""
Styrkir innan HÍ

Nemendum, kennurum og starfsfólki Háskóla Íslands standa til boða styrkir úr sjóðum sem starfræktir eru við Háskólann.

Því miður eru hvorki skráningargjöld né úrvinnslugjöld styrkhæf. Í sumum tilvikum er hægt að sækja um endurgreiðslu skráningargjalda hjá stéttarfélögum.

Sjóðirnir veita doktorsnemum og fræðafólki við Háskóla Íslands styrki til rannsókna. Auk þess eru á vegum Háskóla Íslands starfræktir yfir sextíu styrktar- og minningarsjóðir sem háskólanum hafa áskotnast með gjöfum og áheitum frá stofnun hans árið 1911. Markmið sjóðanna er að styðja við afmörkuð verkefni á ólíkum fræðasviðum og stuðla að framgangi nemenda og starfsfólks háskólans.

Nemendur Háskóla Íslands geta einnig sótt um Erasmus+ og Nordplus styrki til náms erlendis.

Nánari upplýsingar veitir rannsoknasjodir@hi.is.

Aðrir gagnlegir hlekkir
Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða
Tengiliðir
Skrifstofa rannsóknamats og innri sjóða, starfsfólk

Deila

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil