Hvenær
27. mars 2026
09:30 til 14:30
Hvar

Saga

S-114

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Tómstundadagurinn er árlegur viðburður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði. Markmið með Tómstundadeginum er að vekja athygli á mikilvægi tómstunda og félagsstarfs fyrir samfélög, lífsgæði og þroska einstaklinga, styðja við samtal fagvettvangs og fræðasamfélags og beina sjónum að því sem er efst á baugi hverju sinni.

    Tómstundadagurinn var fyrst haldinn árið 2015 að tilstuðlan námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Háskóla Íslands og Rannsóknarstofu í tómstundafræði. Tómstundadagurinn hefur verið haldinn nær óslitið síðan og með ólíku sniði. Nemendur, fagfélög og fagvettvangur hafa alla jafna komið að deginum með einum eða öðrum hætti og þema Tómstundadagsins tengist alla jafna einhverju sem er efst á baugi hverju sinni. Sjónum hefur verið beint að eldri borgurum og tómstundum þeirra, óformlegu námi barna og unglinga í gegnum tómstundaþátttöku og frístundastarf, áskorunum sem fylgja tækni og samfélagsmiðlum, einelti, farsæld og útiveru svo eitthvað sé nefnt.

    Að þessu sinni er yfirskrift Tómstundadagsins Mikilvægir aðrir í lífi fólks. Þar er vísað til hlutverks og fagmennsku þeirra sem starfa á vettvangi frítímans að tómstunda- og félagsstarfi með fólki á ólíkum aldri. Sjónum er alla jafna helst beint að börnum, unglingum og ungu fólki en tómstunda- og félagsmálafræðingar starfa m.a. einnig á heilbrigðisstofnunum, við endurhæfingu og við viðburðahald svo eitthvað sé nefnd.

    Dagskrá

    Ráðstefnustjóri er Helgi Grímsson, sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu

    8.30 Morgunsamvera

    9.30 Setning - Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands

    9.35 Youth Voice and Disaster Response - Dr. Dane Stickney University of Colorado, Denver

    9.50 Tómstundstarf og ungmennastefna stjórnvalda - Guðmundur Ari Sigurjónsson alþingismaður og tómstunda- og félagsmálafræðingur

    10.05 Hugmyndir og draumar Fagfrí - Gísli Ólafsson formaður Fagfrí

    10.20 Látum ekki sitja við orðin tóm - um starf orðanefndar í tómstundafræði - Hulda Valdís Valdimarsdóttir verkefnistjóri á frístundaskrifstofu SFS

    10.35 Morgunsopi með hugtakavegg og spjalli

    11.00 Að eflast sem tómstunda- og félagsmálafræðingur í starfi með jaðarsettum ungmennum - Melkorka Assa Arnardóttir meistari í tómstunda- og félagsmálafræði

    11.15 Kynþátta- og menningarfordómar í daglegu lífi ungs fólks - Sema Erla Serdaroglu aðjúnkt

    11.30 „Lögbundin leyniþjónusta“ - Frístundaheimilin á Íslandi, opinber sýnileiki og ósýnileiki - Steingerður Kristjándsóttir aðjúnkt

    11.45 Stafrænt æskulýðsstarf - Benedikta Björg Sörensen Valtýsdóttir aðjúnkt

    12.00 Hádegishlé

    12.45 Tengsl og félagslegur stuðningur - Nýnemaferðirnar og þýðing þeirra - Vanda Sigurgeirsdóttir lektor

    13.00 Fyrirmynd sem gefur öðrum hugrekki - Hekla Björk Hólmarsdóttir aðjúnkt við MVS

    13.15 Álitamál og stefnumótun í málefnum ungs fólks - Eygló Rúnarsdóttir aðjúnkt

    13.30 Frelsi og forvarnir - Árni Guðmundsson aðjúnkt

    13.45 Óvissa og nýsköpun í Grindavík: Ungmennaþing og þátttökurannsókn með ungu fólki - Jakob F. Þorsteinsson lektor, Elínborg Ingvarsdóttir tómstunda- og félagsmálafræðingur, Kolbrún Dögg nemi í tómstunda- og félagsmálafræði og Dísa Jakobsdóttir kaospilot

    14.00 Slit: Samantekt og horft til framtíðar - Kolbrún Pálsdóttir sviðsforseti Menntavísindasvið

    14.15 Lok

    Hér er hlekkur á streymið

    Tómstundadagurinn er í samstarfi við Félag fagfólks í frítímaþjónustu og Fagfrí - Landssamtök um fagþróun frístundaheimila

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil