""
Tungumál kennslu
Íslenska. Flestar kennslubækur eru á ensku eða öðrum erlendum tungumálum.
Lengd náms
Eitt ár - 60 einingar
Námsform
Staðnámsleið
Umsóknartímabil
Alþjóðlegir umsækjendur:
Umsækjendur með íslenskan eða norrænan ríkisborgararétt:
Yfirlit

  • Viltu fá starfsréttindi sem geislafræðingur?
  • Hefur þú áhuga á að bæta við þig sérfræðiþekkingu?
  • Viltu eiga möguleika á að að fá námið metið upp í meistaragráðu?
  • Hefur þú áhuga á myndgreiningu?
  • Viltu starfa í fjölbreyttu og gefandi starfi?

Viðbótarnám í geislafræði er fræðilegt og verklegt nám til eins árs á meistarastigi. Námið er sniðið að nemendum sem hafa lokið BS-prófi í geislafæði eða sambærilegu prófi.

Námið veitir nemendum fræðilega, hagnýta og aðferðafræðilega þekkingu til að takast á við fjölbreytileg störf á myndgreiningarsviði.

Diplómanámið er jafnframt fyrsta árið í MS-námi í geislafræði fyrir þau sem vilja halda áfram námi.

Námið felst í því að vinna að rannsóknaverkefni eða vera í sérhæfðu starfsnámi sem nemur 30 einingum auk námskeiðum sem nemur 30 einingum.

Uppbygging náms

Námið er 60 einingar og er skipulagt sem fullt nám til eins árs.

Námið skiptist í:

  • Námskeið, 30 einingar
  • Meistaraverkefni, 30 einingar

Fyrirkomulag kennslu

Námið er kennt á Íslensku og flestar kennslubækur eru á ensku.

Meginmarkmið

Meginmarkmið með diplómanámi er að búa nemendur undir störf sem geislafræðingar.

Annað

Viðbótardiplóma í geislafræði veitir rétt til starfsréttinda sem geislafræðingur.

Námið veitir aðgang að meistaranámi.

Inntökuskilyrði er BS-próf í geislafræði eða sambærilegt próf.

Ljúka þarf 60 einingum til Lokaprófs/Viðbótarprófs á meistarastigi í geislafræði. Kennslu er hagað þannig að unnt er að ljúka námi á einu ári en heildarnámstími má ekki vera lengri en tvö ár.

Eftirfarandi skjöl verða að fylgja umsókn:

    Frekari upplýsingar um fylgigögn má finna hér

    Uppsetning náms

    Hér að neðan má sjá hvernig námsleiðin er byggð upp og hvernig hún skiptist upp eftir árum og misserum.

    Á þessari námsleið eru engin kjörsvið.

    Fyrsta ár | Haust
    Brjóstarannsóknir (GSL111F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Almenn kynning á brjóstamyndatökum ásamt helstu sjúkdómum sem tengjast brjóstum. Hvernig brjóstamyndataka er framkvæmd og því sem tengist innstillingum.  

    Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fyrir brjóstamyndatökum og helstu rannsóknum. Mikilvægi myndgæða og að þekkja helstu myndgalla sem og hvernig hægt er að lagfæra þá. Hvernig á að aðlaga rannsóknum eftir hverjum og einum.  

    Áhersla verður lögð á einkenni brjóstakrabbameins, fagleg vinnubrögð ásamt mikilvægi góðra samskipta. Farið verður yfir helstu hugtök og orðræðu geislafræðinnar.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Haust
    Ísótóparannsóknir 2 (GSL112F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing
    • Jáeindageislandi efni, framleiðsla og myndgerð.
    • Geislamælar, geislaálag og geislavarnir starfsmanna og sjúklinga.
    • Fjallað um jáeindageislandi efni og framleiðslu þeirra.
    • Vinnuaðferðir og geislavarnir.
    • Geislalyfjaframleiðsla, hreinrými og gæðaeftirlit.
    • Myndgerð með jáeindageislandi efnum og blönduð myndgerð (PET-CT og SPECT-CT).
    • Sjúkdómsgreining með F-18 og öðrum jáeindageislandi efnum.
    • Mælingar á geislun og geislavirkni, mælitækni og aðferðir.
    • Mat á geislaálagi og geislavarnir sjúklinga og starfsfólk vegna notkunar geislavirkra efna.
    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Haust
    Stjórnun og gæðamál (GSL113F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið hefur það að markmiði að veita nemendum þekkingu og færni í verkefnastjórnun og gæðamálum. Nemendur mun læra um stefnu til framfara og gæðamál innan myndgreiningar og hvernig stjórnunarþættir hafa áhrif á gæði og árangur. Farið verður í mismunandi stjórnunarstíla, breytingastjórnun, mannauðsstjórnun (almenn nálgun) og mikilvægi teymisvinnu.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Haust
    Líftölfræði I (LÝÐ105F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Inngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fyrsta ár | Haust
    Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum (HVS501M)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

    Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

    Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
     
    Kennslutilhögun:
    Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

    Kennslutungumál: Íslenska
    Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Haust
    Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 1 (LÆK106F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).

    Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.

    Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)

    • Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
    • Heimildaleit og utanumhald heimilda.
    • Almennt um vísindalega aðferð.
    • Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.

    Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)

    • Vísindaheimspeki.
    • Vísindasiðfræði.
    • Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
    • Óheiðarleiki í vísindum.

    Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)

    • Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
    • Styrkumsóknir.
    • Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
    • Dýratilraunir.

    Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)

    • Gerð ferilsskrár.
    • Verkefnastjórnun.
    • Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
    • Samband nemenda og leiðbeinenda.
    Kennslutungumál: Enska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Námskeið kennt í lotu I
    Fyrsta ár | Haust
    Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 2 (LÆK0ALF)

    Námskeið kennt í lotu II
    Fyrsta ár | Haust
    Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 3 (LÆK0AMF)

    Námskeið kennt í lotu III
    Fyrsta ár | Vor
    Geislameðferð (GSL210F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    6 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Fjallað verður um krabbamein almennt og krabbamein í líffærakerfum, þekkta áhættuþætti, greiningu, meðferð og aukaverkanir. Fjallað verður um geislalífeðlisfræði, geislavarnir, meðferðartæki og fyrirsjáanlega þróun til bættrar meðferðar. Andleg og líkamleg umönnun sjúklinga.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Vor
    Æðarannsóknir (GSL211F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir innsýn og dýpri skilning á æðarannsóknum og þeirri tækni sem notuð er í þeim, nemendur læra grundvallar aðferðafræði sem nýtist í klínísku starfi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Vor
    Upplýsingatækni, úrlestur og gervigreind í myndgreiningu (GSL212F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    4 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum innsýn í upplýsingatækni og nýjustu tækniframfarir í myndgreiningu, með áherslu á úrlestur og notkun gervigreindar í greiningu læknisfræðilegra mynda. Nemendur munu öðlast skilning á gagnastjórnun og PACS eða myndgeymslukerfum og hvernig gervigreind getur bætt bæði skilvirkni og nákvæmni í úrvinnslu gagna.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Fyrsta ár | Vor
    DXA - Beinþéttnimælingar (GSL213F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum skilning á beinþéttnimælingum með DXA - tækni. Nemendur læra að framkvæma, greina og túlka DXA rannsóknir með áherslu á gæði, öryggi og nákvæmni.

    Farið verður yfir grunnatriði DXA-tækni: Mælingar á beinþéttni, eðlisfræði röntgengeislunar og tvíorku frásogsmælinga.

    Líffærafræði og lífeðlisfræði beina, t.d. áhrif aldurs, kyns og sjúkdóma á beinmassa.

    Framkvæmd rannsókna: Rétt staðsetning sjúklings, myndgæði og algeng mistök við mælingar. Greining á myndum og túlkun þeirra kennd: T-score, Z-score og áhættumt fyrir beinbrotum.

    Gæðastjórnun og staðlar: Farið verður yfir öryggisstaðla, viðmið fyrir endurtekningar og samræmi milli mælinga á tækjum.

    Geislavarnir og öryggi: viðmið og öryggisstaðlar fyrir sjúklinga og starfsfólk.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Vor
    Sérhæft klínískt nám (GSL214F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    12 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Námskeiðið veitir nemendum hagnýta þjálfun og dýpri skilning á klínískri framkvæmd sérhæfðra myndgreiningarannsókna, s.s. Segulómun, ómun, tölvusneiðmyndarannsóknum,isótóparannsóknum, PET, æðarannsóknum,geislameðferð, brjóstarannsóknum og fleiri allt eftir því hvaða myndgreiningu nemandi ákveður að dýpka þekkingu sína á. Nemendur munu kynnast aðferðafræðinni, öryggisstöðlum og gæðastjórnun sem tengist þeirri myndgreiningu sem við á, einnig fá nemendur aukna reynslu í því klíníska umhverfi.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Mætingaskylda er í námskeiðinu
    Fyrsta ár | Vor
    Málstofa í geislafræði (GSL215F)
    Skyldunámskeið á námsleiðinni
    2 einingar, ETCS
    Námskeiðslýsing

    Nemendur og kennarar fjalla um eigin/annarra rannsóknir í fyrirlestrum og umræðum.

    Fyrirlestrar eru fluttir af nemendum og kennurum. Ráðstefna um rannsóknir í geislafræði. Mætingaskylda er og virkrar þátttöku í umræðum er krafist.

    Kennslutungumál: Íslenska
    Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
    Fyrsta ár
    • Haust
    • GSL111F
      Brjóstarannsóknir
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Almenn kynning á brjóstamyndatökum ásamt helstu sjúkdómum sem tengjast brjóstum. Hvernig brjóstamyndataka er framkvæmd og því sem tengist innstillingum.  

      Markmið námskeiðsins er að kynna nemendum fyrir brjóstamyndatökum og helstu rannsóknum. Mikilvægi myndgæða og að þekkja helstu myndgalla sem og hvernig hægt er að lagfæra þá. Hvernig á að aðlaga rannsóknum eftir hverjum og einum.  

      Áhersla verður lögð á einkenni brjóstakrabbameins, fagleg vinnubrögð ásamt mikilvægi góðra samskipta. Farið verður yfir helstu hugtök og orðræðu geislafræðinnar.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • GSL112F
      Ísótóparannsóknir 2
      Skyldunámskeið
      4
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      4 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing
      • Jáeindageislandi efni, framleiðsla og myndgerð.
      • Geislamælar, geislaálag og geislavarnir starfsmanna og sjúklinga.
      • Fjallað um jáeindageislandi efni og framleiðslu þeirra.
      • Vinnuaðferðir og geislavarnir.
      • Geislalyfjaframleiðsla, hreinrými og gæðaeftirlit.
      • Myndgerð með jáeindageislandi efnum og blönduð myndgerð (PET-CT og SPECT-CT).
      • Sjúkdómsgreining með F-18 og öðrum jáeindageislandi efnum.
      • Mælingar á geislun og geislavirkni, mælitækni og aðferðir.
      • Mat á geislaálagi og geislavarnir sjúklinga og starfsfólk vegna notkunar geislavirkra efna.
      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • GSL113F
      Stjórnun og gæðamál
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið hefur það að markmiði að veita nemendum þekkingu og færni í verkefnastjórnun og gæðamálum. Nemendur mun læra um stefnu til framfara og gæðamál innan myndgreiningar og hvernig stjórnunarþættir hafa áhrif á gæði og árangur. Farið verður í mismunandi stjórnunarstíla, breytingastjórnun, mannauðsstjórnun (almenn nálgun) og mikilvægi teymisvinnu.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • LÝÐ105F
      Líftölfræði I
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Inngangur að hagnýtri líftölfræði í lífvísindum. Yfirlit er gefið yfir tegundir breyta; flokkabreytur, strjálar og samfelldar talnabreytur. Lýsandi tölfræði; lýsistærðir og myndræn framsetning gagna. Fræðilegar líkindadreifingar; tvíkostadreifing, Poisson dreifing og normaldreifing. Skilgreiningar á slembiúrtaki og þýði. Dreifingar lýsistærða. Notkun á öryggisbilum og tilgátuprófum. Samanburður á meðalgildi hópa (samfelldar mælingar). Tölfræðipróf fyrir tíðnitöflur (flokkabreytur). Einföld og lógistísk aðhvarfsgreining og ROC greining. Lifunargreining með aðferð Kaplan Meier og Cox. Í fyrirlestrum og dæmatímunum verður notast við tölfræðiforritið R og RStudio umhverfið.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • HVS501M
      Þverfræðileg samvinna í heilbrigðisvísindum
      Skyldunámskeið
      2
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      2 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið (2 ECTS) er ætlað nemendum á þriðja námsári eða síðar sem lokið hafa a.m.k. tveimur árum grunnnáms í greinum heilbrigðisvísinda.  Í námskeiðinu er lögð áhersla á þverfræðilega samvinnu í heilbrigðisþjónustu og mikilvægi hennar fyrir heildræna, sanngjarna og einstaklingsmiðaða þjónustu. Nemendur vinna saman í þverfræðilegum teymum að sameiginlegum verkefnum og fá tækifæri til að þjálfa sig í teymisvinnu, og efla samskipti. 

      Sérstök áhersla er lögð á fjölbreytileika samfélagsins og reynslu einstaklinga og hópa sem búa við jaðarsetningu og/eða heilsuójöfnuð. Nemendur kynnast því hvernig félagslegir, menningarlegir og kerfisbundnir þættir geta haft áhrif á heilsu og aðgengi að þjónustu.

      Námsmat (staðið/fallið) byggist á  verkefnavinnu, virkni í verkefnavinnu og prófum sem verða á rafrænu formi í kennslulotunni.
       
      Kennslutilhögun:
      Nemendum er skipt í þverfaglega námshópa í byrjun annar sem síðan skipuleggja fundartíma sínir sjálfir og skila lokaverkefnum fyrir lok október. 

      Netnám: Námskeiðið fer alfarið fram á netinu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • LÆK106F
      Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 1
      Skyldunámskeið
      2
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      2 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið er kennt í fjórum hlutum, sjá yfirlit hér að neðan. Hver hluti er 2ECTS einingar. Nemendur eru hvattir til að velja þá hluta sem henta best þeirra markmiðum. Meistaranemar skulu að lágmarki ljúka þremur hlutum (6ECTS) en doktorsnemar að lágmarki tveimur hlutum (4ECTS).

      Hver hluti inniheldur fjóra fyrirlestra / umræðutíma ásamt verkefnum. Kennsla fer að mestu fram á ensku.

      Hluti 1 (LÆK106F, 2ECTS)

      • Skrif og lestur vísindagreina. Kynningar á ráðstefnum.
      • Heimildaleit og utanumhald heimilda.
      • Almennt um vísindalega aðferð.
      • Hvernig á að setja upp rannsóknarverkefni.

      Hluti 2 (LÆK0ALF, 2ECTS)

      • Vísindaheimspeki.
      • Vísindasiðfræði.
      • Vísindi, samfélag og fjölmiðlar.
      • Óheiðarleiki í vísindum.

      Hluti 3 (LÆK0AMF, 2ECTS)

      • Meðhöndlun gagna og gagnaöryggi.
      • Styrkumsóknir.
      • Leyfisumsóknir (rannsóknir á mönnum).
      • Dýratilraunir.

      Hluti 4 (LÆK0ANF, 2ECTS)

      • Gerð ferilsskrár.
      • Verkefnastjórnun.
      • Gerð áætlunar fyrir næsta ár.
      • Samband nemenda og leiðbeinenda.
      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Námskeið kennt í lotu I
    • LÆK0ALF
      Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 2

    • LÆK0AMF
      Almenn aðferðafræði í rannsóknum fyrir meistara- og doktorsnema - Hluti 3

    • Vor
    • GSL210F
      Geislameðferð
      Skyldunámskeið
      6
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      6 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Fjallað verður um krabbamein almennt og krabbamein í líffærakerfum, þekkta áhættuþætti, greiningu, meðferð og aukaverkanir. Fjallað verður um geislalífeðlisfræði, geislavarnir, meðferðartæki og fyrirsjáanlega þróun til bættrar meðferðar. Andleg og líkamleg umönnun sjúklinga.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • GSL211F
      Æðarannsóknir
      Skyldunámskeið
      4
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      4 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið veitir innsýn og dýpri skilning á æðarannsóknum og þeirri tækni sem notuð er í þeim, nemendur læra grundvallar aðferðafræði sem nýtist í klínísku starfi.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • GSL212F
      Upplýsingatækni, úrlestur og gervigreind í myndgreiningu
      Skyldunámskeið
      4
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      4 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið veitir nemendum innsýn í upplýsingatækni og nýjustu tækniframfarir í myndgreiningu, með áherslu á úrlestur og notkun gervigreindar í greiningu læknisfræðilegra mynda. Nemendur munu öðlast skilning á gagnastjórnun og PACS eða myndgeymslukerfum og hvernig gervigreind getur bætt bæði skilvirkni og nákvæmni í úrvinnslu gagna.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
    • GSL213F
      DXA - Beinþéttnimælingar
      Skyldunámskeið
      2
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      2 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið veitir nemendum skilning á beinþéttnimælingum með DXA - tækni. Nemendur læra að framkvæma, greina og túlka DXA rannsóknir með áherslu á gæði, öryggi og nákvæmni.

      Farið verður yfir grunnatriði DXA-tækni: Mælingar á beinþéttni, eðlisfræði röntgengeislunar og tvíorku frásogsmælinga.

      Líffærafræði og lífeðlisfræði beina, t.d. áhrif aldurs, kyns og sjúkdóma á beinmassa.

      Framkvæmd rannsókna: Rétt staðsetning sjúklings, myndgæði og algeng mistök við mælingar. Greining á myndum og túlkun þeirra kennd: T-score, Z-score og áhættumt fyrir beinbrotum.

      Gæðastjórnun og staðlar: Farið verður yfir öryggisstaðla, viðmið fyrir endurtekningar og samræmi milli mælinga á tækjum.

      Geislavarnir og öryggi: viðmið og öryggisstaðlar fyrir sjúklinga og starfsfólk.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • GSL214F
      Sérhæft klínískt nám
      Skyldunámskeið
      12
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      12 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Námskeiðið veitir nemendum hagnýta þjálfun og dýpri skilning á klínískri framkvæmd sérhæfðra myndgreiningarannsókna, s.s. Segulómun, ómun, tölvusneiðmyndarannsóknum,isótóparannsóknum, PET, æðarannsóknum,geislameðferð, brjóstarannsóknum og fleiri allt eftir því hvaða myndgreiningu nemandi ákveður að dýpka þekkingu sína á. Nemendur munu kynnast aðferðafræðinni, öryggisstöðlum og gæðastjórnun sem tengist þeirri myndgreiningu sem við á, einnig fá nemendur aukna reynslu í því klíníska umhverfi.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið
      Mætingaskylda er í námskeiðinu
    • GSL215F
      Málstofa í geislafræði
      Skyldunámskeið
      2
      Skyldunámskeið á námsleiðinni
      2 einingar, ETCS
      Námskeiðslýsing

      Nemendur og kennarar fjalla um eigin/annarra rannsóknir í fyrirlestrum og umræðum.

      Fyrirlestrar eru fluttir af nemendum og kennurum. Ráðstefna um rannsóknir í geislafræði. Mætingaskylda er og virkrar þátttöku í umræðum er krafist.

      Staðnám: Námskeiðið er kennt í persónu
      Forkröfur eru settar fyrir þetta námskeið

    Stundataflan hér að neðan gildir fyrir yfirstandandi námsár og er einungis til viðmiðunar..

    Breytingar geta orðið á stundatöflu haustmisseris í ágúst og september og á stundatöflu vormisseris í desember og janúar. Endanlega stundatöflu finnur þú í Uglu þegar kennsla hefst.

    Athugið: Ekki ætti að nota þessa stundatöflu til að skipuleggja vinnu ef þú ert í hlutastarfi.

    Frekari upplýsingar

    Háskóli Íslands á í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim. Það veitir nemendum HÍ einstakt tækifæri til að stunda hluta af náminu erlendis, öðlast alþjóðlega reynslu og styrkja stöðu sína á vinnumarkaði.

    Möguleikar

    Nám erlendis er alltaf háð samþykki deildar.

    Skilyrði

    Til að geta sótt um námsdvöl erlendis þarf námsleið við HÍ að vera að lágmarki:

    • 90 ECTS einingar í grunnnámi
    • 60 ECTS einingar í framhaldsnámi

    Sjá frekari skilyrði

    Námskeið metin til eininga

    Nemendur geta fengið námskeið sem tekin eru erlendis metin sem hluta af námi við HÍ, þannig að námsdvölin þarf ekki að lengja námstímann. Nemendur semja um mat á einingum við deildina áður en skiptinámið hefst með því að fylla út námssamning.

    Meira um möguleika á námsdvöl erlendis

    Geislafræðingar eru eftirsóttir starfskraftar í heilbrigðisgeiranum og starfsvettvangur þeirra er fjölbreyttur.

    Fólk með þessa menntun starfar meðal annars við:

    • Myndgreiningardeildir
    • Heilbrigðisstofnanir
    • Einkarekin fyrirtæki
    • Krabbameinsfélagið
    • Geislameðferðardeildir
    • Geislavarnir ríkisins
    • Háskóla Íslands
    • Hjartavernd

    Listinn er ekki tæmandi.

    • FLOG félag lífeinda- og geislafræðinema við Háskóla Íslands er sameiginlegt nemendafélag námsbrauta í lífeindafræði og geislafræði. Félagið stendur fyrir skemmtilegum viðburðum, t.d. nýnemakvöldum, árshátíð og vísindaferðum.
    • Facebook síða FLOG

    Meira um félagslíf stúdenta í Hí.

    Umsagnir nemenda
    Ljósmynd af Særúnu Ósk Diego Arnarsdóttur
    Eftir BS nám í geislafræði er nauðsynlegt að fara í framhaldsnám til þess að öðlast starfsréttindi sem geislafræðingur. Ég valdi diplómunámið þar sem ég var svo spennt að byrja að vinna við fagið. Þó að námið sé stutt þá undirbýr það mann rosalega vel fyrir rannsóknarverkefni og ritgerðarskrif og það gefur manni einnig innsýn í stjórnunarfræði sem er góður undirbúningur fyrir framtíðarstörf. Það sem mér fannst skemmtilegast við námið var starfsnámið sem hjálpar gríðalega þegar það kemur að því að velja rannsóknarverkefni sem er unnið að í seinni hluta námsins. Rannsóknarverkefnið getur verið krefjandi en á sama tíma er það skemmtilegt þar sem maður getur dýpkað þekkingu sýna í leiðinni til að verða góður og sterkur geislafræðingur.
    Gagnlegt efni
    Aurora Cooperation

    Námsvalshjólið

    Á hverju hefur þú áhuga?

    Aurora Cooperation

    Veldu framhaldsnám

    Skref fyrir skref

    Hafðu samband
    Geislafræði
    Virka daga 8:00 - 11:00
    Þjónusta og samfélagsmiðlar

    Fyrirspurnir um nám
    Almennar upplýsingar má finna á þjónustumiðju HÍ. Einnig er hægt að mæta á Þjónustuborð á Háskólatorgi eða nota spjallmenni HÍ.

    Geislafræði á Facebook 
    FLOG á Facebook

    Háskólabyggingin Stapi

    Deila

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil