Hvenær
22. október 2026
12:00 til 13:00
Hvar

Þjóðminjasafn Íslands

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
Bæta við í dagatal

Fimmtudaginn 22. október 2026 heldur Naja Dyrendom Graugaard, dósent við Kaupmannahafnarháskóla erindi á vegum RIKK – Rannsóknastofnun í jafnréttisfræðum við Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn fer fram í Þjóðminjasafninu á milli klukkan 12 og 13.

Í erindinu verður fjallað um sögu danskrar nýlendustefnu á Grænlandi (Kalaallit Nunaat), nýtingu náttúruauðlinda og átök um þekkingu og frásagnarvald Inúíta.

Þótt athygli hafi í auknum mæli beinst að stöðu og kúgun Inúíta í sögu danskrar nýlendustefnu á Grænlandi einkennist opinber umræða í Danmörku enn að verulegu leyti af þeirri hugmynd að dönsk yfirráð hafi fyrst og fremst stuðlað að uppbyggingu og efnahagslegum framförum.

Saga orsugiak, sem danskir jarðfræðingar nefndu krýólít, dregur þessa söguskoðun í efa og varpar ljósi á efnahagslega hagsmuni og nýtingu náttúruauðlinda á nýlendutímanum.

Í grænlensk-dönsku heimildarmyndinni Orsugiak – The White Gold of Greenland, sem kom út árið 2025, er þessi saga dregin fram. Myndin, sem sýnd var hér á landi á vegum RIKK í mars 2025, vakti harðar deilur og var tekin úr sýningu hjá danska ríkisútvarpinu aðeins nokkrum dögum eftir útgáfu hennar.

Viðbrögðin vöktu jafnframt spurningar um það hverjir hafa vald til að segja sögu nýlendutímans og hvaða þekking og reynsla er talið ákjósanlegt að segja frá.Í fyrirlestrinum fjallar Naja Dyrendom Graugaard um það hvernig nýlendutengsl móta enn viðhorf til þekkingar og frásagna Inúíta. Hún byggir meðal annars á eigin reynslu sem rannsakandi af dönskum og grænlenskum inúítaættum og þátttakandi í heimildarmyndinni. Með hliðsjón af hugtakinu þekkingarfræðilegt eignarnán (e. epistemic dispossession) skoðar hún hvernig hægt er að svipta samfélög yfirráðum yfir eigin þekkingu og sögu og hvers vegna frásagnarvald Inúíta er svo mikilvægur þáttur í afnýlenduvæðingu.

Naja Dyrendom Graugaard er dósent við Center for Gender, Sexuality & Difference við Kaupmannahafnarháskóla. Rannsóknir hennar snúa að nýlendutengslum Danmerkur og Grænlands, afnýlenduvæðingu, þekkingarkerfum inúíta og reynslu Grænlendinga.

Hún hlaut Emmu Goldman-verðlaunin árið 2025.

Fyrirlesturinn fer fram á ensku.

Nýlendustefna og námuvinnsla á Grænlandi
Efnisorð
Ábyrgðaraðili
- Svanhildur Anja Ástþórsdóttir, verkefnastjóri, RIKK

Um viðburði innan Háskóla Íslands

Efni viðburða sem haldnir eru innan Háskóla Íslands er á ábyrgð skipuleggjenda, fyrirlesara og annarra þátttakenda. Skoðanir og fullyrðingar sem settar eru fram á slíkum viðburðum, hvort sem er í ræðu eða riti, eru á ábyrgð þeirra sem þær setja fram og endurspegla ekki endilega stefnu Háskóla Íslands.

Deila

Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

Var efnið hjálplegt?

Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

Takmarkað við 250 stafabil