Félagsvísindi Alþjóðamálastofnun og stofnun um smáríki Vettvangur rannsókna og fræðslu um alþjóðamál. Markmið rannsóknasetursins er að auka rannsóknir og fræðslu í smáríkjafræðum (small state studies). Stofnuninn vinnur þvert á Félagsvísinda- og Hugvísindasvið. Félagsvísindastofnun Stofnunin sinnir rannsóknum, ráðgjöf og þjónustuverkefnum sem tengjast viðfangsefnum félagsvísindanna. Sjálfbærnistofnun Meginhlutverk stofnunarinnar er tvíþætt: að stuðla að rannsóknum og samstarfi um hina ýmsu þætti sjálfbærrar þróunar og að vera vettvangur fyrir þverfræðilegar rannsóknir háskólakennara og sérfræðinga. Félagsfræði-, mannfræði- og þjóðfræðideild Rannsóknastofa í afbrotafræði Rannsóknarstofan er samstarfsvettvangur Háskóla Íslands og Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Stofan annast fyrst og fremst margvíslegar rannsóknir er lúta að málaflokki afbrota. Rannsóknasetur um fjölmiðlun og boðskipti Rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun sem starfrækt er af Háskólanum á Akureyri og Háskóla Íslands. Rannsóknasetur um fólksflutninga og fjölmenningu Leggur áherslu á þverfaglega nálgun og samstarf við önnur rannsóknarsetur og stofnanir sem vinna að svipuðum málefnum. Rannsóknasetur í fötlunarfræðum Markmið Rannsóknasetursins er að stuðla að, hvetja og kynna rannsóknir á málefnum tengdum fjölmenningu, innflytjendum og farandverkafólki, og jafnframt tengdum málefnum svo sem þjóðerni, kynþáttahyggju, samlögun og samþættingu. Rannsóknasetur í safnafræðum Hlutverk Rannsóknaseturs í safnafræðum er að sinna rannsóknartengdum þjónustuverkefnum á sviði safnafræða, efla tengsl rannsókna og kennslu á sviði safnafræða. Setið á í samstarfi við innlendar og erlendar rannsóknastofnanir, fræðimenn í safnafræðum og skyldum greinum, og stuðlar að tengslum við atvinnu- og þjóðlíf. Þjóðmálastofnun Stofnunin annast rannsóknir á sviði velferðar, atvinnumála og þjóðfélagsbreytinga. Hún er hluti af norrænu öndvegissetri í velferðarrannsóknum (NCoE Welfare Research). Félagsráðgjafardeild Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd hefur það að markmiði að efla fjölskyldurannsóknir í félagsráðgjöf. Fjölskyldurannsóknir fjalla um samskipti og samspil í fjölskyldum og taka til allra aldurshópa og lífsskeiða. Vaxandi Vaxandi er miðstöð um samfélagslega nýsköpun við Háskóla Íslands. Markmið Vaxandi er að efla þekkingu á starfi félagasamtaka á Íslandi og annarra sem starfa án hagnaðarvonar með sérstakri áherslu á samfélaga nýsköpun og félagslega frumkvöðla. Hagfræðideild Hagfræðistofnun Rannsóknir í hagfræði og öflun þekkingar á þjóðarbúskap Íslendinga. Lagadeild Lagastofnun Vísindaleg rannsókna- og kennslustofnun í lögfræði og skyldum greinum. Hafréttarstofnun Íslands Meginmarkmið stofnunarinnar að treysta þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar. Mannréttindastofnun HÍ Vinnur að rannsóknum á lögfræðilegum þáttum mannréttinda, annast dreifingu á niðurstöðum þeirra og styður kennslu á þessu sviði. Rannsóknastofnun Ármanns Snævarr um fjölskyldumálefni Vettvangur lögfræðirannsókna og þróunarstarfs í málefnum fjölskyldna og barna í þverfaglegu samstarfi við önnur fræðasvið og rannsóknastofnanir sem fjalla um fjölskyldumálefni. Rannsóknastofa í Evrópurétti Rannsóknastofa í umhverfis- og auðlindarétti Stjórnmálafræðideild Alþjóðamálastofnun Vettvangur rannsókna og fræðslu um alþjóðamál. Markmið rannsóknasetursins er að auka rannsóknir og fræðslu í smáríkjafræðum (small state studies). MARK – Miðstöð margbreytileika- og kynjarannsókna Íslenska kosningarannsóknin Íslenska kosningarannsóknin (ÍsKos) gegnir burðarhlutverki í rannsóknum á stjórnmálaviðhorfum og kosningahegðun íslensks almennings. Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála Meginmarkmið Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála er að efla kennslu og rannsóknir í stjórnun opinberra stofnana, bæði ríkis og sveitarfélaga. Viðskiptafræðideild Viðskiptafræðistofnun Vettvangur til að sinna rannsóknum, samhæfa þær og kynna niðurstöður þeirra. Stofnunin myndar einnig tengsl í viðskiptafræðum og skyldum greinum milli deildarinnar og aðila utan hennar gegnum þjónusturannsóknir, ráðgjöf og álitsgerðir. Rannsóknarmiðstöð um nýsköpun og alþjóðaviðskipti Rannsóknarmiðstöð um stefnu og samkeppnishæfni Heilbrigðisvísindi Heilbrigðisvísindastofnun Erfðafræðinefnd Háskóla Íslands Rannsókna- og þjónustustofnun starfrækt af Heilbrigðisvísindasviði og Landspítala. Stofnunin er m.a. vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði erfðafræði. Lífeðlisfræðistofnun Veitir öllum fastráðnum kennurum Háskólans í lífeðlisfræði rannsóknaraðstöðu. Einnig getur stjórn stofnunarinnar veitt vísindamönnum á öðrum fræðasviðum aðstöðu eftir því sem aðstæður leyfa og efni standa til. Lífefna- og sameindalíffræðistofa Rannsóknastofan er starfsvettvangur kennara fræðasviðsins í lífefnafræði, meinefnafræði og erfðalæknisfræði við læknadeild. Lífvísindasetur HÍ Lífvísindasetur Háskóla Íslands er formlegt samstarf þeirra rannsóknahópa á sviði lífvísinda sem óska eftir að vera aðilar að setrinu. Rannsóknahóparnir stunda rannsóknir á ýmsum sviðum lífvísinda, svo sem sameindalíffræði krabbameins, starfsemi og sérhæfingu stofnfruma, taugalíffræði, stjórnun genatjáningar, erfðalækninga, næringar- og matvælafræði, ónæmisfræði auk ýmissa sviða lífeðlisfræði. Miðstöð í lýðheilsuvísindum (MLV) Miðstöð í lýðheilsuvísindum (MLV) er rannsóknarstofnun við Háskóla Íslands og umsjónaraðili þverfræðilegs meistara- og doktorsnáms í lýðheilsuvísindum, faraldsfræði og líftölfræði. Rannsóknamiðstöð um sjónskynjun Hjá Rannsóknamiðstöð um sjónskynjun (Icelandic Vision Lab) eru gerðar rannsóknir á sjónskynjun og öðrum hugarferlum. Á meðal rannsóknarefna eru sjónræn athygli, augnhreyfingar, hluta- og andlitsskynjun, sjónrænt minni, sjónræn „mynsturgreining“ (e. visual statistics) og áhrif náms og reynslu á skynferli. Rannsóknastofa í atferlisgreiningu Rannsóknastofan er vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum atferlisgreiningar. Rannsóknastofa í hreyfivísindum Rannsóknastofa í hreyfivísindum við námsbraut í sjúkraþjálfun Háskóla Íslands er vísindaleg rannsóknastofnun. Með hreyfivísindum er átt við öll þau fræði sem tengjast hreyfingum mannslíkamans á einn eða annan hátt. Rannsóknakjarni LSH í klíniskri lífefnafræði og blóðmeinafræði Rannsóknastofa í krabbameinsfræðum Rannsóknir sem auka þekkingu og skilning á eðli krabbameins. Rannsóknastofa í lyfja- og eiturefnafræði Í stofunni er unnið að grunn- og þjónusturannsóknum í líflyfjafræði, réttarefnafræði og eiturefnafræði. Rannsóknastofa í matvælaefnafræði Rannsóknastofa í meinafræði Rannsóknastofa í næringarfræði Ónæmisfræðideild LSH Rannsóknastofa í stofnfrumufræðum Rannsóknastofan er hluti af Lífvísindasetri. Sýkla- og veirufræðideild LSH Rannsóknastofnun um lyfjamál Tannlækningastofnun Rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun í tannlæknisfræði og skyldum greinum sem stundaðar eru við tannlæknadeild. Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum Meginviðfangsefni eru rannsóknir og greining sjúkdóma í dýrum og framleiðsla bóluefna gegn sauðfjársjúkdómum. Hugvísindi Alþjóðamálastofnun og stofnun um smáríki Vettvangur rannsókna og fræðslu um alþjóðamál. Markmið rannsóknasetursins er að auka rannsóknir og fræðslu í smáríkjafræðum (small state studies). Stofnuninn vinnur þvert á Félagsvísinda- og Hugvísindasvið. Asíusetur Íslands (ASÍS) Stendur að rannsóknum og menntastarfsemi sem snýr að Asíu. Bókmennta- og listfræðastofnun Kennsla og rannsóknir á íslenskum bókmenntum og almennri bókmenntafræði. Breiðdalssetur Miðstöð málvísinda, jarðfræði og sögu EDDA – Öndvegissetur Guðfræðistofnun Rannsókna-, þjónustu- og kennslustofnun í guðfræði og greinum henni skyldum sem stundaðar eru í guðfræðideild. Heimspekistofnun Rannsóknir í heimspeki og er ráðgefandi varðandi kennslu, námsefni og próf í heimspeki í skólum landsins. Útgáfa ritverka um heimspekileg málefni. Hugvísindastofnun Vettvangur rannsókna- og þróunarstarfs á fræðasviðum Hugvísindasviðs. Veitir aðildarstofnunum og fræðimönnum þjónustu og aðstoð við verkefni sem tengjast rannsóknum og gengst fyrir ráðstefnum, málstofum og útgáfu. Konfúsíusarstofnunin Norðurljós Tilgangur stofnunarinnar er að stuðla að námi í kínverskri tungu sem og fræðslu um kínverska menningu og samfélag. Máltæknisetur Máltæknisetur er samstarfsvettvangur Málvísindastofnunar Háskólans, Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum og tækni- og verkfræðideildar Háskólans í Reykjavík um rannsóknir og þróun í tungutækni. Málvísindastofnun Grundvallarrannsóknir í íslenskum og almennum málvísindum. RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum Sagnfræðistofnun Annast rannsóknir í sagnfræði og gengst fyrir ráðstefnum, námskeiðum, fyrirlestrum og hvers kyns annarri starfsemi sem kynnir sagnfræði fyrir almenningi. Siðfræðistofnun Rannsókna-, fræðslu- og þjónustustofnun, er meðal annars vettvangur þverfaglegs samstarfs á sviði siðfræði. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum Rannsóknir á erlendum tungumálum. Meðal rannsóknasviða eru: málvísindi, bókmenntir og menningarfræði, notagildi erlendra tungumála í atvinnulífi, kennsla erlendra tungumála og þýðingar. Útgáfa rita um sama efni. Ráðgjöf um framangreind fræðasvið. Menntavísindi Menntavísindastofnun Rannsóknir, ráðgjöf og þjónustuverkefni á sviði menntavísinda. Rannsóknasetur um lífshætti barna og ungmenna Rannsóknastofa í bernsku- og æskulýðsfræðum (BÆR) Rannsóknastofa í kennslufræði Rannsóknir á námi og kennslu, ráðgjöf og miðlun þekkingar á sviði kennslufræða og skólaþróunar. Rannsóknastofa í menntunarfræðum ungra barna (RannUng) Rannsóknir á lífi og lífsskilyrðum barna, unglinga og ungmenna þar sem menntun og uppeldi eru séð í heildrænu samhengi einstaklings og samfélags. Rannsóknastofa í fjölmenningarfræðum Rannsóknir og ráðgjöf á sviði fjölmenningar og fjölmenningarlegs samfélags og skólasamfélags á Íslandi. Rannsóknastofa í íþrótta- og heilsufræði (RÍH) Rannsóknir og ráðgjöf á sviði íþrótta- og heilsufræða. Rannsóknastofan er starfrækt í Laugardalshöll í Reykjavík. Rannsóknastofa í íslenskum fræðum og íslenskukennslu Rannsóknir á íslensku sem fræðasviði og námsgrein, íslenskukennslu og íslenskum menningararfi og skólastarfi. Rannsóknastofa í menntastjórnun, nýsköpun og mati á skólastarfi Rannsóknastofa í menntunarfræði ungra barna Rannsóknir og ráðgjöf á sviði menntunar og uppeldis ungra barna á aldrinum 0-8 ára. Rannsóknastofa í textíl Að rannsóknarstofunni standa Menntavísindasvið Háskóla Íslands og oddviti á textílkjörsviði sviðsins. Rannsóknastofa í tónlistarfræðum Rannsóknastofa í upplýsingatækni og miðlun (RannUM) Rannsóknir og þróunarstörf á sviði upplýsingatækni og miðlunar Rannsóknastofa í þroskaþjálfafræðum Rannsóknastofa námsgagna Rannsóknastofa um háskóla Rannsóknir á háskólum og starfsemi þeirra Rannsóknastofa um jafnrétti, kyngervi og menntun Rannsóknir á sviði kynjafræði og jafnréttis í skólum og í kennaramenntun Rannsóknastofa um menntakerfi Rannsóknastofa um nám og kennslu erlendra tungumála og annars máls Rannsóknir á námi og kennslu erlendra tungumála og íslensku sem annað mál. Rannsóknastofa um námskrá, námsmat og námsskipulag NNN Rannsóknastofa um náttúrufræðimenntun RAUN Rannsóknastofa um skapandi skólastarf RASK Rannsóknastofa um skóla án aðgreiningar Rannsóknir, miðlun þekkingar og ráðgjöf á sviði skóla án aðgreiningar. Rannsóknastofa um starfendarannsóknir Rannsóknastofa um stærðfræðimenntun Rannsóknir, ráðgjöf og miðlun þekkingar á sviði stærðfræðimenntunar. Rannsóknastofa um þroska, mál og læsi barna og unglinga Rannsóknir á málþroska, læsi og almennum þroska barna og unglinga. Rannsóknastofa um þróun skólastarfs Markmið er að skapa þekkingu og yfirsýn yfir þróun skólastarfs, þróun starfshátta í skólum, þróun menntakerfa og þróun ákveðinna námssviða eða námsgreina. Verkfræði- og náttúruvísindi Breiðdalssetur Miðstöð málvísinda, jarðfræði og sögu. Eðlisvísindastofnun Á Eðlisvísindastofnun eru stundaðar metnaðarfullar rannsóknir í stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði. Jarðvísindastofnun Háskólans Stundar rannsóknir og kennslu á sviði jarðvísinda með áherslu á jarðfræðilegar aðstæður Íslands og nánasta umhverfi þess. Líf- og umhverfisvísindastofnun Eflir rannsóknir og kennslu í líf- og landafræði á Íslandi. Jafnframt tekur stofnunin að sér rannsóknir á hagnýtum sviðunum. Náttúrurannsóknastöðin við Mývatn Vinnur í nánu samstarfi við Líffræðistofnun að rannsóknum á Mývatni og umhverfi þess. Norræna eldfjallasetrið Samnorræn stofnun er hefur það hlutverk að stunda rannsóknir í eldfjallafræði með áherslu á bergfræði, jarðefnafræði, jarðeðlisfræði og eldfjallasögu. Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF) Rannsóknamiðstöð ferðamála sinnir rannsóknum á íslenskri ferðaþjónustu og er ráðgefandi varðandi kennslu og námsefni í ferðamálafræðum á háskólastigi. Útgáfa greina, skýrslna og ritverka um ferðamálafræði. Rannsóknarmiðstöð í jarðskjálftaverkfræði Á vegum Rannsóknarmiðstöðvar í jarðskjálftaverkfræði, sem staðsett er á Selfossi, er unnið að fjölfaglegum rannsóknum á eðli og áhrifum jarðskjálfta. Rannsóknastofa um mannlegt atferli Rannsóknir og (líkana og hugbúnaðar) þróun varðandi skipulag mannlegs samskiptaatferlis. Rannsóknasetur í kerfislíffræði Miðstöð kerfislíffræði með áherslu á lífræn efnaskipti. Raunvísindastofnun Háskólans Á Raunvísindastofnun eru stundaðar grunnrannsóknir í raunvísindum. Verkfræðistofnun Háskóla Íslands Rannsóknir og þróunarstarfsemi á sviði tækni og verkvísinda. Þverfaglegar stofnanir Breiðdalssetur Miðstöð málvísinda, jarðfræði og sögu. Miðstöð munnlegrar sögu Miðstöð munnlegrar sögu er safn og rannsókna- og fræðslustofnun á sviði munnlegrar sögu. Hlutverk hennar er að safna munnlegum heimildum um sögu lands og þjóðar og varðveita þær til frambúðar. Rannsóknasetur Vestmannaeyja Útibú Háskóla Íslands í Vestmannaeyjum. Áhersla er lögð á rannsóknir og rannsóknatengt nám í náttúruvísindum og greinum sem tengjast atvinnulífinu í Eyjum. Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum Öflun og miðlun þekkingar á sviðum kvenna- og kynjafræða. Rannsóknastofa í vinnuvernd Rannsóknastofa í vinnuvernd (RIV) er vísindaleg rannsókna- og fræðslustofa sem er starfrækt af Vinnueftirlitinu og Háskóla Íslands. Stofnun rannsóknasetra Háskóla Íslands Rannsóknastofnanir Háskóla Íslands sinna rannsóknum, ráðgjöf og þjónustuverkefnum sem tengjast viðfangsefnum hvers fræðasviðs. Tengt efni Rannsóknasetur facebooklinkedintwitter