Kristín Loftsdóttir, Ástralíu

Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands, var skipuð heiðursdósent (Honorary Associate Professor) við Austalian National University (ANU) til tveggja ára frá síðastliðnu vori. Skipunin tengist mánaðarlangri heimsókn hennar til ANU síðasta sumar þar sem hún hélt m.a. áfram rannsóknum sínum tengdum brjóstmyndum af frumbyggjum sem snerta landkönnunar- og nýlendustefnu evrópskra þjóða.

Rannsóknardvölin var liður í framhaldsverkefni sem byggist á rannsókn Kristínar á brjóstmyndasafni El Museo Canario í Las Palmas á Kanaríeyjum. Safnið keypti brjóstmyndirnar frá París í lok 19. aldar en flestar þeirra tengjast frönsku landkönnuðar- og nýlenduverkefnum þeirrar aldar. Kristín hefur m.a. fjallað um þá rannsókn í bókinni Andlit til sýnis sem kom út hjá Sögufélaginu árið 2023. Þar leitaðist hún við að gera sýnilega sögu einstaklinganna sem brjóstmyndirnar voru mótaðar eftir og rekja uppruna þeirra og aðstæður við gerð þeirra.

Í nýja verkefninu leggur Kristín megináherslu á merkingu brjóstmyndanna í samtímanum og hvernig saga þeirra snertir þau samfélög sem einstaklingarnir tilheyrðu. „Í mörgum tilfellum var um að ræða fólk frá samfélögum sem urðu fyrir miklu ofbeldi af völdum evrópskrar nýlendustefnu eða einstaklinga sem voru í viðkvæmri stöðu af öðrum ástæðum,“ útskýrir Kristín.

Frá háskólasvæði Waikato-háskóla
Frá háskólasvæði University of Waikato á Nýja-Sjálandi.

Beinir sjónum að brjóstmyndum í Tasmaníu

Á meðan á rannsóknadvölinni í Ástralíu stóð beindi Kristín sjónum að brjóstmyndum sem voru gerðar í Tasmaníu um miðja 19. öld og merkingu þeirra í samtímanum. Nokkur söfn í Ástralíu varðveita eintök af tveimur þessara brjóstmynda, sem einnig finnast í evrópskum söfnum. Þær sýna tvo einstaklinga Nuennone- samfélagsins sem voru hluti af Palawa-fólksins í Tasmaníu. Þessar tvær brjóstmyndir hafa lengi verið umdeildar í Ástralíu, sérstaklega þar sem þær hafa oft verið kynntar sem sem afsteypur af fólki sem tilheyrðri útdauðri þjóð. Sú framsetning tengist tengist umræðu um landnám og nýlenduofbeldi í Ástralíu og afleiðingar þess í samtímanum.

Á meðan dvölinni í Ástralíu stóð heimsótti Kristín fjölda safna, tók viðtöl við safnverði sem og sérfræðinga í málefnum Palawa-fólksins frá Tasmaníu. Rannsókninni var svo haldið áfram í Nýja-Sjálandi þaðan sem tvær brjóstmyndir á safninu á Kanaríeyjum koma, en þar heimsótti Kristín einnig þær slóðir þar sem brjóstmyndirnar voru búnar til og tók viðtöl við sérfræðinga ásamt því að heimsækja söfn þar í landi.

Skipulagði málþing og flutti fyrirlestra

Á meðan á dvöl hennar í Ástralíu stóð skipulagði Kristín enn fremur málþing ásamt Tim Heffernan, lektor við ANU, en málþingið og rannsóknardvölin voru styrkt af ANU Hansen Friendship Endowment. Málþingið bar yfirskriftina‘Whiteness and Exceptionalism in Australia, the Nordics, and Beyond’. Á dagskrá voru fjórir fyrirlestra og vinnustofa en málþingið er fyrsti viðburður Norden@ANU netverksins.

Kristín opnaði málþingið með fyrirlestri um hvíta forréttindahyggju og sérstöðuhyggju á Norðurlöndunum. Aðrir fyrirlesarar voru áðurnefndur Heffernan ásamt Thao Phan og Kathryn Allan sem einnig starfa við ANU. Þau nálguðust viðfangsefnin út frá ólíkum þáttum ástralsks samfélags. Sérstök áhersla var lögð á hvernig hugmyndir um sérstöðu og hvítleika mótast í staðbundnu samhengi og tengjast jafnframt víðari þverþjóðlegri umræðu.

Kristín flutti enn fremur þrjá fyrirlestra á meðan hún dvaldist í Ástralíu og á Nýja-Sjálandi, við ANU, University of Waikato og University of Otago. Þar kynnti hún rannsókn sína á brjóstmyndasafninu á Kanaríeyjum og lagði áherslu á tengsl fortíðar og nútíðar.

landnemasafn
Frá Landnemasafninu í Toito Otago

Deila

Efnisorð
Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil