Háskólatorg
Litla torg
- Aðgangur ókeypis
Í tilefni af starfslokum og sjötugsafmæli Ingólfs V. Gíslasonar, prófessors í félagsfræði, verður efnt til kveðjuhófs á Litla torgi fimmtudaginn 19. nóvember kl. 16:00.
Léttar veitingar í boði. Öll hjartanlega velkomin.
Vinsamlegast staðfestið mætingu á Facebook viðburðinum með því að merkja við „Mæti" svo að það sé hægt að áætla veitingar.
Örstutt um heiðursgestinn
Ingólfur er fæddur í Reykjavík árið 1956 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Kópavogi árið 1976. Hann lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 1981 og doktorsprófi í félagsfræði frá Lundarháskóla, Svíþjóð, árið 1990.
Rannsóknir hans hafa að stærstum hluta snúið að stöðu og möguleikum karla og kvenna með sérstakri áherslu á breytingar hjá körlum síðustu áratugi. Að auki hafa rannsóknir hans beinst að ofbeldi í nánum samböndum og samspili skynsemi og hluttekningar. Hann hefur flutt fjölda fyrirlestra bæði hér á landi og erlendis og birt greinar í innlendum og erlendum tímaritum auk bóka og bókakafla. Sem dæmi um tímarit má nefna NORA, Feminism & Psychology, Social Policy & Society, Íslenska þjóðfélagið og Tímarit um uppeldi og menntamál.
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!