Fjölheimar, Tryggvagötu 13, Selfossi
- Aðgangur ókeypis
Land- og ferðamálafræði HÍ í samstarfi við Ferðamálastofu bjóða til fundar í Fjölheimum á Selfossi.
Kynntar verða niðurstöður rannsóknarverkefnis um samstarf og samvinnu sveitarfélaga og áfangastaðastofa við sjálfbæra uppbyggingu ferðaþjónustu. Að kynningu lokinni fara fram pallborðsumræðum um niðurstöðurnar og helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum.
Rannsóknarverkefnið byggir á viðtölum við áfangastaðastofur og sveitarfélög á Norðurlandi, Austurlandi, Suðurlandi og Reykjanesi, ásamt innihaldsgreiningu á áfangastaðaáætlunum þessara svæða. Verkefnið var styrkt af Byggðarannsóknasjóði.
Málstofan er ætluð sveitarfélögum, áfangastaðastofum og öðrum hagsmunaaðilum ferðaþjónustunnar og öllum aðilum sem áhuga hafa á stefnumótun, samráði og eftirfylgni þegar kemur að ferðamálum á íslandi.
Dagskrá:
11:00
Kynning á niðurstöðum verkefnisins, Íris Hrund Halldórsdóttir og Anna Karlsdóttir
12:00
Pallborð: Helstu áskoranir í svæðisbundnum ferðamálum og samvinnu um eftirfylgni stefnumótunar
Skráning
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!