Helga Jónsdóttir, prófessor í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands, og Jónína Ólafsdóttir Kárdal, náms- og starfsráðgjafi við skólann, hlutu á dögunum viðurkenningar Hollvinasamtaka Minnesota-háskóla í Bandaríkjunum fyrir annars vegar framúrskarandi forystuhlutverk á sviði hjúkrunarfræði og hins vegar fyrir óeigingjarnt hollvinastarf í þágu skólans. Minnesota-háskóli er elsti samstarfsskóli Háskóla Íslands en skólarnir fagna 45 ára samstarfsafmæli á næsta ári.
Viðurkenningar Hollvinasamtaka Minnesota-háskóla voru afhentar á árlegri Heimkomuviku (Homecoming week) skólans í lok október og voru Helga og Jónína viðstaddar hátíðahöldin. Með viðurkenningunum vill skólinn verðlauna fyrrverandi nemendur víða um heim sem hafa haft áhrif innan sinna starfsgreina og um leið styrkt háskólasamfélag Minnesota-háskóla á alþjóðavísu. Verðlaunin hafa verið veitt í nærri 80 ár og eru í nokkrum flokkum.