Hvenær
5. mars 2026
08:30 til 10:15
Hvar

Gróska

Höfuðstöðvar CCP

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Fimmtudaginn 5. mars fer fram samtal með nokkuð öðruvísi sniði en áður. Að þessu sinni verða engin formleg erindi og engin pallborð. Í staðinn einblínum við alfarið á opið samtal og að skapa rými þar sem þátttakendur geta rætt bæði sín á milli og við okkur. Fundurinn fer fram kl. 8.30-10.15 bæði á netinu og í höfuðstöðvum CCP í Grósku, 3. hæð.

    Tengslanetið í kringum Rannsóknasetur skapandi greina hefur farið ört vaxandi og við viljum nýta tækifærið til að bjóða fólki úr ólíkum áttum skapandi greina að hittast, miðla reynslu og ræða málin saman. Við hvetjum iðkendur, stjórnendur, fræðafólk, stefnumótendur og alla sem hafa áhuga á skapandi greinum til að taka þátt samtalinu. Þátttakendur raða sér við borð þar sem hópstjóri heldur utan um umræður og tekur saman helstu punkta. Við hvetjum fólk til að mæta snemma og næla sér í kaffi og morgunmat í boði CCP. Teams-fundur verður einnig í boði fyrir þau sem ekki komast á staðinn, fjöldi þeirra fer eftir skráningu. Þá fer samtalið fram á ensku á 1-2 borðum (eftir skráningu). Þátttakendur geta lagt fram tillögur að umræðuefnum við skráningu.

    Markmið fundarins eru að:

    • öðlast dýpri innsýn í stöðu og mögulega framtíð skapandi greina á Íslandi
    • greina spurningar sem vert er að rannsaka, ræða og þróa frekar
    • skapa opið samtalsrými fyrir fjölbreyttan hóp þátttakenda

    Hér eru nánari upplýsingar, dagskrá og skráningarhlekkur.

    Viðburðinum verður ekki streymt að þessu sinni.

    Um setrið

    Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) stendur að fundaröðinni Samtal um skapandi greinar í samstarfi við CCP. Stofnaðilar RSSG eru Háskóli Íslands, Listaháskóli Íslands, Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri og Háskólinn á Hólum.

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil