Edda
Fyrirlestrasal
- Aðgangur ókeypis
Námsbraut í Íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands stendur fyrir málþingi um aðgengi heilbrigðisstarfsfólks að kennslu í íslensku sem öðru máli. Málþingið verður haldið í fyrirlestrasal Eddu föstudaginn 13. nóvember kl. 10:00–11:15.
Stór hópur starfsfólks af erlendum uppruna gegnir afar mikilvægum störfum í íslensku heilbrigðiskerfi, bæði á Landspítala og öðrum heilbrigðisstofnunum, þar á meðal hjúkrunarheimilum. Þessi störf krefjast mikilla mannlegra samskipta þar sem íslenskukunnátta er algjör nauðsyn. Brýnt er að tryggja að þetta starfsfólk eigi greiðan aðgang að vandaðri íslenskukennslu. Í því felast augljósir hagsmunir fyrir starfsfólkið, heilbrigðiskerfið og samfélagið í heild. Mikilvægt er að tryggja að há skólagjöld girði ekki fyrir að þetta starfsfólk, sem hér greiðir skatta og skyldur, geti tileinkað sér íslensku og mætt þannig kröfum vinnuveitanda og samfélags um íslenskufærni.
Dagskrá
- Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
- Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítala
- Eygló Ingadóttir, hjúkrunarfræðingur á skrifstofu hjúkrunar á Landspítala
- Wendill Galan Viejo, stjórnarmaður í Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga og formaður deildar erlendra hjúkrunarfræðinga
- Erik Maher, grunnskólakennari og brautskráður nemandi úr íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands
- Pallborðsumræður
- Þingi slitið kl. 11.15.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!