""
Rannsóknasjóður Háskóla Ísland: Verkefnastyrkir

Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknastarfsemi Háskóla Íslands og geta fastir kennarar og sérfræðingar við háskólann (þ.e. prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar) sótt um fé úr sjóðnum til greiðslu kostnaðar við rannsóknir.

Stjórn Rannsóknasjóðs er skipuð formönnum fimm sjálfstæðra fagráða, einu fyrir hvert fræðasvið.

Rektor skipar formann fyrir hvert fagráð og formann stjórnar Rannsóknasjóðs, sem ekki á sæti í fagráðum.

  • Miðað er við að styrkþegar sem hlutu styrk í fyrra til 2-3 ára sæki ekki um nýjan styrk fyrr en í lok styrktímabilisins.
  • Þeir sem sækja um til 2-3 ára og fá vilyrði fyrir styrk, fá hann í umbeðinn árafjölda.

Ath! Ekki þarf lengur að skila inn árlegum framvinduskýrslum heldur er aðeins farið fram á lokaskýrslu í lok styrktímabilsins. Hægt er að skoða upplýsingar um fyrri úthlutanir hér.

Opnað hefur verið fyrir umsóknir. Umsóknarfrestur er til 20. október, 2026.

Athugið að búa þarf til notendareikning á Researchweb til að senda inn umsókn í fyrsta skipti.

Fyrir umsækjendur

Í samræmi við 7. mgr. 75. gr. sameiginlegra reglna fyrir Háskóla Íslands setur vísindanefnd háskólaráðs eftirfarandi viðmið um vinnulag og mat á umsóknum í tengslum við úthlutun úr Rannsóknasjóði Háskóla Íslands.

Verkefnasjóður veitir styrki til rannsóknarverkefna akademískra starfsmanna. Aðjúnktstarf veitir ekki aðgang að verkefnasjóðnum. Verkefnasjóður styrkir aðeins eitt verkefni frá hverjum aðalumsækjanda. Auk þess getur umsækjandi ekki sótt um sem aðalumsækjandi áður en fyrra styrkstímabili er lokið og lokaskýrslu hefur verið skilað til Vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands.

Skv. reglum háskólans 569/2009, 75. grein annast stjórn Rannsóknasjóðs faglegt mat umsókna vegna verkefnastyrkja.

Nýjar umsóknir eru metnar af stjórn Rannsóknasjóðs á grundvelli gæðaviðmiða sem lýst er hér fyrir neðan.

Allar umsóknir sem uppfylla viðmið um gæði fá styrk. Upphæð styrks er ákveðin ár hvert með hliðsjón af því fjármagni sem er til ráðstöfunar í Rannsóknasjóði og fjölda samþykktra umsókna. Hægt er að sækja um styrk til eins, tveggja eða þriggja ára í senn.

Umsækjendur sem hafa verið í akademísku starfi í að hámarki fimm ár geta óskað eftir eingreiðslu á samþykktum styrk fyrir heildartímabilið þegar um tveggja eða þriggja ára styrk er að ræða. Sé slíks óskað þarf að fylgja greinagóður rökstuðningur til dæmis með vísun í kaup á efnum, öflun gagna eða aðgangi að gögnum.

Lokaskýrslu þarf að skila að styrktíma liðnum. Ekki þarf að skila framvinduskýrslu eftir hvert ár.

Við ákvörðun um upphæðir styrkja er stjórn Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands heimilt að taka tillit til þess hvort umsækjandi hafi hafið akademískt starf við Háskóla Íslands innan fimm ára frá úthlutun, eða hafi verið í barneigna- eða veikindaleyfi undangengin fimm ár.

Stjórn Rannsóknasjóðs metur umsóknir til sjóðsins. Í mati er áhersla lögð á skýrleika, fræðileg gæði og fýsileika umsókna.

Vísindanefnd háskólaráðs ákveður hámarksfjárhæð styrkja og fjölda styrkflokka en ákvörðun um úthlutun einstakra styrkja er í höndum stjórnar Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands.

Ef fulltrúar í stjórn Rannsóknasjóðs eru tengdir umsóknum eða umsækjanda skulu þeir víkja af fundi.

Sjá nánar um vanhæfi og hagsmunaárekstra á síðu Háskólaráðs.

Umsóknum er skilað á íslensku eða ensku.

Skil á lokaskýrslu vegna fyrri styrkja er skilyrði fyrir styrkveitingu.

Umsækjandi skal veita ótvíræð og tæmandi svör við öllum liðum umsóknarblaðsins. Ófullnægjandi umsóknir hljóta ekki afgreiðslu.

Athugið að umsóknarkerfið takmarkar lengd texta. Ekki er veitt undanþágu varðandi lengdarmörk umsókna.

Styrkir úr verkefnahluta Rannsóknasjóðs eru færðir yfir á það verkefnisnúmer sem umsækjendur gefa upp í umsókn. Ef stofna á nýtt númer þá skal snúa sér til skrifstofu viðkomandi fræðasviðs.

Styrkir til þeirra umsækjenda sem hafa bókhald sitt á stofnunum Háskólans sem hafa sjálfstæðan fjárhag eru færðir til viðkomandi stofnunar sem sér um yfirfærslu til styrkþega.

Styrkþegar snúa sér til viðkomandi starfseiningar vegna fjárhagslegs utanumhalds styrkja. Þeir sem hafa bókhald sitt á stofnunum er bent á skrifstofu stofnunar.

Eftirfarandi starfseiningar innan stjórnsýslu Háskóla Íslands sjá um umsýslu einstakra styrkþáttað:

Vísinda- og nýsköpunarsvið Háskóla Íslands upplýsir forseta, rekstrarstjóra, mannauðsstjóra og rannsóknarstjóra fræðasviðanna um hverjum var veittur styrkur.

Í því tilfelli sem aðstæður verða til sem koma í veg fyrir framkvæmd verkefnisins ber styrkþegi ábyrgð á að tilkynna Vísinda- og nýsköpunarsviði (rannsoknasjodir@hi.is) hvort óskað sé eftir niðurfellingu styrksins eða annarri ráðstöfun. Vísinda- og nýsköpunarsvið ber beiðni styrkþega undir stjórn Rannsóknasjóðs.

Reglur sjóðsins og aðrar upplýsingar um sjóðinn er að finna á vef Rannsóknasjóðs. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs (rannsoknasjodir@hi.is).

Styrkir eru einkum veittir til eftirtalinna kostnaðarþátta tengt rannsókninni:

a. Launa vegna vinnu meistaranema, doktorsnema, nýdoktora eða annarra sérfræðinga við rannsóknarverkefnið, samkvæmt umsókn.

b. Efniskostnaður. Aðeins er styrktur beinn efniskostnaður vegna rannsóknarinnar, ekki venjulegur skrifstofubúnaður s.s. tölvur.

c. Ferðakostnaður vegna gagnaöflunar erlendis er ekki veittur nema þegar sýnt þykir að ferðin sé nauðsynleg vegna eðlis verkefnis. (s.s. öflun gagna á vettvangi vegna rannsóknarinnar) Enn fremur er höfð hliðsjón af því hvort umsækjandi hefur aðgang að öðrum sjóðum sem veita ferðastyrki. Ferðastyrkir eru veittir samkvæmt áætluðum kostnaði en ekki dagpeningaákvæðum.

d. Aðkeypt þjónusta er t.d. sérfræðileg úrvinnsla eða öflun gagna, kannanir o.s.frv. e. Annars kostnaðar við rannsóknina sem ekki er talinn upp hér að framan.

e. Annars kostnaðar við rannsóknina sem ekki er talinn upp hér að framan

  • Upplýsingar um úthlutun fyrri ára, frá 2018-2026, má finna hér

Vinsamlega hafið samband við Vísinda-og nýsköpunarsvið ef óskað er eftir upplýsingum um eldri úthlutanir.

Geta gestakennarar sótt um í sjóðinn?
Nei, gestakennarar hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum.

Geta verkefnastjórar hjá HÍ sótt um í sjóðinn?
Nei, verkefnastjórar hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum.

Geta nýdoktorar hjá HÍ sótt um í sjóðinn?
Nei, nýdoktorar hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum.

Geta aðjúnkt hjá HÍ sótt um í sjóðinn?
Nei, aðjúnkt hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum.

Skiptir starfshlutfall máli til að geta sótt um í sjóðinn?
Nei, starfshlutfall skiptir ekki máli. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar og rannsóknalektorar við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum.

Er hægt að sækja um styrk fyrir annað verkefni, það er, að vera með styrki fyrir tvö (eða fleiri) aðskilin verkefni?
Nei, það er eingöngu hægt að vera með einn styrk í gangi hverju sinni. Skila þarf lokaskýrslu vegna síðustu styrkveitingar til að geta sótt um að nýju.

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil