Sálfræðiþjónusta við börn háskólanema og starfsfólk HÍ hefur nú verið aukin talsvert hjá Sálfræðiráðgjöf háskólanema. Þar veita MS-nemar í klínískri barnasálfræði þjónustu undir handleiðslu dr. Dagmarar Kr. Hannesdóttur, lektors við Sálfræðideild og sérfræðings í klínískri barnasálfræði, en hún státar af 20 ára starfsreynslu á þessu sviði. Í boði er ráðgjöf og bein meðferð fyrir foreldra en einnig börn og unglinga á aldrinum 3-18 ára við eftirfarandi vanda:

  • Kvíða, fælni og áráttu-þráhyggju
  • Depurð og slakri sjálfsmynd
  • ADHD og erfiðri hegðun
  • Samskiptaþjálfun
  • Svefnvanda

Þjónusta fyrir fullorðna

Sálfræðiráðgjöf háskólanema sinnir einnig fullorðnum einstaklingum. Leitað er sérstaklega að fullorðnum með eftirfarandi vanda:

  • Þunglyndi
  • Félagsfælni
  • Átröskun
  • Svefnvanda
  • Annan sértækan kvíðavanda (td. kvíðaköst, almenna kvíðaröskun eða áráttu og þráhyggju)
  • Áfengisvanda

Nemendur og starfsfólk greiðir aðeins kr. 2.500 fyrir hvern tíma sem er umtalsvert lægra en á hinum almenna markaði.

Ef annar en ofangreindur vandi er til staðar er hægt að hafa samband við Sálfræðiráðgjöfina og þá verður metið hvort hægt sé að veita aðstoð við honum. Athugið að ekki fer fram formlegt greiningarferli á vegum Sálfræðiþjónustunni varðandi ADHD, einhverfu, námserfiðleika eða þroskafrávik.

Hér er hægt að sækja um fyrir fullorðna

Hér er hægt að senda inn beiðni um þjónustu hér ef sótt er um fyrir börn

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil