Veröld - Hús Vigdísar
Heimasvæði tungumála
- Aðgangur ókeypis
Sýning Háskóla Íslands um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki verður opnuð með viðburði á Heimasvæði tungumálanna í Veröld, miðvikudaginn 7. október kl. 12:00-13:00. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, opnar sýninguna ásamt fulltrúum japanskra samstarfsaðila og síðan heldur Teruko Yahata erindi um reynslu sína frá Hiroshima, en hún var átta ára þegar kjarnorkuárásarnar áttu sér stað. Opnunarviðburðurinn er öllum opinn.
Sýningin um kjarnorkuárásirnar á Hiroshima og Nagasaki verður haldin á neðri hæð Háskólatorgs dagana 7. október til 7. nóvember. Á sýningunni eru ljósmyndir og skýringar sem varpa ljósi á afleiðingar kjarnorkuárásanna árið 1945 og stuðla að auknum skilningi á hörmungum kjarnorkuvopna og mikilvægi friðar og afvopnunar. Opnunartíma Háskólatorgs má sjá hér.
Sýningin við Háskóla Íslands er hluti af Friðarviku í Reykjavík og sett upp í tengslum við stærri Hiroshima–Nagasaki sýningu, sem verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur dagana 6. október til 1. nóvember 2026. Þar verða meðal annars sýndir munir og söguleg gögn tengd árásunum, ljósmyndir, frásagnir eftirlifenda og boðið upp á sýndarveruleikabúnað.
Skipuleggjendur:
- Háskóli Íslands
- Hiroshima-borg
- Nagasaki-borg
- Reykjavíkurborg
Samstarfsaðilar:
- Sendiráð Japans á Íslandi
- Hiroshima National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims
- Nagasaki National Peace Memorial Hall for the Atomic Bomb Victims
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!