Hvenær
5. nóvember 2026
11:30 til 13:30
Hvar

Háskólatorg

Nánar
  • Öll velkomin
Bæta við í dagatal

Á Alþjóðatorginu gefst nemendum tækifæri til að kynna sér ótal möguleika á námsdvöl erlendis, svo sem skiptinám, starfsþjálfun og styttri námsdvalir, auk náms á eigin vegum.

Fulltrúar sendiráða, stofnana og félaga, sviða og deilda Háskólans og starfsfólk Alþjóðasviðs verða á staðnum og veita upplýsingar um tækifæri til námsdvalar erlendis. Fyrrum skiptinemar miðla jafnframt af reynslu sinni og geta gestir kynnt sér ólíka áfangastaði og fengið svör við spurningum um nám og dvöl erlendis.

Starfsfólk Háskólans getur einnig kynnt sér möguleika á Erasmus+ kennara- og starfsmannaskiptum.

Lukkuhjól og alþjóðlegt smakk

Á torginu geta gestir snúið lukkuhjólinu og freistað gæfunnar - glæsilegir vinningar verða í boði! Þá verður hægt að smakka ýmiss konar alþjóðlegt góðgæti á kynningarbásunum.

Alþjóðatorgið er hluti af dagskrá Alþjóðadaga Háskóla Íslands.

Efnisorð
Ábyrgðaraðili

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil