Hvenær
20. október 2026
09:00 til 16:00
Hvar

Hilton Reykjavík

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Work, Learn, Evolve: Hvernig lærum við í starfi á tímum hraðra breytinga?

Hvernig þróast þekking, færni og hæfni á vinnustöðum nútímans? Hvaða hlutverki gegna háskólar í að styðja við símenntun, starfsþróun og ævimenntun? Hvernig getum við byggt sterkari brú milli fræða og atvinnulífs?

Þessum og fleiri spurningum verður velt upp á alþjóðlegu ráðstefnunni Work, Learn, Evolve, sem haldin verður á vegum Háskóla Íslands, Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins og fleiri þann 20. október. Þar koma saman fræðafólk, kennarar, stjórnendur og sérfræðingar frá Norðurlöndum og víðar til að ræða nýjustu rannsóknir og reynslu af vinnustaðanámi, símenntun, hæfniþróun og menntun fullorðinna.

Fyrir háskólakennara býður ráðstefnan upp á einstakt tækifæri til að kynnast nýjum sjónarhornum á tengsl náms og atvinnulífs, áhrifum tæknibreytinga á hæfniþarfir samfélagsins. Þessi sjónarhorn gefa hugmyndir um hlutverki háskóla í síbreytilegu umhverfi. Á dagskrá eru erindi frá rannsakendum og stefnumótendum frá norðurlöndunum og OECD, málstofur með dæmum frá vettvangi sem geta gefið innblástur fyrir kennslu, rannsóknir og samstarf við samfélag og atvinnulíf.

Við hvetjum allt starfsfólk Háskóla Íslands sem hefur áhuga á kennslu, námi, rannsóknum og samfélagslegu hlutverki háskóla til að taka þátt.

Nánari upplýsingar og skráning: Work, Learn, Evolve: Conference on Workplace Learning - NLL

 Work, Learn, Evolve: Hvernig lærum við í starfi á tímum hraðra breytinga?
Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil