Háskólabygging Neshaga
Hvenær
30. september 2026
14:00 til 15:30
Hvar

Saga

S-114

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu?

30. september 2026 kl. 14-15.30 í Sögu S-114 og í streymi

Fundarstjóri: Jón Torfi Jónasson prófessor emeritus og fyrrverandi forseti Menntavísindasviðs

Í aðalmálstofu Menntakviku verður fjallað um opinbera umræðu um menntarannsóknir og stöðu menntakerfisins. Hvaða áskorunum standa forsvarsmenn rannsókna og mælinga frammi fyrir og hvernig er best að koma niðurstöðum og tillögum um aðgerðir á framfæri og í farveg? Fjallað verður um þetta í samhengi við nýjustu og fyrri niðurstöður PISA en einnig Matsferil og þau tækifæri sem slík reglubundin mæling getur haft í för með sér. Sjónarhorn MMS, fjölmiðlamanneskju og fræðimanna MVS koma saman og fyrirlesarar velta fyrir sér hvernig hægt er að þróa umræðuna og leggja grunn að stefnumótun til framtíðar í stað skammtímalausna og upphrópana.

Fundarstjóri kynnir efni fundar og fyrirlesara

Freyja Hreinsdóttir forseti Menntavísindasviðs flytur ávarp

Katrín Ólafsdóttir lektor við MVS: Ábyrgð fræðimanna í opinberri umræðu um menntamál

Guðrún Hálfdánardóttir dagskrárgerðarmaður á RÚV:  Áskoranir sem fjölmiðlafólk stendur frammi fyrir þegar kemur að því að upplýsa um menntamál 

Þórdís Sigurðardóttir forstjóri MMS: Mikilvægi Matsferils, tækifæri og áskoranir? 

Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor og ritstjóri nýrrar skýrslu um niðurstöður PISA 2025: Hvernig komum við áfram góðum hugmyndum og tillögum til úrbóta?

Pallborðsumræður

 Lokaorð frá fundarstjóra

Ekki verður tekið á móti spurningum úr sal en hægt er að senda spurningar til pallborðs fyrirfram á menntavisindastofnun@hi.is og mun fundarstjóri sjá um að koma þeim áleiðis.

Málstofan er hluti af dagskrá Menntakviku, ráðstefnu í Menntavísindum, sem haldin verður 30. september - 1. október í Sögu. Hægt er að skoða dagskrá Menntakviku hér.

Nánari upplýsingar um Menntakviku er að finna á www.menntakvika.hi.is

Aðalmálstofa Menntakviku 2026:    Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu?
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil