Hvenær
13. mars 2026
13:00 til 16:00
Hvar

Edda

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Athygli er vakin á áhugaverðri vinnustofu með Louise Evans um samskipti og félags- og tilfinningafærni, sem fram fer í Eddu – húsi íslenskunnar, næsta föstudag, 13. mars kl. 13–16.

    Vinnustofan er á vegum Delta Kappa Gamma á Íslandi, félags kvenna í fræðslustörfum. Louise Evans er alþjóðlegur fyrirlesari sem hefur starfað með skólum, fyrirtækjum og stofnunum víða um heim. Hún er höfundur samskiptalíkansins The 5 Chairs, sem hjálpar fólki að skilja viðbrögð sín í samskiptum og þróa uppbyggilegri leiðir til samskipta. Líkanið styður við aukna sjálfsvitund, bætt samskipti og sterkari tengsl, bæði í starfi og daglegu lífi. Louise er jafnframt höfundur bóka fyrir bæði börn og fullorðna og hefur TEDx-fyrirlestur hennar yfir sex milljón áhorf. Nánari upplýsingar um Louise og The 5 Chairs má finna á www.the5chairs.com.

    Heiðursgestir á vinnustofunni eru:
    Marie-Antoinette Hubers-de Wolf, Evrópuforseti DKG
    Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands

    Þátttökugjald:
    9.900 kr. fyrir DKG-félagskonur
    11.900 kr. fyrir aðra þátttakendur

    Athugið: Vinnustofan fer fram á ensku.

    Boðið verður upp á nærandi veitingar í hléi og að vinnustofu lokinni verður gleðistund á veitingastaðnum Ými (í sama húsi).

    Skráning:
    https://forms.gle/qiRn25UsLPJqU5uV7

    Sæti er staðfest þegar þátttökugjald hefur verið greitt. Greiða skal með millifærslu á reikning DKG:
    kt. 491095-2379
    banki 0546-26-002379

    Vinsamlegast setjið „vinnustofa“ í skýringu greiðslu.

    1920_KRI_leikskoli_200526_018.jpg
    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil