Boðið verður upp á hátt í 300 erindi í 70 málstofum sem snerta allar hliðar skóla- og frístundastarfs á hinni árlegu ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Menntakviku, sem fram er í Sögu dagana 30. september og 1. október. Þetta er í 30. sinn sem ráðstefnan er haldin.
Menntakvika, sem er stærsta árlega ráðstefnan á sviði menntavísinda hér á landi og er nú haldin í annað sinn í Sögu, nýjum húsakynnum Menntavísindasviðs. Ráðstefnan hefur fyrir löngu skapað sér sess sem mikilvægur vettvangur fyrir faglega og framsækna umræðu um menntamál og þátttakendur eru m.a. fræðafólk á Menntavísindasviði HÍ og öðrum fræðasviðum skólans og úr öðrum háskólum og sérfræðingar frá ýmsum stofnunum og af öðrum skólastigum.
Orðaforði og læsi, nám á tímum gervigreindar, líðan ungs fólks, fæðuval og matvendni barna, háskólakennsla, stúlkur og knattspyrna, drengjaorðræða og menntapólitík, afreks- og almenningsíþróttir, fjöltyngi og málþroski, farsæld, tómstundir og félagsstarf ungs fólks og réttindi barna er aðeins brot að því sem verður til umfjöllunar á ráðstefnunni en alls eru málstofurnar á ráðstefnunni um 70 talsins.
Ráðstefnan hefst á miðvikudagsmorgninum 30. september með vinnustofu og málstofum en kl. 14 þann dag fer aðalmálstofa ráðstefnunnar fram í stofu 114 í Sögu. Þar verður fjallað um opinbera umræðu um menntarannsóknir og stöðu menntakerfisins. Hvaða áskorunum standa forsvarsmenn rannsókna og mælinga frammi fyrir og hvernig er best að koma niðurstöðum og tillögum um aðgerðir á framfæri og í farveg þannig að þær nýtist samfélaginu sem best? Þátttakendur í málstofunni eru fjölbreyttur hópur fræðimanna, sérfræðinga úr stofnunum og ráðuneytum og fjölmiðlum. Málstofan verður í beinu streymi.
Menntakvika heldur svo áfram fimmtudaginn 1. október þar sem einnig verður boðið upp á vinnusmiðjur og málstofur með afar fjölbreyttum erindum.
Menntakvika er öllum opin og ókeypis og allar nánari upplýsingar um ráðstefnuna er að finna á vef ráðstefnunnar.