Nemendur við Háskóla Íslands sem sækja um skiptinám við Minnesota-háskóla og þau sem lokið hafa prófgráðu frá HÍ og stefna á fullt framhaldsnám við skólann geta sótt um Val Bjornson styrk.
Minnesota-háskóli er mikils metinn rannsóknaháskóli í Minneapolis-St. Paul, stórborg í miðríkjum Bandaríkjanna. Borgin býður upp á fjölbreytt menningarlíf og mikla útivistarmöguleika.
Styrktarsjóður Val Bjornson (Val Bjornson Icelandic Exchange Scholarship Fund) var stofnaður í minningu Valdimars „Val“ Bjornsonar (1906 –1987), fyrrverandi fjármálaráðherra Minnesota-fylkis sem var af íslensku bergi brotinn. Sjóðurinn nýtur mikils stuðnings vestur-íslenska samfélagsins í Minnesota. Val Bjornson styrktarsjóðurinn hefur styrkt íslenska nemendur til náms við Minnesota-háskóla frá árinu 1982.
Styrkurinn nemur húsnæði, fæði, tryggingu, bókakostnaði o.fl. í eitt námsár. Skólagjöld eru auk þess felld niður. Skilyrði er að nemandi sé íslenskur ríkisborgari og hafi lokið a.m.k. 60 ECTS einingum í námi við Háskóla Íslands, eða hafi brautskráðst frá Háskóla Íslands sé sótt um styrk vegna framhaldsnáms.
Valnefnd styrktarsjóðs Val Bjornsonar metur umsóknir þar sem m.a. er tekið mið af námsferli, framtíðarmarkmiðum, meðmælum og frammistöðu í viðtali ef við á. Nefndin áskilur sér rétt til þess að skipta styrknum milli tveggja nemanda í eitt misseri hvor. Endanlegt val er háð samþykki Minnesota-háskóla.
Sótt er um rafrænt og fylgigögn (á ensku) hengd við umsóknina.