Anne Carson, sérfræðingur í klassískum fræðum, skáld og þýðandi, hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár. Carson hlaut Vigdísarverðlaunin 2023, verðlaun sem íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun veita árlega.
Nóbelsverðlaunin hlýtur Carson fyrir djarft og hugvitssamlegt höfundarverk sem í fjörugu samspili við klassíska hefð hefur skapað nýtt form fyrir samtímabókmenntir, eins og segir í umsögn valnefndar vegna verðlaunanna.
Carson er fædd í Kanada en hefur verið með íslenskan ríkisborgararétt frá árinu 2022. Hún hefur lengst af starfað sem prófessor í klassískum fræðum og kennt grísku og klassískar grískar bókmenntir við háskóla vestan hafs, meðal annars McGill, Princeton og New York-háskóla. Hún er einnig þekkt ljóðskáld, prósahöfundur, esseyisti og þýðandi.
Fyrir framlag sitt til i tungumála og menningar hlaut Carson Vigdísarverðlaunin 2023 en þau eru veitt árlega einstaklingi sem brotið hefur blað með störfum sínum í þágu tungumála, menningar og þýðingastarfs. Íslensk stjórnvöld, Háskóli Íslands og Vigdísarstofnun – alþjóðleg miðstöð tungumála og menningarstofnuðu stofnuðu til verðlaunanna í tilefni af stórafmæli Vigdísar Finnbogadóttur árið 2020 en þá voru jafnframt liðin 40 ár frá sögulegu forsetakjöri hennar.