Saga
2.hæð - Bókasafn
- Aðgangur ókeypis
Frá 20.–25. nóvember gefst gestum Sögu tækifæri til að skoða fjölbreytt og skapandi textílverk nemenda á bókasafninu á 2. hæð.
Á sýningunni má sjá hvernig nemendur vinna með ólíkar aðferðir, sjónarhorn og efni í verkum sínum, allt frá drónasjónarhorni og blandaðri tækni yfir í hönnunarflíkur með lagskiptu þrykki.
Verkin voru unnin í meistaranámskeiðinu LVG005F Textíllist og hönnun við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Endilega kíkið við og skoðið fjölbreytt og skapandi verk nemenda!
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!