Hvenær
11. desember 2025
14:00 til 16:00
Hvar

Edda

Fyrirlestrarsalur

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Gervigreindarsetur Háskóla Íslands verður opnað formlega með viðburði í fyrirlestrasal Eddu fimmtudaginn 11. desember kl. 14-16. Boðið verður upp á spennandi fyrirlestra um nýtingu gervigreindar innan ólíkra fræðigreina og pallborð um hlutverk háskóla í þróun og nýtingu gervigreindar.

    Gervigreindarsetri HÍ er í senn ætlað að vera vettvangur fyrir samstarf í rannsóknum og þróun á sviðum gervigreindar og gagnavísinda þvert á fræðigreinar og farvegur fyrir miðlun þekkingar út í samfélagið. Setrinu er einnig ætlað hvetja til umræðu um ábyrga nýtingu þessarar nýju tækni.

    Streymt verður frá viðburðinum.

    Dagskrá

    Inngangsorð Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ.

    Fyrirlestrar um gervigreind

    • Iris Edda Nowenstein, lektor við Hugvísindasvið HÍ.
    • Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, prófessor við Félagsvísindasvið HÍ.
    • Morris Riedel, prófessor við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ.
    • Bjarnheiður Kristinsdóttir, lektor við Menntavísindasvið HÍ.

    Pallborð: Hlutverk háskóla í þróun og nýtingu gervigreindar

    Viðmælendur:

    • Magnús Karl Magnússon, prófessor við Heilbrigðisvísindasvið HÍ.
    • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
    • Lilja Dögg Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms.
    • Oddur Þorri Viðarsson, dómari við Héraðsdóm Vestfjarða.

    Vinsamlegast skráið þátttöku.

    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil