Lækjargötuhúsið á Árbæjarsafni.
- Aðgangur ókeypis
Hvernig getum við eflt samstarf safna, menningarstofnana og ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu? Hvaða tækifæri felast í aukinni samvinnu og hvernig getum við nýtt þau betur?
Rannsóknarsetrið í safnafræði, Rannsóknamiðstöð ferðamála (RMF), Félag íslenskra safna og safnafólks (FÍSOS), Síldarminjasafnið á Siglufirði og Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) bjóða til opinnar vinnustofu þriðjudaginn 10. nóvember, kl. 9:00–12:00, í Lækjargötuhúsinu á Árbæjarsafni.
Markmið viðburðarins er að leiða saman fólk úr safna- og menningargeiranum og ferðaþjónustunni, skapa vettvang fyrir samtal og hugmyndaskipti og kanna leiðir til að efla samstarf og stuðla að sjálfbærri þróun ferðaþjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Menning er mikilvægur hluti af upplifun ferðamanna á Íslandi og eru safnaheimsóknir þriðja vinsælasta afþreying ferðamanna, á eftir náttúrulaugum og heilsulindum. Því felast mikil tækifæri í að styrkja tengsl þessara tveggja geira og þróa áfram fjölbreytta og áhugaverða upplifun fyrir gesti.
Viðburðurinn verður blanda af pallborðsumræðum, samtali og tengslamyndun, þar sem þátttakendum gefst tækifæri til að deila reynslu, ræða áskoranir og tækifæri og mynda ný tengsl.
Dagskrá:
08:45 | Húsið opnar
09:00–09:15 | Setning viðburðar Guðrún Dröfn Whitehead, dósent í safnafræði við Háskóla Íslands.
09:15–10:00 | Pallborð 1: Áskoranir og úrræði
Pallborðsstjóri: Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdarstjóri Samtaka Ferðaþjónustunnar.
Þátttakendur:
Ásta María Marinosdóttir, framkvæmdarstjóri Special Tours Iceland. Ingibjörg Þórisdóttir, sviðsstjóri miðlunarsviðs Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Guðrún Ósk Kristinsdóttir, viðskiptastjóri Meet in Reykjavík
10:00–10:15 | Kaffihlé
10:15–11:00 | Pallborð 2: Möguleikar í samstarfi innan svæða
Pallborðsstjóri: Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdarstjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins
Þátttakendur:
Nathalia Druzin Halldórsdóttir, Kynningar- og markaðsstjóri Listasafn Reykjavíkur. Heimir Björn Janusarson, umsjónarmaður Hólavallagarðs. Guðlaugur Kristmundsson, forstöðumaður sölu hjá Iceland Travel
11:00–11:20 | Kaffi og spjall
11:20–12:00 | Hraðstefnumót og tengslamyndun
Umsjón: Dagrún Ósk Jónsdóttir, aðjúnkt í þjóðfræði við Háskóla Íslands og verkefnastjóri Félags íslenskra safna og safnafólks
Skráning
Þátttaka er ókeypis en þátttakendur eru hvattir til að skrá sig með því að smella hér:
Við hvetjum öll sem starfa innan ferðaþjónustu, safna og menningarstarfsemi, eða hafa áhuga á auknu samstarfi þessara geira, til að mæta og taka þátt í samtalinu.Verið hjartanlega velkomin!
Um viðburði innan Háskóla Íslands
Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.
Deila
Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!