Háskóli Íslands fjárfestir í framúrskarandi rannsóknarinnviðum með mótframlagi til kaupa á rannsóknarbúnaði sem styrktur er af Innviðasjóði. Með því skapast forsendur fyrir fræðasvið, deildir og rannsóknareiningar innan háskólans til að byggja upp öflugan rannsóknarbúnað og rannsóknaraðstöðu.
Stærstu verkefnin á sviði rannsóknarinnviða njóta stuðnings Vegvísis um rannsóknarinnviði, sem hefur átt veigamikinn þátt í að efla rannsóknarinnviði og rannsóknarumhverfi á Íslandi.