Hvenær
22. október 2026
15:30 til 16:30
Hvar

Háskólatorg

Bóksala stúdenta

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Útgáfu bókarinnar John Wolley’s Garefowl Books: The Aukward Birth of Anthropogenic Extinction í ritstjórn Más Jónssonar, prófessors í sagnfræði, og Gísla Pálssonar, prófessors emeritus í mannfræði, verður fagnað í Bóksölu stúdenta fimmtudaginn 22. október kl. 15.30.

Um er að ræða fyrstu heildstæðu útgáfuna af Geirfuglabókum Johns Wolley, handritum sem eru varðveitt á bókasafni Cambridge-háskóla og hafa að geyma frásögn af Íslandsferð fuglafræðinganna Wolley og Alfred Newton árið 1858. Hingað komu þeir í von um að finna geirfugla í Eldey út af Reykjanesi en höfðu ekki erindi sem erfiði þar sem síðasti geirfuglinn við Ísland hafði verið drepinn um 14 árum fyrr. Þeir Wolley og Newton ventu þá kvæði sínu í kross, höfðu uppi á áhöfninni í síðasta geirfuglaróðrinum og tóku við hana ítarleg viðtöl.

Geirfuglabækurnar eru einstök heimild um endalok tegundar af mannavöldum og í bók þeirra Más og Gísla birtast handrit þeirra í fyrsta sinn í fullri lengd. Auk þess hefur bókin að geyma inngang ritstjóra og þrjár fræðigreinar eftir leiðandi fræðafólk á sviði fuglafræði, mannfræði og náttúrusögu. Það eru þau Tim R. Birkhead, Petra Tjitske Kalshoven og William A. Montevecchi sem setja Geirfuglabækurnar í breiðara náttúrsögulegt og mannfræðilegt samhengi.

Útgefandi bókarinnar er Pelagic Publishing í Lundúnum.

Hægt verður að kaupa bókina í útgáfuhófinu.

Útgáfuhóf vegna bókarinnar John Wolley’s Garefowl Books
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Markaðs- og samskiptasvið

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil