Hvenær
12. nóvember 2026
16:00 til 17:30
Hvar

VR-II

Stofa 257

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Fimmtudaginn 12. nóvember verða haldin tvö erindi í stofu 257 í VR-II.

Það fyrra hefst á því að Dr. Miroslav Mrlík verður með stutta kynningu á Tomas Bata University í Zlín í Tékklandi og möguleikum nemenda og starfsfólks á Erasmus+.

Að því loknu kynnir hann rannsóknir sínar á efnum sem bregðast við ytra áreiti, einkum ljósi. Í erindinu fjallar hann um hvaða ferli liggja að baki svörun efnanna, hvaða aðferðir eru notaðar til að greina eiginleika þeirra og hvert rannsóknir á þessu sviði stefna.

Miroslav hefur stýrt nokkrum rannsóknarverkefnum á sviði snjallefna. Hann er höfundur eða meðhöfundur að meira en 144 vísindaritverkum. H-stuðull hans er 35 samkvæmt Web of Science og hefur verið vitnað í verk hans oftar en 3.100 sinnum. Árið 2013, skömmu eftir að hann lauk doktorsprófi, hlaut hann þriðju verðlaun í efnafræði til heiðurs Jean-Marie Lehn, sem franska sendiráðið í Tékklandi veitir.

Næst flytur Dr. Markéta Ilčíková erindið Polymers for 3D Printing and Multicellular Spheroid Harvesting þar sem hún kynnir rannsóknir sínar á fjölliðuefnum í vefjaverkfræði. Hún fjallar um aðferðir við nýmyndun efnanna, hvernig helstu eiginleikar þeirra eru greindir og hvernig vinna má úr þeim hentugt undirlag fyrir vefjarækt.

Dr. Markéta Ilčíková er rannsóknaprófessor við Centre of Polymer Systems við Tomas Bata-háskóla í Zlín í Tékklandi.

Hún lauk doktorsprófi árið 2013 frá Polymer Institute of the Slovak Academy of Sciences í Bratislava í Slóvakíu. Árið 2019 hóf Markéta störf við Tækniháskólann í Lodz í Póllandi. Þar vann hún í rannsóknahópi prófessors Joönnu Pietrasik að Marie Skłodowska-Curie COFUND-verkefni þar sem rannsakað var hvernig nýta mætti samsettar nanóagnir úr grafenoxíði sem virk íblöndunarefni í fjölliðublöndur.

Rannsóknir hennar beinast nú að því að skilja hvaða ferli liggja að baki stakeindafjölliðun með atómflutningi sem kemur af stað fyrir tilstilli vélræns áreitis (mechanoATRP) og að þróa ný efni til vefjaverkfræði.

Markéta sinnir einnig kennslu og leiðsögn nemenda. Við Tomas Bata-háskóla kennir hún verkleg námskeið í eðlisefnafræði fyrir grunnnema og heldur fyrirlestra um snjallefni fyrir meistaranema. Hún leiðbeinir bæði meistara- og doktorsnemum.

Hún er meðhöfundur að 61 vísindariti. H-stuðull hennar er 23 samkvæmt Web of Science og hefur verið vitnað í verk hennar oftar en 1.680 sinnum.

Photo-Actuating Systems / Polymers for 3D Printing and Multicellular Spheroid Harvesting
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- viðburðir von

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil