Aðalbygging
Hátíðasalur
Vísinda- og nýsköpunarverðlaun Háskóla Íslands 2024 verða afhent þriðjudaginn 14. maí kl. 9-11 í Hátíðasal Aðalbyggingar skólans.
Verðlaunin, sem hétu áður Hagnýtingarverðlaun Háskóla Íslands, eru nú veitt í 26. sinn en keppnin er samstarfsverkefni Háskóla Íslands, Árnason|Faktor og Auðnu-tæknitorgs.
Alls bárust nærri 40 tillögur í samkeppnina að þessu sinni og veitt verða verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar í í fjórum flokkum: Heilsa og heilbrigði, Tækni og framfarir, Samfélag og Hvatningarverðlaun auk þess sem sigurvegari keppninnar verður valinn úr hópi verðlaunahafa úr ofangreindum flokkum.
Viðburðurinn er hluti af nýsköpunarvikunni Iceland Innovation Week 2024.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!