Bílastæðið við Elliðaárstöð
- Nemendur Háskóla Íslands
Skref saman er þriggja skipta náttúrumiðað gönguhópastarf fyrir háskólanema sem byggir á náttúrumiðaðri og skapandi nálgun í félagsráðgjöf. Markmið verkefnisins er að efla félagsleg tengsl og vellíðan innan háskólasamfélagsins.
Ganga og útivera eru nýttar sem vettvangur fyrir óformleg samskipti, tengslamyndun og ígrundun. Með því að færa hópastarfið út fyrir hefðbundið rými er leitast við að skapa aðgengilegt og opið umhverfi þar sem hreyfing, náttúra og félagsleg samvera styðja við hópferlið.
Hópurinn hittist í þrjú skipti og verður hvert skipti byggt upp í kringum ákveðið þema sem tengist félagslegum tengslum, námslífi og vellíðan.
Fyrsta gangan af þremur fer fram miðvikudaginn 30. september kl. 20:00. Við hittumst hjá bílastæðinu við Elliðaárstöð. Klæðnaður eftir veðri og muna eftir góðum skóm.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!