Hvenær
23. október 2025
20:00 til 21:00
Hvar

Veröld - Hús Vigdísar

Stofa 023

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Streymi

    Matthias Baldurson Harksen, doktorsnemi í kennilegri eðlisfræði við Háskóla Íslands flytur fyrirlesturinn Sólmyrkvi staðfestir afstæðiskenninguna.

    Ágrip:

    Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sýnilegur á vestanverðu Íslandi. Á höfuðborgarsvæðinu mun hann vara í rúmlega mínútu en nær tvöfalt lengur á Látrabjargi.

    Síðast sást almyrkvi á Íslandi árið 1954 og sá næsti verður ekki fyrr en árið 2196. Almyrkvi á sólu er sjaldséð og einstök náttúruupplifun. Ljós hverfur úr miðjum degi, hitastig lækkar og fuglar hætta að syngja.

    Fyrir flesta núlifandi Íslendinga verður þetta eina tækifærið til að verða vitni að almyrkva. Ætlar þú að láta þetta fram hjá þér fara?

    Almyrkvar hafa einnig gegnt mikilvægu hlutverki í sögu vísindanna. Með þeim er hægt að sannreyna almennu afstæðiskenninguna og bera saman lýsingu Einsteins og Newtons á þyngdarkraftinum. Í fyrirlestrinum verður sagt frá því hvernig Arthur Eddington tókst árið 1919 að staðfesta kenningu Einsteins með mælingum sem sýndu að ljós frá fjarlægum stjörnum sveigðist í þyngdarsviði sólar. Í samstarfi við Sævar Helga Bragason og Toby Dittrich munum við endurtaka þessa sígildu tilraun með nútíma mælitækjum í sólmyrkvanum 2026.

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil