Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920

Út er komin bókin Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920 á vegum útgáfunnar De Gruyter Brill. Æsa Sigurjónsdóttir, prófessor í listfræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, Sigrún Alba Sigurðardóttir, sjálfstætt starfandi fræðimaður og rithöfundur, og Inga Lára Baldvinsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Ljósmyndasafns Íslands hjá Þjóðminjasafni Íslands, skrifa greinar í bókina.

Bókin er alþjóðlegt fræðirit sem fjallar um konur sem störfuðu sem ljósmyndarar víðs vegar um Norðurlönd á tímabilinu 1860-1920. Með nýjum rannsóknum og einstöku myndefni er ljósi varpað á konur sem frumkvöðla, listamenn og brautryðjendur í faginu og lögð áhersla á að skoða hvernig störf kvenna í ljósmyndaheiminum sköpuðu nýjar forsendur fyrir efnahagslegt og pólitískt sjálfstæði. Þær rannsóknir sem kynntar eru í bókinni sýna að kvenkyns ljósmyndarar, allt frá stórborgunum Kaupmannahöfn og Stokkhólmi til smærri bæja í Finnlandi og á Íslandi, áttu ýmislegt sameiginlegt og höfðu afgerandi áhrif á bæði þróun fagsins og stöðu kvenna í samfélaginu.

Grein Æsu í bókinni fjallar um ljósmyndarann Sigríði Zoëga (1989-1968) og veru hennar hjá hinum þekkta ljósmyndara August Sander í Þýskalandi á árunum fyrir fyrri heimstyrjöld, auk þess sem hennar eigin myndatökum eru gerð góð skil. Sigrún Alba fjallar um ljósmyndarana Önnu Schiöth (1846-1921) og Engel Jensen (1877-1963) sem báðar störfuðu um árabil sem ljósmyndarar á Akureyri og grein Ingu Láru fjallar um ljósmyndarann Nicoline Weywadt (1848-1921) og brautryðjendastarf hennar við ljósmyndun á Austurlandi.

Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands og Þjóðminjasafn Íslands standa fyrir opinni málstofu í tilefni útgáfunnar í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins, fimmtudaginn 15. október kl. 15:00-17:00. Þar munu Æsa, Sigrún Alba og Inga Lára kynna rannsóknir sínar og segja frá bókinni.

Ljósmyndina sem fylgir fréttinni tók Sigríður Zoëga og myndin er í vörslu Þjóðminjasafns Íslands.

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil