika og skilyrði fyrir inngöngu í háskólanám.

Sprettur býður reglulega námshópa með mentorum til að styðja við heimanám í mismunandi námsgreinum. Hóparnir eru sérstaklega ætlaðir nemendum sem eru að ljúka framhaldsskóla og nemendum við Háskóla Íslands. Skráning er nauðsynleg.

Röð fyrirlestra og vinnustofa sem styðja þátttakendur við að undirbúa sig fyrir nám í háskóla, með áherslu á námslegar, félagslegar og menningarlegar áskoranir. Viðburðirnir eru opnir innflytjendum gegn skráningu.

Viðbótarstuðningur er veittur við æfingar í íslensku og mismunandi aðferðir við tungumálanám kynntar.

Sprettur býður upp á þjálfun og fræðslu fyrir mentora í því mikilvæga hlutverki að styðja nám og menningaraðlögun nemenda með erlendan bakgrunn.

Vinnustofur þar sem unnið er með þróun og innleiðingu mentorakerfa í framhaldsskólum. Vinnustofurnar eru sérsniðnar að staðbundnum aðstæðum og þörfum. Nánari upplýsingar veitir Verkefnisstjóri Spretts.

Sprettur tekur virkan þátt í mótun stefnu um inngildingu innflytjenda í opinberum háskólum á Íslandi.

Hafðu samband
Kennslusvið
Virka daga 9:00 - 15:00
Verkefnastjóri Spretts
Juan Camilo Roman Estrada
Project manager

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil