Þjóðminjasafn
- Aðgangur ókeypis
Málþing um konur í norrænni ljósmyndun og kynning á bókinni Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860 – 1920
Fimmtudaginn 15. október kl. 15-17 munu Þjóðminjasafn Íslands og Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands standa fyrir málstofu í Þjóðminjasafninu um konur í norrænni ljósmyndun á árunum 1860-1920. Málþingið er haldið í tengslum við útgáfu bókarinnar Striving for Independence. Nordic Women Studio Photographers, 1860-1920.
Striving for Independence: Nordic Women Studio Photographers 1860-1920, er alþjóðlegt fræðirit sem fjallar um konur sem störfuðu sem ljósmyndarar víðs vegar um Norðurlönd á tímabilinu. Með nýjum rannsóknum og einstöku myndefni er varpað ljósi á konur sem frumkvöðla, listamenn og brautryðjendur í faginu og lögð áhersla á að skoða hvernig störf kvenna í ljósmyndaheiminum sköpuðu nýjar forsendur fyrir efnahagslegt og pólitískt sjálfstæði. Þær rannsóknir sem kynntar eru í bókinni sýna að kvenkyns ljósmyndarar, allt frá stórborgunum Kaupmannahöfn og Stokkhólmi til smærri bæja í Finnlandi og á Íslandi, áttu ýmislegt sameiginlegt og höfðu afgerandi áhrif á bæði þróun fagsins og stöðu kvenna í samfélaginu. Margar þeirra sem ráku eigin stofur réðu eingöngu konur sem aðstoðarmenn, sumar þeirra giftust aldrei og nokkrar þeirra bjuggu í ævilöngum samböndum með konum. Þar að auki tilheyrðu þessir frumkvöðlar kynslóð sem í fyrsta sinn hafði vald til að skilgreina og móta hvernig þær sjálfar og aðrar konur birtust í gegnum myndefni. Á þessu tímabili störfuðu þó nokkuð margar konur sem ljósmyndarar á Íslandi, þær sóttu sér menntun til Danmerkur og Þýskalands, og ráku sumar hverjar eigin ljósmyndastofur á Íslandi um lengri eða styttri tíma. Með þeim hætti gátu þær ekki aðeins lagt rækt við starf sem þær höfðu valið sér, og jafnvel ræktað sjálfstæða listsköpun. Auk þess gátu þær séð fyrir sér og sínum og verið óháðar öðrum fjárhagslega.
Á málþinginu munu þær Æsa Sigurjónsdóttir, Sigrún Alba Sigurðardóttir og Inga Lára Baldvinsdóttir kynna rannsóknir sínar á íslenskum ljósmyndurum á tímabilinu og segja frá bókinni.
Boðið verður upp á léttar veitingar að málþingi loknu.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!