Tónleikar í samstarfi við Iceland Airwaves, Alþjóðatorg, hermilíkan Sameinuðu þjóðanna, Alþjóðaleikar, pallborðsumræður um inngildingu í háskólasamfélaginu og kynningar á tækifærum til námsdvalar erlendis eru meðal þess sem verður á dagskrá Alþjóðadaga Háskóla Íslands dagana 4.-6. nóvember.
Alþjóðadagar eru árviss viðburður í Háskóla Íslands þar sem markmiðið er að vekja athygli á alþjóðlegu samstarfi Háskólans og þeim fjölmörgu tækifærum sem standa nemendum og starfsfólki til boða um allan heim.
Alþjóðadagar hefjast í hádeginu miðvikudaginn 4. nóvember þegar söngkonan Anya Shaddock stígur á svið í Stúdentakjallaranum kl. 12. Tónleikarnir eru haldnir í samstarfi við tónlistarhátíðina Iceland Airwaves og er aðgangur ókeypis og öllum opinn. Í tilefni af samstarfinu býðst nemendum Háskóla Íslands jafnframt 50% afsláttur af hátíðarpassa á Iceland Airwaves.
Á Alþjóðadögum verða kynningar á skiptinámi, starfsþjálfun og styttri námsdvöl erlendis þar sem nemendur geta fræðst um möguleika á að taka hluta af námi sínu erlendis. Fulltrúar Alþjóðasviðs verða einnig með kynningarbása í byggingum Háskólans og svara spurningum áhugasamra. Starfsfólki Háskólans býðst sömuleiðis kynning á Erasmus+ styrkjum og alþjóðlegum tækifærum.
Miðvikudaginn 4. nóvember verður Kaffispjall um skiptinám í Bóksölunni þar sem nemendur geta hitt fyrrverandi skiptinema og starfsfólk Alþjóðasviðs og fengið svör við spurningum um námsdvöl erlendis.
Um kvöldið standa Sprettur og Alþjóðanefnd Stúdentaráðs fyrir menningarviðburði í Stúdentakjallaranum. Þar fara meðal annars fram pallborðsumræður um inngildingu í háskólasamfélaginu, auk barsvars og danskennslu.
Fimmtudaginn 5. nóvember verður einnig hægt að spreyta sig á alþjóðlegum öryggismálum í Model UN, taka þátt í Alþjóðaleikunum á Háskólatorgi og enda daginn í Stúdentakjallaranum þar sem DJ Óli Dóri sér um tónlistina. Alþjóðadögum lýkur síðan á föstudagskvöld með Potluck Dinner á Litla torgi.