Skip to main content
4. júní 2026

Halda til sumarnáms í Stanford-háskóla

Halda til sumarnáms í Stanford-háskóla

Níu nemendur Háskóla Íslands verða í sumar við nám í Stanford-háskóla í Kaliforníu í svokölluðu Stanford Summer International Honors Program (SSIHP). Sumarnámið stendur yfir í átta vikur og veitir nemendum tækifæri á að kynnast einstöku alþjóðlegu háskóla- og vísindasamfélagi, afla sér nýrrar þekkingar og tengsla, auk möguleika á að fá námið metið inn í námsferil sinn við HÍ.

Nemendurnir sem halda til Stanford eru Askur Freyr Andrason, Ás Teitur Andrason og Inga Rakel Aradóttir, nemar í vélaverkfræði, Áslaug Edda Kristjánsdóttir, nemi í verkfræðilegri eðlisfræði, Elín Snæfríður Maximiliansdóttir Conrad, laganemi, Hrafnkell Stefán Hannesson, nemi í hagnýttri stærðfræði, Mist Reykdal Magnúsdóttir, nemi í efnafræði, Pétur Orri Pétursson, hagfræðinemi og Þorvaldur Wilhelm Sigurjónsson, nemi í umhverfis- og byggingarverkfræði.  

Nemendurnir stunda námið við Stanford, sem er í hópi fremstu háskóla heims, en taka jafnframt þátt í fjölbreyttri dagskrá utan kennslustunda, með áherslu á nýsköpun, frumkvöðlafræði og alþjóðlega sýn. Þá heimsækja þau m.a. Kísildalinn, sem er ein helsta miðstöð nýsköpunar- og tæknifyrirtækja í heiminum.  

Stanford-háskóli hefur átt samstarf við Háskóla Íslands um sumarnám allt frá árinu 2010. Á þessum fimmtán árum hefur alls 101 nemandi úr ólíkum greinum við HÍ nýtt sér þetta tækifæri til að stunda nám við Stanford. Í sumar bætast svo nemendurnir níu við þann hóp. 

Fjórir af níu tilvonandi Stanford-nemum, ásamt rektor og fulltrúum Alþjóðasviðs. Frá vinstri: Kristín Olga Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri á Alþjóðasviði, Friðrika Harðardóttir, sviðsstjóri Alþjóðasviðs, Hrafnkell Stefán Hannesson, Áslaug Edda Kristjánsdóttir, Elín Snæfríður Maximiliansdóttir Conrad, Pétur Orri Pétursson og Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands. Á myndina vantar: Ask Frey Andrason, Ás Teit Andrason, Ingu Rakel Aradóttur, Mist Reykdal Magnúsdóttur og Þorvald Wilhelm Sigurjónsson.