Flestir Íslendingar þekkja Gran Canaria sem sumarleyfisstað, en í höfuðborg eyjunnar má finna forvitnilegt safn brjóstmynda. Brjóstmyndir sjö Íslendinga eru þar meðal annarra í eigu safnsins, sem snýr aðallega að efnismenningu frumbyggja eyjanna. Í bókinni Andlit til sýnis: Íslendingar og aðrir á Kanarísafninu, sem gefin var út hjá Sögufélagi, segir Kristín Loftsdóttir, prófessor í mannfræði og höfundur bókarinnar, frá brjóstmyndunum á safninu og hvernig þær urðu til. Bókin er afrakstur umfangsmikils rannsóknarverkefnis sem tengist fyrst og fremst Kanaríeyjum en hefur einnig falið í sér rannsóknarvinnu á meginlandi Spánar og í Frakklandi og kemur inn á mörg málefni sem snerta samtíma okkar.
„Ég nota brjóstmyndirnar á Kanarísafninu sem útgangspunkt til þess að fjalla um heim sem var mjög samtengdur þegar á 19. öld. Mörg átakamálefni samtímans verða skiljanlegri þegar við skoðum þetta tímabil,“ útskýrir Kristín. „Flestar þessar brjóstmyndir voru gerðar í leiðöngrum Frakka á fjarlægar slóðir um miðja 19. öld og þá eftir mótum sem voru tekin af andlitum raunverulegs fólks. Flestir voru lifandi en í sumum tilfellum var viðkomandi látinn. Í slíkum leiðöngrum voru markmiðin bæði vísindaleg og hernaðarleg, en slík markmið voru oft mjög samfléttuð.“

Húsakynni safnsins á Gran Canaria. MYND/Kristín Loftsdóttir
Kristín segir frá því að þegar hún kom á safnið á Kanaríeyjum í fyrsta sinn hafi henni þótt áhugavert að hugsa til þess að allar þessar brjóstmyndir hafi verið fluttar með töluverðri fyrirhöfn og tilkostnaði frá Frakklandi til Kanaríeyja. „Gifs er viðkvæmt efni og það brotnar auðveldlega. Fyrstu spurningarnar í rannsókninni voru í raun þær sem ég spyr í bókinni: Hvaðan koma þessar brjóstmyndir upphaflega? Af hverju voru þær gerðar og keyptar? Hver er saga þessa einstaklinga? Mér fannst eitthvað heillandi við að Kanaríeyjar eru að mörgu leyti á jaðri Evrópu rétt eins og Ísland var á sínum tíma en líka mjög miðlægar því hér komu ferðalangar oft við þegar þeir ætluðu yfir Atlantshafið. Safnið var mjög mikilvægt fyrir samfélagið á Gran Canaria í lok 19. aldar. Þeir sem stóðu að því sáu að menningarminjar eyjanna voru fluttar í stórum stíl frá eyjunum og eitt hlutverk safnsins var einmitt að halda þeim innan eyjanna.“
Samtengdur heimur - Furðustofur og sýningar á fólki
Fyrsti hluti bókarinnar segir frá samtengingu heimsins í kjölfar þess að Evrópubúar lögðu undir sig svokallaðan „nýja heim“ en Kristín leggur áherslu á þá umbyltingu sem það fól í sér með því að benda á samtengda sögu fólks, lífvera og umhverfis á þessum umbrotatímum. „Það sem skiptir máli er ekki fundur álfunnar heldur hernám hennar. Heimurinn í dag er afleiðing af tengslum ólíkra hluta heimsins. Hann er ekki tilkominn vegna þess að einhver svæði hafi verið í einangrun eins og stundum mætti halda þegar við fylgjumst með samtímaumræðu. Þegar við lítum aftur í aldir þá hefur verið mikil hreyfing á öllu. Heimsvaldastefnan tengdi saman líf fólks á ólíkum stöðum í heiminum.“
Kristín fjallar um sýningar á fólki til skemmtunar og fróðleiks fyrir almenning í Evrópu og Norður-Ameríku en sýningar á lifandi fólki frá öðrum heimsálfum – og þeim sem voru mörkuð sem framandi á einhvern hátt – vöktu mikinn áhuga og athygli í ólíkum Evrópulöndum.
Kristín undirstrikar í bókinni að saga slíkra sýninga skarast á við kynþáttafordóma og afmennskun þeirra sem á einhvern hátt féllu ekki innan þess sem þótti eðlilegt eða æskilegt. „Myndefni, textar og hlutir frá samfélögum sem var stillt upp sem framandi fólki í Evrópu voru hluti af því að skilgreina hvað Evrópa væri,“ segir Kristín, „en slíkar hugmyndir byggðu að miklu leyti á að flokka hvað væri betra og hvað væri verra.“ Í bókinni eru rakin nokkur dæmi um furðusýningar en jafnframt fjallað um annars konar sýningar á líkömum, svo sem vaxmódel af líkömum sem voru meðal annars notuð til kennslu um mannslíkamann.

Dæmi um Venusarstúlku til sýnis. MYND/Kristín Loftsdóttir
Kristín bendir á í því samhengi að furðusýningar gengu einnig út á að minna aðra hópa á stöðu sína og tekur sem dæmi vaxmyndir af líkömum sem voru einnig vinsælar á furðusýningum. „Í því samhengi má minnast á hinar svokölluðu Venusarstúlkur því þær endurspegla líka þröngar hugmyndir um stöðu kynja á þeim tíma. Venusarstúlkur voru líkamar úr vaxi sem sýndu líkama kvenna og var hægt að rýna inn í þær og taka út hluta af líffærum. Þær höfðu oft raunverulegt hár og raunsæja andlitsdrætti og gjarnan undrunarsvip eða jafnvel lostasvip á andliti. Ég sá eina slíka stúlku úr vaxi í glerkistu á læknasafni í Belgíu og þar mátti sjá hendur með skyrtuhnappa halda þétt um opinn líkamann á meðan hún virðist hálf sofandi. Það var ekki hægt að taka líffærin úr henni en þetta leit engu að síður mjög undarlega út.“
