Sex kjörin í háskólaráð

Ólafur Pétur Pálsson, prófessor við Iðnaðarverkfræði-, vélaverkfræði- og tölvunarfræðideild á Verkfræði- og náttúruvísindasviði, Hrefna Dögg Gunnarsdóttir, lektor við Lagadeild á Félagsvísindasviði, og Ragný Þóra Guðjohnsen, dósent við Deild menntunar og margbreytileika á Menntavísindasviði, voru kjörin fulltrúar háskólasamfélagsins úr röðum akademískra starfsmanna skólans til setu í háskólaráði til næstu tveggja ára. Kosning fór fram á háskólaþingi 29. apríl.
Varafulltrúi Ólafs Péturs er Eiríkur Steingrímsson, prófessor við Læknadeild á Heilbrigðisvísindasviði, varafulltrúi Hrefnu Daggar er Arngrímur Vídalín, dósent við Deild faggreinakennslu á Menntavísindasviði, og varamaður Ragnýjar Þóru er Þórir Jónsson Hraundal, lektor við Mála- og menningardeild á Hugvísindasviði.
Auglýst var eftir framboðum og ábendingum um fulltrúa í háskólaráð nýverið. Allir frambjóðendur uppfylltu skilyrði reglna Háskóla Íslands um framboð og fór kosningin fram með rafrænum hætti á háskólaþingi að undangenginni kynningu á frambjóðendum.
Atkvæðisrétt höfðu rektor, forsetar fræðasviða, deildarforsetar, fulltrúar kjörnir af fræðasviðum, fulltrúar stéttarfélaga starfmanna og stjórnsýslu ásamt fulltrúm tengdra stofnana og samstarfsstofnana. Fulltrúar stúdenta höfðu ekki atkvæðisrétt í þessari kosningu þar sem þeir kjósa sína tvo fulltrúa í háskólaráði í sérstakri kosningu. Með atkvæðisrétt fóru samtals 55 þingfulltrúar og atkvæði greiddi 46. Kjörsókn var því 83,6%.
Fulltrúarnir taka sæti í háskólaráði frá og með 1. júlí næstkomandi og sitja í ráðinu til loka júnímánaðar 2028.
Stúdentar hafa kosið sína tvo fulltrúa í næsta háskólaráð og mun menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra tilnefna aðra tvo. Þessir átta koma saman í upphafi komandi haustmisseris til að velja þrjá utanaðkomandi fulltrúa til viðbótar og er þá nýtt 11 manna háskólaráð fullskipað.
