Aðalbygging
Stofa 220
- Aðgangur ókeypis
Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir, MA í þýðingafræði, skáld og þýðandi, flytur fyrirlestur í fyrirlestraröð Þýðingaseturs Háskóla Íslands um bókmenntaþýðingar sem nefnist Þýðandinn í brennidepli. Í fyrirlestrinum segir Móheiður meðal annars frá þýðingu sinni á Svartri orkídeu eftir Vónbjörtu Vang.
Haldið í stofu 220 í Aðalbyggingu Háskóla Íslands, föstudaginn 6. nóvember kl. 13:00. Verið öll velkomin.
Þýðingasetur Háskóla Íslands var sett á laggirnar 2001 með þátttöku í Evrópuverkefni um ljóðaþýðingar og komu hingað fræðimenn og skáld auk þess sem efnt var til samkeppni í ljóðaþýðingum í samvinnu við Lesbók Morgunblaðsins. Þýðingasetrið hefur tekið þátt í fjölda annarra verkefna á liðnum árum, innlendra og evrópskra og einnig staðið fyrir útgáfu bóka, skáldverka og kennslubóka. Í tilefni af aldarfjórðungsafmælinu efnir Þýðingasetrið til fyrirlestraraðar um þýðendur og bókmenntaþýðingar þeirra. Fram koma þýðendur og segja frá glímu sinni við verkin, sjálfum sér og nýjasta útkomnu verki sínu.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!