1920_kri_VoN_byggingar_180813_010.jpg
Hvenær
18. september 2026
11:00 til 12:00
Hvar

Oddi

Stofa 312

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Fjallað er um líkan af tvíhliða samningum um fiskveiðar milli strandríkis og fjarlægrar fiskveiðiþjóðar. Líkanið er byggt á Gordon-Schaefer-fiskveiðilíkaninu en er útvíkkað þannig að bæði er tekið tillit til fiskveiðiflota strandríkisins og fiskveiðiflota frá fjarlægri fiskveiðiþjóð. Innheimt er veiðileyfagjald, sem getur verið mishátt fyrir innlend og erlend skip. Sett er fram leikjafræðilegt líkan. Nash-jafnvægi leiksins jafngildir eftirspurn hvorrar þjóðar eftir veiðileyfum. Því næst er kynntur stjórnandi sem ákveður veiðileyfagjöld fyrir innlend skip og erlend þannig að velferð heimamanna sé í hámarki. Líkanið er síðan útvíkkað þannig að hægt sé að reikna aðgangsgjöld með svonefndri tveggja þrepa verðlagningu. Í tvíhliða viðræðum er samið um veiðigjald sem báðir aðilar geta sætt sig við. Til þess er Nash-samningalíkanið notað. Líkanið er sprottið af tvíhliða samningaviðræðum um aðgangsgjöld í túnfiskveiðum á Kyrrahafi. Fræðilegar niðurstöður líkansins eru bornar saman við algenga framkvæmd og stofnanalega umgjörð þessara fiskveiða.

Efnisorð

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil